Morgunblaðið - 24.02.2008, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 B 9
Hjúkrunarfræðingur
Heilsugæslan í Salahverfi óskar eftir að ráða
hjúkrunarfræðing í fullt starf.
Um er að ræða fjölbreytt starf við ungbarna-
vernd, skólaheilsugæslu og hjúkrunarmóttöku
á heilsugæslustöð.
Staðan er laus frá 1. ágúst eða eftir nánara
samkomulagi.
Reynsla af heilsugæslu æskileg.
Starfskjör taka mið af kjarasamningi FÍH.
Öllum umsóknum verður svarað.
Upplýsingar gefur:
Hjördís Birgisdóttir,hjúkrunarforstjóri,
Netfang:hjordis@salus.is Sími: 590-3900.
Umsóknarfrestur er til 17. mars.n.k.
Umsókn sendist til: Heilsugæslunnar Salavegi.
B.t. Hjördís Birgisdóttir, hjúkrunarforstjóri.
Salavegi 2,
201 Kópavogi.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Leikskólastjóri
• Starf leikskólastjóra í Hvarfi við Álfkonu-
hvarf er laust til umsóknar.
-
Hvarf er 6 deilda leikskóli fyrir um 120 börn.
Í leikskólum Kópavogs er starfað í samræmi
við metnaðarfulla stefnumótun bæjarins í leik-
skólamálum og námsskrá leikskóla Kópavogs.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
• Víðtæk reynsla af leikskólastarfi
• Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst.
Nánari upplýsingar gefa Sesselja Hauksdóttir,
leikskólafulltrúi og Gerður Guðmundsdóttir, leik-
skólaráðgjafi í síma 570-1600.
Umsóknarfrestur er til 12. mars. Umsóknum skal
skilað til Fræðsluskrifstofu Kópavogs, Fannborg
2. Einnig er hægt að sækja um starfið á job.is.
Laun skv. kjarasamningi FL og Launanefndar
sveitarfélaga.
Hvetjum karla jafnt
sem konur til að sækja
um starfið.
Skartgripaverslun í
Reykjavík
Glæsileg skartgripaverslun við Laugaveg er
að fara að bæta við sig nýjum liðsmanni.
Við leitum að kraftmiklum og heiðarlegum
einstaklingi til að takast á við fjölbreytt og
skemmtilegt starf við sölu og ráðgjöf á skart-
gripum. Leitað er eftir jákvæðum einstaklingi
með framúrskarandi samskiptahæfileika
sem hefur metnað til að standa sig vel í
starfi. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnu-
tíma fyrir réttan aðila.
Í boði er áhugavert starf hjá ört vaxandi og
markaðssæknu fyrirtæki. Mikið er lagt upp
úr skemmtilegu starfsumhverfi og góðri
vinnuaðstöðu.
Umsóknir skal senda til Mbl á box@mbl.is
merktar ,,SK - 21261”.
Umsóknarfrestur er til 3. mars 2008.
Helstu verkefni
● Tæknileg stýring á rekstri kera
● Greining og úrvinnsla framleiðsluupplýsinga
● Gerð verkferla fyrir framleiðsludeild
● Umsjón með stoðkerfum framleiðslunnar
● Virk þátttaka í sameiginlegum verkefnum
milli deilda
Aðrar hæfniskröfur
● Frumkvæði og sjálfstæði í starfsháttum
● Skipulögð vinnubrögð
● Metnaður
● Góð samskipta- og samstarfshæfni
● Góð enskukunnátta, bæði á töluðu og
rituðu máli
Nánari upplýsingar veita Gauti Höskuldsson,
yfirverkfræðingur á framleiðslusviði, og
Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs, í síma 430 1000.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir
14. mars n.k. Þú getur sótt um á vef fyrir-
tækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína
á netfangið umsokn@nordural.is eða póstlagt
umsóknina merkta:
Verkfræðingur á framleiðslusviði.
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
Trúnaður
Við förum með umsókn þína sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Verkfræðingar
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru á fimmta hundrað talsins, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a.
verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafeindavirkjar, rafvirkjar,
vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu.
Vegna aukinna umsvifa óskum við að ráða tvo verkfræðinga
á framleiðslusvið Norðuráls á Grundartanga. Um ný störf er að ræða.
Byggingarstjóri/
Verkstjóri
Spöng ehf óskar eftir að ráða
byggingarstjóra og verkstjóra til starfa
í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu.
Krafist er mikillar reynslu og fagmennsku.
Næg verkefni framundan.
Upplýsingar gefur Jón Bjarni í síma
898 3847.
Umsókn sendist á jbj@spong.is
Starfsfólk óskast á
hótel í Öræfum
Gistiheimilið FROST OG FUNI í Hofi, Öræfum
leitar að starfsmönnum. Um er að ræða störf
við undirbúning morgunverðarhlaðborðs og
kvöldverðar og störf í móttöku og umsjón
með þrifum og öðru sem viðkemur rekstri
gistiheimilisins.
Nauðsynlegt er að viðkomandi skilji og tali
ensku.
Tuttugu og eitt herbergi eru í gistiheimilinu
og það er opið frá miðjum maí fram í byrjun
september.
Vinsamlegast sendið umsókn þar sem fram
koma persónulegar upplýsingar og einnig
upplýsingar um fyrri störf í tölvupósti til
info@frostogfuni.is eða í pósti til Frost og
Funa gistiheimilis, Hverhamar, 810 Hveragerði.
Umsóknarfrestur til 15. mars n.k.
Afgreiðslustarf
L´Occitane er frönsk snyrtivörukeðja sem selur
heimilisilmi, bað- og snyrtivörur úr náttúru-
legum efnum í 800 verslunum í yfir 70 löndum.
Við leitum að duglegum og ábyrgðarfullum
einstaklingum í hlutastörf við afgreiðslu í versl-
unum okkar í Kringlunni og á Laugavegi.
Hæfniskröfur:
Reynsla af afgreiðslu- og sölustörfum.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Skipulagshæfni.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Æskilegt er að viðkomandi sé eldri en 25 ára
og reyklaus og geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt mynd sendist á box@mbl.is
merktar: ,,L´Occitane - 21270 ’’, fyrir 10. mars.
L´OCCITANE
EN PROVENCE,
Dalvegi 16d.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100