Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 19
heilsa MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 19 x x x Þetta ráð dugði hinsvegar skammt. Í nokkra mánuði hafði auðkennislykillinn legið á sínum stað, en einn góðan veðurdag var hann horfinn og var engu líkara en hann hefði einfaldlega af- efnast. Í það minnsta fannst hvorki tangur né tetur af lyklinum. Nú voru góð ráð dýr. Heimabankinn lokaður og Víkverji þess fullviss að fokdýrt yrði að fá nýjan lykil. x x x Um næstu mánaðamót fór Vík-verji frekar lúpulegur í bank- ann til að borga reikningana sína og hafði síðan orð á því að auðkennislyk- illinn hefði glatast – eiginlega gufað upp. Dularfulla auðkennislykils- hvarfið kom ekki af stað því uppnámi, sem Víkverji hafði búist við, heldur var því tekið af stakri stillingu. Auð- hlaupið reyndist að því að fá nýjan lykil og það endurgjaldslaust. Þessi vinnubrögð voru til fyrirmyndar og þótt Víkverji sé enn ekki orðinn full- komlega sáttur við lykilinn og eigi erfitt með að sjá að hann auki öryggi, er ekki laust við að afstaða hans í garð fyrirbærisins hafi mildast örlít- ið. Víkverja var ekkiskemmt þegar bankarnir tóku upp á því að torvelda um- gengni við heimabanka með útgáfu svokallaðra auðkennislykla. Heima- bankinn hefur valdið byltingu í bankamálum Víkverja, ekki síst vegna þess að með til- komu hans losnaði hann við að standa í biðröð einu sinni í mánuði, en fátt finnst honum jafn hvimleitt og biðraðir. x x x Víkverji vill helstekki þurfa að burðast með mikið af smáhlutum. Iðulega þarf að kalla út björgunarsveitir til að finna hús- og bíllykla sem lagðir hafa verið þar sem síst skyldi. Spurningin Hvar er veskið mitt? er orðin ansi þreytandi á heimilinu. Og nú bættist við auðkenn- islykillinn. x x x Víkverji ákvað strax að þvælastekki um með þennan lykil um borg og bý, heldur geyma hann á vís- um stað á heimilinu. Þetta hafði reyndar í för með sér að heimabank- inn hætti að vera alls staðar þar sem Víkverji var staddur, en niðurstaðan var þó að það væri betra en að týna auðkennislyklinum með reglulegum hætti.    víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíðheyrði fregnir að sunnan: Það er ekki heimska að há, herrunum sem þjóna, lýðræðinu og fötin fá, fyrir milljón króna. Aldrei næ ég uppí slíkt, að því hart þó keppi, hve svakalega rugl er ríkt, í Reykjavíkurhreppi. Og Friðrik Steingrímsson: Á fatakaupum framsóknar fáar búðir græða, því engir bráðum eru þar eftir til að klæða. Þá Kristján Bersi Ólafsson: Framsóknarskipið er sokkið í sæ; samt eru ennþá í flakinu á fáeinum stöðum hálfrotin hræ með hnífasettin í bakinu. Loks Hörður Björgvinsson: Þegar ég byrjaði þessa vísu þá var Bingi við stjórn, en vináttan breyttist í vonda krísu, sem varð að drottningarfórn. Valdagræðgis- er voldugt aflið, vináttu sundur sleit. Af list átti Fischer lokataflið: að læðast austur í sveit. VÍSNAHORNIÐ Enn af borg og Framsókn pebl@mbl.is Margir freista þess umþessar mundir að takaupp nýja siði og breytalífsháttum sínum til hins betra. Tilgangurinn er göfugur, en efndirnar og árangurinn ekki allt- af að sama skapi eins góð. Ein- staklingar og fyrirtæki keppast við að auglýsa þjónustu sína til þess að hjálpa þeim sem ætla að taka sig á. Peningaaustur í alls kyns hjálpar- meðöl á borð við drykki, töflur og fleira verður hjá mörgum stór hluti af útgjöldunum fyrstu mánaði ársins. En sé rétt að málum staðið er vissu- lega hægt að breyta lífsstílnum, að sögn Berthu Maríu Ársælsdóttur, matvæla- og næringarfræðings á Landspítalanum. Svelti ekki líklegt til árangurs Flestar megrunaraðferðir sem lofa árangri á ákveðnu afmörkuðu sviði með lítilli fyrirhöfn eru yfirleitt árangurslitlar, segir Bertha. „Sem dæmi má nefna auglýstan megrun- arkúr sem lofar því að maginn minnki sé farið eftir leiðbein- ingum eða megr- unarkúr sem lof- ar þyngdartapi í svefni sé taflan tekin að kveldi. Of hratt þyngdartap er jafnframt mjög varhugavert og langtímaárangur hefur reynst lítill ef fólk léttist meira en um um hálft til eitt kíló á viku. Skiljanlegt er að miklu meira þyngdartap sé eftir- sóknarvert svo hægt sé að koma lín- unum í lag á sem skemmstum tíma. Þegar hins vegar árangurinn er gerður upp að nokkrum árum liðnum er yfirleitt betra heima setið en af stað farið í sveltið, sem tínir af fólki kílóin mjög hratt án langvarandi ár- angurs.