Morgunblaðið - 23.01.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 23.01.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF              !    !  ! "           !"  # $ % $  &  '  (# )* # $+ ,-.# $+   /  $) $  " $+ % $ * # $+  0 .# 12345 1 ' 6 7 8 !98  %  :.;'  <   # $%&  " = #. -  # $ - > ; # $ -2. #.'2?!   $ !# )   !@ ;  $ ,-.# $+ -  5A. 9  : ;)) $) ' 7 7 $ B $$ # 7 $  "' "(  C.$ ;#' $'C & $+  & ' 79 $ )& *" ! &                                                                                   B 7  + ) $ : #% 7D# + ) E / 1 # = == =   F =  F=    = F       = ==             =   =     F    F = = F F        6  F   F 6 6 6 = =  6 6 FG     G=  G =G G  =G =G G G G  =G=F  G  6 6 F= 6 6 FG     G=  G= =G= FG  G =G  GF GF G  =G  G 6 6 6    =G !9#+  7             F 6  6 6 6  6 6 H ) .$ $)  7 . 7                      =   F    40I+ 40I,     J J 40I- .I      J J H >K $. 5 + L     ! ! J J !:1 HI       ! J J 40I/ 40I'      !  J J ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA íslensku kaup- hallarinnar lækkaði um 0,77% í við- skiptum gærdagsins. Vísitalan hefur þar með lækkað um 16,31% frá ára- mótum. Af hlutabréfum skráðum í kauphöll hækkuðu bréf í Century Aluminum mest í verði, um 4,9%, og í Föroya banka um 1,8%. Bréf í FL Group og Bakkavör hækkuðu um 0,8%. Mesta lækkun var á verði hlutabréfa í Spron, um nærri 7,9% og Exista, um rúm 6,3%. Þá lækkaði verð á bréfum Eik banka um 5,8%. Spron og Exista lækka ● ÍSLENSKA viðskiptamód- elið á nú í vök að verjast og hart er orðið á dalnum hjá ís- lenskum fjár- festum vegna þess að þeir hafa fjármagnað sig að svo miklu leyti með lánum. Þetta er mat Lars Christensen, sérfræðings í greining- ardeild Danske Bank, og haft eftir honum í Jyllandsposten. Blaðið bend- ir á að FL Group hafi glatað tveimur þriðju hlutum af virði sínu á hálfu ári og fjármunirnir flæði þar út. Enda hafi félagið fjármagnað kaup sín á hluta- bréfum að mestu með lánum. Peningarnir flæða út úr FL Group ● EIGENDUR Yahoo-leitarvélarinnar bandarísku eru samkvæmt frétt Wall Street Journal að íhuga upp- sagnir starfsmanna en hjá Yahoo starfa um 14 þúsund manns. Reiknað er með einhverri tilkynn- ingu hinn 29. janúar næstkomandi í tengslum við birtingu uppgjörs af fjórða ársfjórðungi ársins 2007. Heimildir WSJ herma að fyrirtækið þurfi að draga saman í rekstri á vissum sviðum og uppsagnir geti komið niður á nokkur hundruð starfsmönnum. Á móti geti verið þörf fyrir fleiri starfsmenn á öðrum sviðum rekstrarins. Búist við að Yahoo grípi til uppsagna ÍSLENSK fjárfesting ehf., félag í eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar, hefur nýtt sér for- kaupsrétt á 20% hlut í ferðaskrifstof- unni Kilroy Travels International AS, sem þeir keyptu meirihluta í fyr- ir tæpu ári. Íslensk fjárfesting á nú 73% hlut í fyrirtækinu. Straumur Fjárfestingarbanki í Danmörku var ráðgjafi kaupanda og fjármagnaði kaupin. Kaupverð er ekki gefið upp. Kilroy rekur 26 skrif- stofur á Norðurlöndum og í Hol- landi. Aðrir eigendur félagsins eru framkvæmdastjóri, nokkrir lykil- stjórnendur og fyrrum stjórnarfor- maður Kilroy. Stjórnendateymi fé- lagsins er óbreytt eftir kaupin en samkvæmt tilkynningu velti ferða- skrifstofan um 14 milljörðum króna á síðasta ári og starfsmenn eru ríf- lega 300 talsins. Haft er eftir Arnari Þórissyni að ávallt hafi staðið til að nýta þennan kauprétt. Félagið sé í góðum rekstri og fjárhagslega sterkt. Mörg tæki- færi séu til frekari