Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 23.01.2008, Qupperneq 25
nú lifum í, verk þessi krefjast hug- leiks og verklegrar hugkvæmni og þá eiginleika hafði Þorbjörg til að bera. Þorbjörg var virkur félagi í Garðyrkjufélagi Íslands. Á hverju ári stóðu félagsmenn fyrir pöntun og kaupum á plöntum frá öðrum löndum. Eftirlætisplöntur hennar voru rósir og þótti Þorbjörgu gam- an að takast á við ræktun þeirra. Allt hefur sinn tíma; að rækta garðinn sinn hefur sinn tíma og að hætta að rækta garðinn sinn hefur líka sinn tíma. Það þurfti Þorbjörg að gera þegar heilsan fór að gefa sig, þeirri ákvörðun fylgdi að hún þurfti að selja húsið sitt líka, sem henni þótti erfitt og hún tókst á við. Eftir lát Jóns Frímanns kom það í minn hlut að aðstoða hana við að komast ferða sinna. Það var auð- sótt, því hún hafði alltaf verið góð við okkur og börnin. Þegar hún fór að kenna sér meins fór læknisferð- um hennar að fjölga. Ég varð þess var að hún hafði fengið slæm tíð- indi en aldrei hafði hún orð á því, hún bar það í hljóði ein. Jóhann Sigurjónsson, skáld frá Laxamýri, frændi Jóns Frímanns, segir í kvæðinu Sólarlag: Sólin ilmar af eldi allan guðslangan daginn faðmar að sér hvert einasta blóm, andar logni yfir sæinn. En þegar kvöldið er komið og kuldinn úr hafinu stígur, þá kastar hún brandi á bláloftsins tjöld og blóðug í logana hnígur. Jóhann notaði mikið fagrar lík- ingar og myndríkar. Sólin var í skáldskap hans mikillar merkingar, móðir hins viðkvæma lífs jarðar- innar. Allar konur eru dætur sól- arinnar og líkar henni að nokkru. Þegar móðir deyr er sem sól hnígi í sæ. Þorbjörg var góð móðir, amma og langamma. Minning hennar „kastar brandi á bláloftsins tjöld“, þótt hún sjálf sé hnigin. Í þann bjarma bláloftsins munum við vandamenn og vinir Þorbjargar lengi horfa okkur til hughreyst- ingar. En enginn getur umflúið það sem koma skal. Mennirnir fæðast, alast upp eins og eilífa smáblómið sem þroskast, tilbiður Guð sinn og deyr. Þegar lífið þrýtur eftir þung veikindi þá er stundin velkomin. Tími til að kveðja þetta jarðneska líf og finna ljósið þar sem sólkerfi himnanna hnýta sinn krans. Þar sem himinninn og vötnin renna saman í eitt. Þorbjörg hefur fengið líkn í þraut. Fyrir eftirlifendur bið ég um Guðs blessun og líkn. Með hlýhug og söknuði kveð ég ástkæra tengdamóður og vin, sem skilur eftir sig kærleika og ást sem þroskast á Guðsríkis braut. Guðmundur Kr. Aðalsteinsson. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þetta er ein af mörgum bænum sem amma mín fór svo oft með fyr- ir mig í æsku og hefur hún fylgt mér æ síðan. Við amma tengdumst sérstökum böndum. Ég er fyrsta ömmustelpan hennar og var sú eina lengi vel. Hún gætti mín á unga aldri og var ég alltaf mikið á heimili ömmu og afa, enda svo heppin að alast upp í næsta ná- grenni. Hverfið hennar, Setbergið og Urriðakotslandið, var hennar sælureitur alla tíð uns hún fann sér íbúð við Hrafnistu. Tobba amma fæddist í Reykholti, sem var henn- ar heimili uns hún var orðin fjög- urra barna móðir en hún missti annað barn sitt, Þorstein, aðeins fjögura mánaða gamlan. Þegar fjórða barnið fæddist fluttu þau amma og afi í nýbyggt húsið sitt. Þar var mikið af fallegum húsgögn- um og hlutum, t.d. gluggalistaverk- ið í stofunni eftir listakonuna Höllu Haraldsdóttur, rós úr gleri. Rósir, blóm og gróður almennt voru hennar stóra áhugamál. Garðinn sinn ræktaði amma mín við hlið afa af ástríðu og fékk bæði hrós og viðurkenningu fyrir. Hún hafði næmt auga fyrir litasamsetningum sem sást vel á heimili hannar og garði. Amma var líka glæsileg kona, bar sig vel og ávallt fín til fara. Minningar mínar um ömmu eru samtvinnaðar æskuminningum mínum því hún var órjúfanlegur hluti af tilveru minni, hún var allt- af nálæg. Á afmælisdögum mínum fannst mér stundin ekki raunveru- leg án ömmu, enda kom hún í hvert sinn, uppábúin þótt tilefnið væri ekki stórt. Stundir í garð- inum og fallega húsinu hennar, lítil hnáta að leik sem uppgötvar um- hverfið. Ferðalögin innanlands og utan sem voru mörg. Má þar nefna Ameríkuferðina skemmtilegu sem ég fór í með þeim ömmu, afa og mömmu, sem á sérstakan stað í hjarta mínu. Danmerkurferðir síð- ustu ára til að heimsækja Stebba bróður og fjölskyldu hans. Sum- arbústaðaferðir, sú síðasta fyrir rúmum fjórum árum þegar við fór- um á ættarmót með fjölskyldu afa og skoðuðum hringveginn. Í þeirri ferð gekk ég með ófæddan son minn, Sigurstein Mána. Afi náði ekki að sjá langafason sinn, hann lést viku eftir að hann fæddist en brosti við fréttina af fæðingu hans. Amma naut samveru Sigursteins Mána, þau voru nánir vinir. Nú í haust fékk snáðinn minn að leggj- ast í rúmið við hlið hennar og þeim leið vel saman, spjölluðu og knús- uðust. Amma Tobba hefur nú fengið hvíldina eftir erfið veikindi. Síðast- liðið sumar greindist hún með ill- vígt krabbamein sem hún