Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2008, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 16.02.2008, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2008 7 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Mesta kanóna síðrokksins þegarsú stefna reis hvað hæst um síðustu aldamót var hiklaust kan- adíska sveitin Godspeed You Black Emperor! Fremur hljótt hefur verið um þá sveit undanfarin fimm ár eða svo og margir teknir að undrast hvort hún sé komin endanlega í gröf- ina. Sveitin ku vera í híði um óákveð- inn tíma en er ekki hætt. Meðlimir hafa verið að sýsla við hin og þessi bönd á meðan Godspeed hefur verið í roti, og þar fer fremst A Silver Mt. Zion. Tónlistarmiðilinn Drowned in Sound átti viðtal við Efrim Menuck, einn af forvígismönnum Godspeed en sveitin sú var/er alræmd fyrir megna fjölmiðlafælni. Viðtalið var vegna nýrrar A Silver Mt. Zion plötu sem kallast 13 Blues for Thirteen Moons og kemur út 25. mars á veg- um Constellation. Í viðtalinu ræðir Menuck um að ákveðinn pirringur hafi verið kominn upp í hinu ofur- pólitíska bandi Godspeed og hann hafi hreinlega ekki nennt þessu lengur. Menuck tók síðan fyrir í spjalli við Pitchfork-vefinn að God- speed væri endanlega hætt, en orð- rómur þess efnis gaus upp fljótlega eftir Drowned in Sound viðtalið.    Breska skrýtirokksveitin Clinic,sem gerir út frá Liverpool, hef- ur tilkynnt um nýja plötu. Heitir hún hinu hressilega nafni Do It! og kem- ur út í apríl á vegum Domino. Þetta verður fimmta plata sveitarinnar og ku vera öllu melódískari en síðasta plata, Visitations (2006). Líkt og með aðra furðusveit, The Residents, hafa meðlimir Clinic aldrei sýnt á sér andlitin og fela þau oftast á bak við skurðlæknagrímur.    Minneapolissveitin The Replace-ments er ein af þessum goð- sögulegu sveitum, gríðarlega áhrifa- rík og á pikkfastan sess í hjörtum margra tónlistar- aðdáenda, einkanlega vestanhafs. Sveitin starfaði frá 1979 til 1991 en átti sitt blóma- skeið um miðjan ní- unda áratuginn þegar tímamótaplöt- ur á borð við Let it Be og Tim komu út. Plötur sveitarinnar fá nú þá yf- irhalningu sem þær eiga skilið, en fremsta endurútgáfufyrirtæki heims, Rhino, sér um þau mál. Fyrstu plöturnar koma út núna í apríl en um er að ræða breiðskíf- urnar Sorry Ma, Forgot To Take Out The Trash, Hootenanny og Let It Be og stuttskífuna Stink. Verða þær allar vel útilátnar, með b- hliðum, prufuupptökum og áður óheyrðum lögum. Síðar á árinu er það svo það sem eftir stendur, plöt- urnar Tim, Pleased To Meet Me, Don’t Tell A Soul og All Shook Down. Það er fyrrum umboðsmaður sveitarinnar, Peter Jespersson, sem hefur litið til með endurútgáfunni ásamt eftirlifandi meðlimum. Þeir eru Kevin Westenberg, sem keyrir ágætlega stöðugan sólóferil, Chris Mars, sem starfar í dag sem lista- maður og Tommy Stinson, sem spil- ar nú á bassa með Guns’n’Roses (og hefur því eðli málsins samkvæmt fremur lítið að gera). Bróðir hans, Bob Stinson, lést 18. febrúar árið 1995, útlifaður eftir áralangt sukk og svall. TÓNLIST Clinic Replacements Eftir Padraig Mara padraig@hi.is Sagt er að maður geti ekki dæmt bók eftirkápunni en það sama er ekki hægt aðsegja um plötur. Umslag snældu hljóm-sveitarinnar Bad Brains sem kom út 1982 og var samnefnd sveitinni ber með sér við- vörun um hverju búast skal við. Stórskorin en nákvæm elding úr svörtum himni sem rýfur þak þinghússins í Washington innrammað af litum hans hátignar Haile Selassie. Með fyrstu útgáfu sinni báðu Bad Brains ekki um orðið – þeir skor- uðu á þig að hlusta ekki. Sem hljómsveit voru Bad Brains sjokkerandi að