“ Einfaldur matur og hreyfing Það sem flestir átta sig ekki á er sú staðreynd að við borðum of mikið segir Bertha. „Við borðum með öðr- um orðum of margar hitaeiningar miðað við þá orku sem við þurfum að nota í daglegu amstri. Leiðin til þess að leiðrétta það er nokkuð einföld. Við þurfum að borða færri hitaein- ingar eða eyða fleiri hitaeiningum. Ef við veljum að borða færri hita- einingar er nauðsynlegt að einfalda matseðilinn, en borða ætíð á öllum matmálstímum. Þá þurfum við að sleppa því að kaupa tilbúinn mat í búðum eða á matsölustöðum, en velja þess í stað t.d. skyrdós og brauðsneið ásamt ávaxtabita í há- deginu og elda sjálf ferskan fisk eða kjötstykki ásamt kartöflu og græn- meti á kvöldin. Við þetta sparast fjöl- margar hitaeiningar því kokkurinn á veitingastaðnum er ekki að hugsa um hvort máltíðin verði of hitaein- ingarík heldur þarf hún einungis að bragðast vel. Það gerir hún kannski með sykri og rjóma. Ef við veljum að eyða fleiri hita- einingum er aukin hreyfing nauðsyn- leg. Hjá meginþorra fólks er hreyf- ing algjörlega takmörkuð við göngu til og frá bifreiðinni. Í þeirri líkams- ræktarstöðvavæðingu sem hér ríkir hefur margt eldra fólk gleymt því að hægt sé að fara út að ganga eða synda ef ekki er áhugi fyrir stöðv- unum. Við eigum hins vegar okkar tæra loft og frábæru náttúru, sem unnt er að njóta betur með því einu að fara út úr húsi.“ Vöðvar brotna niður og rýrna Mjög mikilvægt er að borða held- ur ekki of lítið. Þegar farið er í ein- hvern af þeim kúrum sem í boði eru er líklegt að ekki sé borðað nóg af hitaeiningum, að sögn Berthu. „Þeg- ar líkaminn fær of fáar hitaeiningar reynir hann að aðlagast þeirri orku sem hann fær. Afleiðingin verður sú að við hættum að byggja upp vöðva, en þeir brotna niður og rýrna vegna næringarskorts. Þegar vöðvarnir minnka þurfa þeir minni orku og við fitnum auðveldar af fáum aukahita- einingum. Í öllu því framboði sem til er af góðum og hollum mat viljum við geta „splæst“ á okkur góðri steik með tilheyrandi meðlæti endrum og sinnum þrátt fyrir að vera í átaki. En ef brennslan er orðin lítil og vöðvarn- ir rýrir höfum við hreinlega ekki „efni á“ þessum aukabita og fitnum, sem fylgir þá í kjölfarið,“ segir Bertha María og bætir að lokum við að það hljóti að vera hverjum kapps- mál að lifa við góða heilsu í líkamlega góðu ástandi með blóðfituna og blóð- þrýstinginn innan eðlilegra marka. „Sú árátta að sækjast eingöngu eftir grönnu vaxtarlagi þarf ekki að þýða betri heilsu. Við eigum miklu fremur að sækjast eftir góðu heilsu- fari með því að rækta líkamann til að auka þol, styrk og úthald, gæta þess að hafa helstu blóðgildi í lagi og borða bæði holla og eðlilega fæðu.“ „Við getum breytt lífsstílnum“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Réttu tökin Hjálparmeðöl í formi megrunardrykkja og taflna verða hjá mörgum stór hluti af útgjöldunum fyrstu mánuði ársins. Skilvirkasta aðferðin til árangurs er hinsvegar sú að borða minna og hreyfa sig meira. Við borðum flest of mikið miðað við þá orku sem daglegt amstur krefst, segir matvæla- og næringarfræðing- urinn Bertha María Ár- sælsdóttir í samtali við Jóhönnu Ingvarsdótt- ur. Til leiðréttingar þarf að borða minna og hreyfa sig meira. Sérfræðingurinn Bertha María Ársælsdóttir. Þetta er fyrsta greinin af nokkrum í greinaflokki, sem er samstarfs- verkefni Matvæla- og næringar- fræðafélags Íslands og Morgun- blaðsins. www.mni.is  Borða á matmálstímum  Borða hollan mat í hæfilegum skömmtum  Nota ávexti sem millibita, ekki ávaxtasafa  Matreiða án mikillar viðbættrar fitu eða sykurs  Hreyfa sig á hverjum degi, í að minnsta kosti 60 mínútur Hvað þarf að gera? frábær verð um veröldina - bókaðu í dag! Kairó Dubai Bankok Manila                      !"     #!$ %   á www.klmiceland.is    "    " &&'   " &       #  $ (  &      !  $ klmiceland.is frá ISK 68.900 frá ISK 85.400 frá ISK 101.500 frá ISK 110.700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.