sóknar fyrir Kilroy á markaðnum. Nýttu sér for- kaupsrétt í Kilroy Eiga nú 73% hlut í ferðaskrifstofunni dags, áður en tilkynnt var um vaxta- lækkunina. Til að mynda hafði Nas- daq lækkað um meira en 4% fyrr um daginn. Úrvalsvísitölur OMX á Norður- löndum hækkuðu í gær um allt frá 2,5% upp í 4,2%. Þá lækkaði breska FTSE vísitalan um 2,9%. Birtir í olíunni Farið er að birta til þegar kemur að verði á olíu en það fer nú lækkandi og hefur ekki verið lægra í sex vikur. Hráolíufatið frá Texas kostaði í gær tæpa 90 dollara. Stýrivextir lækkaðir um 0,75% vestanhafs Koma í veg fyrir að enn harðni á dalnum á fjármálamarkaði Reuters Kreppuótti Verkamaður á lyftu við skilti á Times Square í New York þar sem birtar eru fyrirsagnir úr helstu fréttum af fjármálamarkaði. Eftir Soffíu Haraldsdóttur soffia@mbl.is BANKARÁÐ Seðlabanka Banda- ríkjanna tilkynnti í gær að stýrivext- ir yrðu lækkaðir um 0,75 prósentu- stig en það er mesta lækkun síðan í nóvember 1994. Fara stýrivextirnir nú úr því að vera 4,25% í 3,5% en alls hafa þeir nú lækkað um 1,75 pró- sentustig síðan í ágúst þegar skórinn fór að kreppa á fjármálamörkuðum. Seðlabankinn lækkaði jafnframt vexti til lánastofnana í endurhverf- um viðskiptum um 0,75 prósentustig. og verða þeir nú 4%. Með þessari lækkun á að reyna að koma í veg fyrir að enn harðni á dalnum á fjármálamörkuðum. Vaxtaákvörðunardagur átti ekki að vera fyrr en í næstu viku en seðla- bankanum þótti sýnt að grípa þyrfti til ráðstafana strax. Slíkt hefur ekki verið gert síðan í kjölfar hryðju- verkaárásanna á New York haustið 2001. Ákvörðunin hafði umfangsmikil áhrif á hlutabréfamarkaði og meðal annars á Íslandi. Þannig hafði ís- lenska úrvalsvísitalan lækkað um hartnær 3% í gærdag en verulega dró úr eftir að fregnirnar bárust og endaði með 0,6% lækkun. Það sama má segja um helstu vísitölur í Bandaríkjunum og þó svo að Dow Jones- og Nasdaq-vísitölurnar hafi lækkað í gær um 1,1% og 2% þá var lækkunin orðin mun meiri innan Í HNOTSKURN » Óvænt stýrivaxtalækkunSeðlabanka Bandaríkjanna til að stemma stigu við frekari þrengingum á fjármálamarkaði. » Lækkunin hefur ekki veriðmeiri síðan í nóvember 1994. » Fjárfestar víða um heimtóku fregnunum fagnandi, þó ekki eins vel og hefði mátt bú- ast við. En hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum réttu úr kútn- um. BÚAST má við því að erfiðar mark- aðsaðstæður í Kauphöllinni nú í upp- hafi árs verði til þess að seinka þeim nýskráningum sem fyrirhugaðar eru á árinu, að því er segir í Morgun- korni greiningardeildar Glitnis. Þeg- ar hafa nýskráningar Skipta, móð- urfélags Símans, og Landic Property verið boðaðar á árinu og þá hefur Promens boðað komu sína á ís- lenska hlutabréfamarkaðinn. Telur Glitnir ólíklegt að Promens láti slag standa eins og ástandið er á mörk- uðum nú. Þá hafa nokkur félög boðað hlutabréfaútboð á árinu en þar má nefna Kaupþing, FL Group og Mar- el. Á síðasti var nokkuð um nýskrán- ingar í Kauphöll OMX á Íslandi, en Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis var skráður ásamt Century Aluminum og færeysku félögunum Föroya Banka, Eik Banka og Atl- antic Airways. Þá var Actavis, stærsta rekstrarfélagið í Kauphöll- inni afskráð ásamt Mosaic Fashions. Hvað varðar skráningu Skipta fékk félagið, sem kunnugt er, frest einkavæðingarnefndar til að skrá fé- lagið á markað hér á landi til loka mars á þessu ári. Að sögn Péturs Óskarssonar, upplýsingafulltrúa Skipta, gengur