tókst á við af æðruleysi og reisn líkt og annan mótvind sem lífið bar henni. Ég þakka ömmu Tobbu allt, hún var svo stór hluti tilveru minnar og sameinaði fjölskyldu sína sem nú hefur misst svo mikið. Ég bið algóðan guð að taka ömmu í faðm sinn og veit að nú er hún hjá afa Jóni, Vilborgu langömmu, Þor- steini syni sínum og öðrum ástvin- um. Elsku mamma, Villi, Jón, pabbi, Magga, Salla, Steina og frændsystkini mín. Guð styrki okkur öll í sorg okkar. Eva Vilborg Guðmundsdóttir. Kveðja frá Kvenfélagi Garðabæjar Í dag kveðjum við hinstu kveðju Þorbjörgu Þorsteinsdóttur, heið- ursfélaga í Kvenfélagi Garða- bæjar. Þorbjörg var gerð að heiðurs- félaga á 50 ára afmæli félagsins árið 2003 fyrir einstakan félagsleg- an áhuga og dugnað. Þorbjörg gekk í Kvenfélag Garðabæjar árið 1956 og þeir voru ekki margir fundirnir, sem hún mætti ekki á í gegnum árin, en það er hverju fé- lagi mikils virði að eiga jafnvirka og dugmikla félaga og Þorbjörg var. Þorbjörg sat um tíma í vara- stjórn félagsins. Hún var mjög ötul við myndatökur jafnt á fund- um sem öðrum viðburðum innan félagsins og hefur félagið notið góðs af því. Nú að leiðarlokum þökkum við Þorbjörgu langt og gott samstarf og vottum ástvinum öllum innilega samúð. Blessuð sé minning Þorbjargar Þorsteinsdóttur. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 25 Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR S. JÚLÍUSSON (á Bakka), síðast til heimilis að Hagaflöt 11, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 25. janúar kl. 14.00. Sigrún Gunnarsdóttir, Gísli V. Jónsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Björgvin Ó. Eyþórsson, Viðar Gunnarsson, Hafdís Sigurþórsdóttir, Daníel Gunnarsson, Sigríður Ingvarsdóttir, Dröfn Gunnarsdóttir, Magnús Þráinsson, Ívar Gunnarsson, Bjarney Pálsdóttir og afabörn. ✝ Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför SIGURJÓNS SIGURÐSSONAR, Læk, Skíðadal. Sérstakar þakkir færum við sjúkraflutninga- mönnum, læknum og hjúkrunarfólki á Dalvík og Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Elínborg Gunnarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hreinn Andrés Hreinsson, Gunnar Sigurjónsson, Guðrún S. Hilmisdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Elena Teuffer, Anna Sólveig Sigurjónsdóttir, Ingibjörn Steingrímsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, systir og mágkona, ÞORBJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR, Boðahlein 21, Garðabæ, áður til heimilis að Einibergi 17, Hafnarfirði, andaðist föstudaginn 11. janúar á líknardeild Landakotsspítala. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 23. janúar kl. 15.00. María Eydís Jónsdóttir, Guðmundur Kr. Aðalsteinsson, Vilberg Þór Jónsson, Margrét Emilsdóttir, Jón Snævar Jónsson, Salbjörg Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Steinþóra og Sigurður Arndal. ✝ Við þökkum öllum þeim fjölmörgu sem hafa sýnt okkur hlýhug og veitt okkur stuðning og styrk við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, tengdasonar, bróður og afa, HILMARS KRISTJÁNSSONAR Sérstakar þakkir til Þórarins Sveinssonar og alls starfsfólks á deildum 11b og 11e á Landspítalanum við Hringbraut. Einnig þakkir til starfsfólksins á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Guð blessi ykkur öll. Valdís Finnbogadóttir, Finnbogi Hilmarsson, Jakobína Kristín Arnljótsdóttir, Hilmar Þór Hilmarsson, Sædís Gunnarsdóttir, Valgerður Hilmarsdóttir, Þorgils Hallgrímsson, Hulda Bjarnadóttir, Þormar Kristjánsson, Stefanía Garðarsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Sigurlaug Þorsteinsdóttir, og afabörn. ✝ Faðir okkar, afi og langafi, SIGURÐUR B. GUÐBRANDSSON, lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi þriðjudaginn 15. janúar. Útför fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 25. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi njóta þess. Ásta Sigurðardóttir, Sigþrúður Sigurðardóttir, Sigríður Helga Sigurðardóttir, barnabörn og langafabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, ÍVAR GEIRSSON, Sóleyjarrima 73, Reykjavík, lést sunnudaginn 20. janúar. Bjarney Ólsen Richardsdóttir, Ólafía Sigurðardóttir, Anna Rós Ívarsdóttir, Steindór Guðmundsson, Ólafía Björk Ívarsdóttir, Ragnar Miguel Herreros, Ívar Örn Ívarsson, Karen Daðadóttir, Ásta Steindórsdóttir, Aron Elí Ragnarsson. Til minningar um góðan dreng. Svo er því farið: Sá er eftir lifir Jakob Hrafn Höskuldsson ✝ Jakob HrafnHöskuldsson fæddist í Reykjavík 1. desember 1988. Hann lést af slysför- um 1. janúar síðast- liðinn og var jarð- sunginn frá Fossvogskirkju 17. janúar. deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Kæra fjölskylda. Við sendum ykkur innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi ykkur. Stjórnendur og starfsfólk Ártúnsskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.