Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÁTUR sökk í Keflavíkurhöfn í
gærmorgun vegna óveðurs og ann-
ar losnaði frá bryggju í Njarðvík-
urhöfn og rak upp í fjöru. Tjón var
auk þess víða um land og fólk var
varað við að vera á ferðinni á veg-
um landsins.
Fór betur en á horfðist
Víðir Reynisson, deildarstjóri
almannavarnadeildar ríkislög-
reglustjóra, segir að spáð hafi ver-
ið suðaustanátt en veðrið hafi verið
austlægara og það hafi breytt
miklu, tjónið hafi ekki verið eins
mikið.
Talið er að mesta tjónið hafi ver-
ið í Reykjanesbæ í morgunsárið,
þegar báturinn Tjaldanes, sem er
um 180 tonn, losnaði frá bryggju í
Njarðvíkurhöfn og rúmlega 11
tonna báturinn Sunna Líf sökk í
Keflavíkurhöfn. Víðir segir að þeg-
ar veðrið hafi verið sem verst hafi
verið um 40 til 50 sm sjór yfir
bryggjunum.
Víða var tilkynnt um tjón vegna
foks. Til dæmis í Vestmanna-
eyjum, í Mýrdal, upp með Vest-
urlandi og á Ísafirði. Víðir segir að
þó margar tilkynningar hafi borist
hafi ekkert meiriháttar tjón orðið.
Hins vegar hafi björgunarsveitir
staðið í erfiðum verkefnum við erf-
ið skilyrði í marga klukkutíma.
Ekkert ferðaveður
Mjög hvasst var víða um land. Á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum
mældist vindhraði til dæmis 38
metrar á sekúndu klukkan sex í
gærmorgun. Vegagerðin varaði við
stórhríð og óveðri víðs vegar um
landið. Auk þess var varað við flug-
hálku, snjóþekju og skafrenningi.
Skólahald í uppsveitum Borg-
arfjarðar og Árnessýslu féll niður
eða var frestað. Ferðum Herjólfs
var aflýst. Röskun varð á innan-
landsflugi og mikið var um um-
ferðaróhöpp en engin alvarleg
slys, að sögn Víðis.
Byrjað var að kalla út björg-
unarsveitir um klukkan þrjú í
fyrrinótt og mikil læti voru í veðr-
inu næstu klukkutíma, en um há-
degi var samhæfingarstöðinni í
björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í
Reykjavík lokað.
Víða tjón vegna óveðurs
Bátur sökk
í höfninni og
annan rak
á land
Ljósmynd/Víkurfréttir
Á niðurleið Báturinn Sunna Líf KE sökk í Keflavíkurhöfn í gærmorgun vegna óveðurs.
Árvakur/Ómar
Flóð Víða flæddi yfir bryggjur í óveðrinu í gærmorgun. Í Reykjavíkurhöfn stóðust skip og bátar álagið.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
NÝLEGA fór fram sameigin-
legt útboð níu heilbrigðisstofn-
ana á innkaupum lyfja, sem skil-
aði 30,5% lægra verði en ella.
Þátttakendum í sameiginlegum
útboðum hefur fjölgað undanfar-
ið, en engu að síður stóðu níu
sjúkrastofnanir og 26 öldrunar-
stofnanir utan útboðsins að þessu
sinni. Því er kostur á að mun
fleiri taki þátt, en þarfir hverrar
stofnunar hafa áhrif á samstarfs-
möguleikana. Þar sem mikið er
af faglærðu fólki er til dæmis
hægt að kaupa inn lyf sem ekki
eru í neytendapakkningum, en
ekki þar sem færra faglært fólk
er. Þangað þurfa lyf að koma inn-
pökkuð og merkt hverjum ein-
staklingi.
Ljóst er að með stærri útboð-
um eykst áhugi lyfjafyrirtækja á
að gera tilboð. Tilboðum var ein-
ungis tekið í 64 lyfjaflokkum af
90 í útboðinu um daginn, enda
bárust ekki tilboð í öllum flokk-
um, og tvö þeirra sem bárust
gerðu ekki ráð fyrir neinum af-
slætti, skv. upplýsingum frá inn-
kaupasviði Landspítalans. Þetta
ber vitni um lítinn áhuga. Við-
ræður hefjast á næstu dögum við
stofnanir í Danmörku og Noregi
um samstarf, að sögn Bjarna
Arthúrssonar hjá starfshópi um
samstarf stofnana í lyfjainnkaup-
um. Nú þegar eru líkur á að
Færeyingar komi inn í íslensk
útboð, óháð því hvort af breiðara
norrænu samstarfi verður eða
ekki.
Fjórir milljarðar
í lyfjakostnað?