öllu leyti. Í jaðarmenningu sem var yfirþyrm- andi hvít voru þeir svartir. Meðan aðrir banda- rískir pönkarar voru svo ungir að þeir vissu bara hvað það var sem þeir trúðu ekki voru heilarnir sanntrúaðir rastafarar. Í tónlistargeira þar sem hæfileikar voru ekki bara ónauðsynlegir heldur litnir hornauga voru þeir þjálfaðir djassarar. Bad Brains voru í andstöðu við kyrrstöðu. Þeir gátu ekki horfið í hópinn. Þeir urðu að rústa. Og það var nákvæmlega það sem þeir gerðu. Frá upphafi til enda er frumraun Bad Brains eins og flutningalest og það er þitt að rúlla með henni. Kassettuformið gerði það ekki bara auð- veldara að búa til ný eintök og dreifa henni frá pönkara til pönkara heldur voru lögin þétt sam- an með litlu plássi milli laga. Þú náðir varla and- anum. Pönk sækir kraft sinn í reiði, því er ekki hægt að neita, og af henni er nóg á þessari upp- töku, en þegar flestar pönksveitir létu reiðina leiða sig út í vitleysu og gera lögin að subbulegri þvælu voru lög heilanna sett saman og spiluð af hernaðarlegri nákvæmni. Slamdansklassíker- arnir sem komu fram hér: Fearless Vampire Killers, og hin tryllti Big Takeover, báru með sér tónlistarlega þætti sem höfðu ekki heyrst áð- ur í pönkinu, tímasetningar og skiptingar sem menn voru ekki lengi að kópíera og gera að klisj- um. Bad Brains voru óttalausir. Pönkararnir fengu vissulega útrásartónlist hjá þeim en á þessari snældu og í síðari verkum þeirra fylgdu lög með andlegum og trúarlegum boðskap. Hér heyrðu hárlausir harðkjarnamenn í skúmaskotum Bandaríkjanna sitt fyrsta döbb og sinn fyrsta rasta-lofsöng. Bad Brains hófu feril sinn í Washington DC en skutu rótum í harðkjarnasenu New York. Tónlistarlegir hæfileikar hljómsveitarinnar neyddu aðra innan geirans nær og fjær til að taka sig saman í andlitinu og ná tökum á hljóð- færum sínum. Sem ungir menn urðu söngvarinn HR, bassaleikarinn Darryl, Earl trommuleikari og gítarleikarinn Dr. Know fyrir miklum áhrif- um frá bók Napoleons Hills Think and Grow Rich og trú þeirra á möguleika sína til að hafa áhrif er augljós í textum þeirra og sannaði sig þegar pönkhreyfingin tók upp boðskap um sam- stöðu og jákvæðni þó að hann hafi oft verið kýld- ur í gegn með hnúunum. Andlega innblásin upp- steytstónlist Bad Brains hefur endurómað gegnum árin í ýmsum myndum og m.a. getið af sér Krishna-harðkjarnahreyfinguna og Youth Crew „straight edge“-stílinn. Frá fúsjóndjassi yfir í döbb, Chick Corea hittir Burning Spear með viðkomu í Dead Boys, þann- ig sýna Bad Brains áhrifavalda sína á fyrstu út- gáfu sinni og blandan var eldfim. Sem hljómsveit breyttu þeir grunni senu sem var vegalaus, þeir komu inn sem utangarðsmenn og unnu sér ekki bara inn virðingu heldur lotningu. Bad Brains boða frið með kylfuna á lofti og ást sem virkar eins og stigið sé á brjóstkassann í þungu stígvéli. Sanntrúaðir rastafarar POPPKLASSÍK Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Þ að er mikið skrafað um fram- leiðsluvinkillinn á samtímapoppi, að til dæmis gjörsamlega hæfi- leikasnauðum stúlkukindum sé smalað inn í stúdíó þar sem þær eru látnar gaula í hljóðnema án tillits til nokkurrar getu þar að lútandi. Síðan er vélað um afraksturinn með hjálp svokallaðs „auto-tuner" eða söngstilli. Engu skiptir hvort stúlkurnar kunni að syngja eða ekki, en öllu skiptir að brjóstastærðin sé ásættanleg, andlitsfallið snoturt og varirnar mun- úðarfullar. Þetta gerist þó eftir að þær hafa ber- strípað sig fyrir myndatöku, og ef eitthvað vantar upp á þar er myndin fótósjoppuð undir drep. Ný kvennapoppsbylgja í Bretlandi hristir nokk- uð upp í þessu