undirbúningur skráningar vel og stefnt er að því að fara á markað á tilsettum tíma. Þó sé ljóst að frekari dráttur á kaupum á Telekom Slovenije, sem Skipti á í viðræðum um við þarlenda einka- væðingarnefnd, geri félaginu erfitt fyrir. Er í Morgunkorninu líkum leitt að því að afskráningar verði eitthvað fleiri á þessu ári. Til að mynda kunni að vera að eitthvað af smærri fyr- irtækjum í Kauphöllinni verði yfir- tekin og afskráð á árinu enda verð- myndun oft óvirk og félög ekki háð skráningu í kauphöll til að öðlast að- gengi að fjármagni. Auk þess fylgi skráningu umtalsverður kostnaður og upplýsingaskylda. Þó telur Glitnir líklegt að nýskráningar félaga og hlutafjárútboð verði fleiri en af- skráningar á árinu. Búist við seinkun nýskráninga Skipti stefna á skráningu í vor, en frekari tafir í Slóveníu gætu gert félaginu erfitt fyrir Árvakur/G.Rúnar Skráning Tvö félög, Skipti og Landic, hafa boðað skráningu í ár. STJÓRNENDUR Skipta, móð- urfélags Símans, eiga enn í við- ræðum við einkavæðingarnefnd Slóveníu vegna mögulegra kaupa á 49,13% hlut í símafyrirtækinu Tele- kom Slovenije. Fundur fór fram sl. föstudag, sem Pétur Óskarsson, upplýsinga- fulltrúi Skipta, segir að hafi verið gagnlegur. Boðað var til annars fundar sem fram fer í dag í Slóven- íu. Pétur telur það skýrast öðru- hvorumegin við helgina við hvorn aðilann verði rætt áfram, Skipti eða fjárfestingasjóðina Bain og Axos Capital, sem gerðu sameiginlegt til- boð. Spurður um möguleika Skipta segist Pétur hóflega bjartsýnn fyrir hönd fyrirtækisins en fram hafa komið efasemdir um að staðið verði við söluna í Slóveníu. Enn viðræð- ur í Slóveníu ● ÖÐRU sinni á 14 mánuðum hefur ritstjóri bandaríska blaðsins Los Angeles Times fengið reisupassann. Nú var það James O’Shea sem lenti í útistöðum við útgefandann, David Hiller, vegna áforma um niðurskurð í rekstri. Hafði Hiller sent ritstjóranum tillögur um sjö milljón dollara nið- urskurð, þar af fyrir þrjá milljónir í prentkostnaði. Á móti hafði O’Shea farið fram á aukið fjármagn til rit- stjórnarinnar. LA Times hefur verið í eigu Tribune Co. frá árinu 2000 og áður störfuðu Hiller og O’Shea sam- an hjá Chicago Tribune. Rekinn frá LA Times SEÐLABANKINN í Japan ákvað í gær að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum, en þeir eru aðeins 0,5%. Að mati bankans eru horfur um hagvöxt í Japan enn þá stöðugar þrátt fyrir óróa á alþjóðlegum mörkuðum og hættu á samdrætti í Bandaríkjunum. Í Morgunkorni Glitnis er bent á að hagvöxtur í Japan hafi verið nokkuð undir væntingum að und- anförnu, sem rekja megi til lítilla fjárfestinga á fasteignamarkaði. Japansbanki hafi haldið úti örvandi peningastefnu um árabil, bankinn hafi stefnt að því að glæða hagvöxt það mikið að hægt verði að hækka vexti og minnka vaxtamuninn við útlönd, en án mikils árangurs. Óbreytt hjá Japansbanka SKULDATRYGGINGAÁLAG ís- lensku bankanna hækkaði enn í gær og hefur hækkað hratt frá í október síðastliðnum, ekki síst frá áramótum. Nú liggur álag Kaup- þings í kringum 537 punkta, álag Glitnis er um 417 punktar og Landsbankans um 317 punktar. Þess má geta að í júníbyrjun 2007 var skuldatryggingaálag Kaup- þings 25 punktar, Glitnis 24 punkt- ar og Landsbankans 18 punktar. Í síðustu viku lá álagið á bilinu 260 upp í 415 punkta. Skuldatryggingaálagið er talið einn besti mælikvarðinn á markaðs- kjör banka á alþjóðamörkuðum. Kjörin enn að versna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.