Morgunblaðið - 24.02.2008, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Landgræðsla ríkisins
Verkefnastjóri
Landgræðsla gegn loftslagsbreytingum
Landgræðsla ríkisins óskar eftir hugmynda-
ríkum og reyndum starfsmanni til að undirbúa
og stýra verkefnum á sviði landgræðslu
Starfssvið:
Áætlanagerð, stjórn og stefnumörkun á
verkefnum á sviði landgræðslu, m.a. vegna
kolefnisbindingar.
Samskipti við stofnanir, fyrirtæki, samtök og
einstaklinga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Framhaldsnám á sviði landgræðslu, land-
búnaðar, skógræktar eða skyldum greinum.
Reynsla af verkefnastjórnun, áætlanagerð
og upplýsingamiðlun.
Góð samskiptahæfni, færni í mannlegum
samskiptum, frumkvæði, áræðni, vandvirkni
og metnaður til að ná árangri í starfi.
Gott vald á íslensku og ensku.
Færni í öðrum tungumálum æskileg.
Þekking á landfræðilegum upplýsingakerfum
æskileg.
Aðsetur:
Starfsaðstaða er í Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Launakjör:
Samkvæmt kjarasamningi ríkisins.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Guðmundur Halldórsson, rannsóknastjóri,
netfang: gudmundur.halldorsson@land.is
Sími: 488-3000. Óskað er eftir því að verkefna-
stjóri geti hafið fullt starf sem fyrst.
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til 5. mars 2008.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil og öðrum upplýsingum
sem umsækjandi vill koma á framfæri, berist til
Sveins Runólfssonar, landgræðslustjóra,
Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella,
eða á netfangið
gudmundur.halldorsson@land.is
Hótel Búðir
Óskum eftir starfsfólki.
Ekki yngra en 18 ára.
Gestamóttaka
Óskum eftir móttökustjóra, góð tölvu- og
tungumálakunnátta, ásamt samviskusemi og
lipurð í mannlegum samskiptum nauðsynleg.
Reynsla og/eða menntun í ferðamálafræðum
æskileg.
Herbergisþernur
Einungis þrifalegt og duglegt fólk kemur til
greina.
Eldhús
Aðstoð í eldhúsi. Snyrtimennska , áhugi á
matargerð og einhver reynsla skilyrði.
Þjónn
Óskum eftir faglærðum þjóni með góða
þekkingu á matargerð og vínum, tungumála-
kunnátta, skipulags- og stjórnunarhæfni
nauðsynleg.
Framleiðslufólk
Óskum eftir faglærðum þjóni og/eða mann-
eskju með reynslu. Tungumálakunnátta, lipurð í
mannlegum samskiptum, skipulags- og
stjórnunarhæfni nauðsynleg.
Aðstoðarfólk í sal
Starfsreynsla, snyrtimennska, tungumála-
kunnátta og lipurð í mannlegum samskiptum
nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir sendist:
Hótel Búðir
Búðir
356 Snæfellsbæ
Netfang: budir@budir.is
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Tryggingastofnun óskar að ráða í starf framkvæmdastjóra þróunarsviðs.
Meginviðfangsefni sviðsins er að fylgja eftir stefnumörkun stofnunarinnar og halda utan um
rannsóknir, greiningarvinnu og þróunarverkefni. Gæða- og upplýsingaöryggismál falla undir
sviðið. Ytra eftirlit og sérstakt þróunarverkefni í rafrænni stjórnsýslu eru einnig vistuð á sviðinu.
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs er staðgengill forstjóra og ber ábyrgð á starfsemi sviðsins gagn-
vart honum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
Frumkvæði.
Öguð, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Færni í mannlegum samskiptum og reynsla af mannaforráðum.
Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
Metnaður til þess að ná árangri í starfi.
Gott vald á íslenskri tungu og góð tölvukunnátta.
Gott vald á norðurlandatungumáli og ensku,
töluðu sem rituðu máli.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri og Guðjón Skúlason, starfs-
mannastjóri, sími 560 4400.
Senda má upplýsingar rafrænt eða í pósti til starfsmannaþjónustu Tryggingastofnunar,
Laugavegi 114, 150 Reykjavík, tölvupóstfang starf@tr.is. Umsóknarfrestur er til 9. mars 2008.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Stefna Tryggingastofnunar er að vera öflug og traust stofnun, ákvarða og greiða réttar
tryggingabætur, veita gagnlegar upplýsingar og ráðgjöf til viðskiptavina og annast
eftirlit með málefnum sem TR eru falin samkvæmt lögum á faglegan, öruggan og
hagkvæman hátt.
Upplýsingar um Tryggingastofnun má finna á heimasíðu: http://www.tr.is
Forsvarsmenn Capacent hafa skrifað undir samning um
kaup á Institut for Karriereudvikling (IKU) í Danmörku,
að því er segir á vefsíðu fyrirtækisins.