módeli. „Venjulegt fólk" Bretarnir eru skrítnir, þótt þeir virðist alltaf jafn naskir á að þefa uppi hæfileikafólk, fóstra það og skjóta síðan upp á stjörnuhimininn svo að við hin, sem ei erum enskumælandi, getum fylgst með. Þetta dálæti þeirra á kornungum söngkonum jaðr- ar þó við blæti, það er eins og einhver undirliggj- andi viktoríanskur pervertismi sé að finna sér út- gönguleið. Helsta nýlundan við þessa bylgju er áhersla á „venjulegu stúlkuna“; hún er með fæturna á jörð- inni og klæðir sig og talar eins og fólk gerir flest. Það er svo annað mál, að það er búið að hampa pæjutöktunum svo mikið að þeir eru líklega orðnir að tísku eða stíl. Þá reynir á glögg augu og eyru að sjá hver er „raunverulegur" og hver ekki. Upphaf bylgjunnar má rekja til Lily Allen, en „ska-popp“ hennar sló rækilega í gegn í Bretlandi árið 2006. Rætt var um söngkonuna sem myspace- undur, en líkt og með Arctic Monkeys, langvinsæl- ustu sveit Breta um þessa mundir, vakti hún fyrst athygli á því vinsæla vefsvæði en hún hafði komið nokkrum prufuupptökum þangað inn. Kate Nash múraði svo þessa „hreyfingu" inni og er að mörgu leyti ágæt frummynd stefnunnar. Hún er með þykkan Lundúnahreim, semur lögin sín sjálf og glamrar undir á gítar. Textarnir eru hispurslausar, oft kaldhæðnar frásagnir úr hversdagslífinu, upp- fullar af slangri sem virka um leið sem einskonar samfélagsgagnrýni. Hráar myndir af Bretlandi eins og það horfir við ungviðinu í dag. Að þessu leytinu til er Nash að ganga inn í hefð þá sem The Jam hrundu í gang á pönktímabilinu og hefur verið haldið á lofti af The Streets t.d., listamenn sem má með nokkrum erfiðismunum tengja inn á þessa tónaflóðsbylgju. Nash er þá engin fegurðardís, meira svona krúttaraleg eða dúlluleg. En þó með bein í nefi og gírugan munn þar fyrir neðan. Tónlistarlega er þetta póstmódernískt popp þar sem öllu ægir sam- an en þessi bylgja einkennist meira af háttum og viðhorfi listamannanna, þ.e. hvernig þeir bera sig fremur en uppbyggingu sjálfrar tónlistarinnar, sem getur verið margvísleg. Söngviss Að vanda stillti BBC í upphafi þessa árs fram þeim listamönnum sem munu mynda „hljóm" þessa árs. Í tveimur efstu sætunum eru ... jú, þið giskuðuð rétt ... tvær ungar söngkonur. Í efsta sæti var hin nítján ára Adele sem syngur sálartónlist, minnir dálítið á landa sinn Joss Stone (sem hóf ferilinn fimmtán ára). Í öðru sæti var svo hin velska Duffy, og fetar hún einnig sálartónlistarstiguna. Fyrstu breiðskífur þeirra beggja eru sjóðandi heitar í Bretlandi; Adele platan sem er nýkomin út selst í bílförmum og sat í efsta sæti breska vinsældalist- ans í upphafi mánaðar og Bretarnir bíða með önd- ina í hálsinum eftir Duffy, en plata hennar kemur út í upphafi næsta mánaðar. Nýjasta undrið er svo hin átján ára gamla Laura Marling. Ólíkt hinum tveimur leitar hún eftir innblæstri í enskri þjóð- lagatónlist og hefur henni verið líkt við Joni Mitch- ell, Joan Baez og Sandy Denny, takk fyrir. Fyrsta plata hennar, Alas I Cannot Swim, er nýkomin út. Já, söngvissu ungviðinu er hent miskunnarlaust inn í bresku poppmaskínuna nú um stundir en tím- inn leiðir svo í ljós hvort alvöru listamenn, ef ein- hverjir, séu þarna innan um. Tónafljóð Bretar eru duglegir við að finna poppinu nýjar brautir og það nýjasta eru kornungar stúlkur þar sem meiri áhersla er lögð á getu þeirra til að syngja og spila en útlitið. Að sönnu bylting- arkennd hugsun! Kate Nash Einskonar frummynd nýju stúlknapoppsstefnunnar. Hún er með þykkan Lundúnarhreim, semur lögin sín sjálf og glamrar undir á gítar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.