Árið 2005 var samanlagður
lyfjakostnaður heilbrigðisstofn-
ana 3,3 milljarðar króna, þar af
ríflega 2,4 á Landspítala, 540
milljónir hjá hjúkrunarheimilum
og um 30 milljónir hjá heilsu-
gæslu. Á árinu 2007 er áætlað að
lyfjakostnaður Landspítalans,
stærsta kaupandans á landinu,
með 70-90% hlutdeild í mörgum
lyfjaflokkum, hafi verið um 2.040
milljónir vegna S-merktra lyfja
en 1.130 milljónir þess utan. Ef
gert er ráð fyrir svipaðri aukn-
ingu annars staðar var heildar-
lyfjakostnaður stofnana nálægt
fjórum milljörðum 2007.
Almennt eru skiptar skoðanir
meðal viðmælenda um hvaða ár-
angri megi ná með stærri ís-
lenskum útboðum, einhverjir
telja það litlu breyta fyrir Land-
spítalann, en aðallega bæta kjör
annarra stofnana sem koma inn í
útboð með honum. Aðrir telja
það geta breytt miklu fyrir
hann.
Mun fleiri gætu tekið þátt í
sameiginlegum lyfjaútboðum
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
RUSSEL Targ, mágur Bobbys Fischers, er
á Íslandi til að kanna lagalegan rétt ættingja
skákmeistarans í Bandaríkjunum.
Targ var kvæntur eldri systur Fischers,
sem lést árið 1998. Hann kom til Íslands frá
Bandaríkjunum í gærmorgun í þeim tilgangi
að taka þátt í undirbúningi útfarar Fischers,
sem hann hélt að yrði síðar en sem kunnugt
er fór hún fram í kyrrþey í gærmorgun.
Hann segir að sér hafi komið mjög á óvart
hve útför Fischers fór fram í miklum flýti og
augljóst sé að henni hafi verið flýtt miðað við
fregnir sem borist hafi af gangi mála.
Bandaríkjamaðurinn segir að mikilvægt
sé að ganga frá öllum málum á réttan og lög-
legan hátt og því sé hann hingað kominn.
Hann hafi sjálfur engan áhuga á fjár-
munum, sem Fischer kunni að hafa látið eft-
ir sig, en hann beri hins vegar hagsmuni
sona sinna fyrir brjósti. Hann hafi því ráðið
íslenskan lögfræðing til þess að fara yfir
málin, t.d. að fá staðfestingu á því hvort
Fischer hafi verið kvæntur og átt barn. Þeg-
ar Bobby hafi verið í fangelsi í Japan hafi
hann og Miyoko Watai sótt um að fá að
ganga í hjónaband en málið hafi ekki náð
fram að ganga þar sem hann hafi verið í
fangelsi og án vegabréfs. „Ég veit því ekki
hvort þau eru gift,“ segir hann og bætir við
að sama eigi við um sagnir um sjö ára dóttur
Bobbys. Komi annað hvort eða hvort
tveggja í ljós hafi hann ekkert meira hér að
gera.
Kannar laga-
legan rétt ætt-
ingja Fischers
Á LIÐNU hausti voru 46.068 nemendur
skráðir á framhalds- og háskólastigi, fleiri
en nokkru sinni áður. Eru konur fleiri en
karlar á báðum skólastigum. Kemur það
fram í samantekt skólamáladeildar Hag-
stofu Íslands.
Í framhaldsskóla voru skráðir 28.340
nemendur en 17.728 í háskóla. Hefur þeim
síðarnefndu fjölgað um 68,9% frá árinu
2000 en um 42,3% á framhaldsskólastigi. Í
haust stunduðu 80,4% nemenda nám í dag-
skóla, 15,35 voru í fjarnámi og 4,3% í
kvöldskóla. Hefur fækkað í kvöldskóla um
8,1% frá 2003 en í fjarnámi er fjölgunin á
sama tíma 77,9% eða 3.085 nemendur.
Konur eru 53,3% nemenda á framhalds-
skólastigi og 63,1% á háskólastigi. Í Há-
skóla Íslands eru konur í meirihluta í öll-
um deildum nema í verkfræðideild. Þar
eru karlar 70,4% nemenda en konur
29,6%. Mestur er munurinn í hjúkr-
unarfræðideild en þar eru konur 97,0%
nemenda en karlar 3,0%. Í lagadeild hall-
ast hins vegar lítið á með kynjunum, 51,9%
konur, 48,1% karlar.
Konur fleiri í
framhaldsnámi
MÁL Starfsendurhæfingar Norðurlands
(SN) er nú í vinnslu í menntamálaráðu-
neytinu og búist við að niðurstaða fáist
fljótlega. Fram kom í Morgunblaðinu ný-
lega að kostnaður við kennslu er að sliga
starfsemi SN. Soffía Gísladóttir stjórnar-
formaður sagði þá að menntamálaráð-
herra hefði tekið erindi hennar vel fyrir
ári en síðan hefðu viðbrögð frá ráðuneyt-
inu engin verið og málið farið í hnút í með-
förum embættismanna þar á bæ.
Mál SN í vinnslu
í ráðuneytinu