Aukið þjónustuframboð
IKU er eitt af leiðandi fyrirtækjum í Danmörku á
mannauðssviði og sinnir þjónustu á sviði ráðninga og
starfsþróunar. Kaupandinn er Capacent í Danmörku sem
er systurfélag Capacent á Íslandi. Starfsmenn IKU eru
um 60 og höfuðstöðvar félagsins eru í Kaupmannahöfn, en
skrifstofur víða um Danmörku. Félagið hefur verið í örum
vexti undanfarin ár og tvöfaldast á liðnum tveimur árum.
Með þessum kaupum hefur þjónustuframboð Capacent
verið aukið töluvert í Danmörku og félagið hefur náð
verulegri stærð á danska markaðinum. Tekjur IKU á
liðnu ári voru um 700 milljónir króna. Afkoma félagsins er
góð og viðskiptavinahópur félagsins traustur. Núverandi
stjórnendur IKU munu áfram stýra félaginu og verða
hluthafar í Capacent í Danmörku. Starfsmenn Capacent
eru orðnir alls um 340, um 220 í Danmörku og um 120 á
Íslandi. Heildarvelta samstæðunnar árið 2008 er áætluð
um rúmir fimm milljarðar króna.
Þjónusta á þremur sviðum
Capacent veitir þjónustu á þremur sviðum; stjórnunar-
og upplýsingatækniaráðgjöf, markaðsrannsóknum og
ráðningum. IKU er fjórða félagið sem Capacent kaupir í
Danmörku, en hin þrjú voru KPMG Ráðgjöf, Logistik
Gruppen og Epinion, en þau eru öll nú rekin undir merkj-
um Capacent. IKU verður fyrst um sinn rekið undir eigin
nafni, þó vísað verði í Capacent-samstæðuna.
Á vefsíðu Capacent kemur fram að Skúli Gunnsteinns-
son, forstjóri Capacent-samstæðunnar, hafi sagt að kaupin
á IKU séu ákaflega mikilvæg fyrir félagið, þar sem nú
fyrst væri þjónustuframboðið í Danmörku í takt við Capa-
cent-módelið.
„Skúli sagði að samningaferlið hefði verið langt og
strangt, en góður hugur hefði verið í mönnum og allir
lagst á eitt til að klára kaupin.“
Að því er fram kemur á vefsíðunni sagði Skúli að að-
stæður á mörkuðum hefðu ekki sett strik í reikninginn og
megi það að miklu leyti þakka stöðugum tekjugrunni
IKU.
„Kaupverðið er trúnaðarmál, en greitt er fyrir hlutabréf
í IKU með reiðufé, útgáfu nýrra hluta í Capacent í Dan-
mörku og lánsfé. Glitnir aðstoðað við kaupin og fjármagn-
aði þau að hluta. Skúli segir að lokum að verið sé að vinna
að því að styrkja eiginfjárgrunn félagsins til að efla það
og styrkja í frekari útrás. Verið sé að skoða frekari kaup-
tækifæri í Danmörku, einnig ný tækifæri í Svíþjóð og
Þýskalandi. Skúli sagði félagið reiðubúið til að mæta
sveiflum í hagkerfinu og taldi auk þess mikilvægt að
styrkja grunninn með því að taka þátt í viðskiptaumhverfi
sem væri að sumu leyti stöðugra en hérlendis, t.d. á
Norðurlöndum og í Norður-Evrópu.“
Capacent kaupir IKU
Í nýútkominni norrænni skýrslu er fjallað um hvernig skipu-
lag vinnutíma hefur mismunandi félagsleg áhrif. Frá þessu er
skýrt á vefsíðu Vinnueftirlitsins.
Langur vinnudagur tengdist minna jafnvægi milli vinnu og
einkalífs og verri líðanar hjá konum. Slík tengsl voru ekki eins
skýr hjá körlum. Óhefðbundinn vinnutími hafði almennt nei-
kvæð áhrif á jafnvægi milli vinnu og annarra þátta, en geta
starfsmanns til að stjórna nokkru um vinnutíma tengdist
betra jafnvægi og betri líðan. Þó að sveigjanleiki sé almennt
til góðs fylgir honum oft önnur ábyrgð og aðrar skyldur sem
starfsmenn þurfa að bregðast við til þess að mæta sínum per-
sónulegum þörfum. Til að bæta vinnuumhverfi er mikilvægt
að huga að því hvernig vinnutími er skipulagður m.t.t þeirra
starfsmanna sem þar vinna. Skýrsla þessi er tilraun til að
setja á einn stað nokkuð af þeirri þekkingu sem til er á þessu
sviði.
Morgunblaðið/Þorkell
Skipulag vinnutíma og
félagslegar afleiðingar