Morgunblaðið - 24.02.2008, Qupperneq 18
18 B SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Bókari óskast
Tískuhús ZikZak óskar eftir að ráða bókara.
Starfsmaðurinn sér um bókhald ZikZak, allar
afstemmingar og undirbúning fyrir endurskoð-
un. Einnig sér starfsmaðurinn um launa-
útreikninga, uppgjör, vsk, og tilfallandi störf á
skrifstofu.
Góð kunnátta í bókhaldi nauðsynleg.
Starfshlutfall er 50%. Unnið er með Navison
bókhaldskerfi. Góðir samstarfs- og samskipta-
hæfileikar eru mikilvægir og einnig frumkvæði
í starfi. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk.
Umsóknir sendist á Berglindi Ásgeirsdóttur,
zikzakberglind@simnet.is
Staða við
meinafræðideild
Staða við meinafræðideild Sjúkrahússins á
Akureyri er laus til umsóknar.
Um er að ræða 100% afleysingarstöðu í 8
mánuði. Staðan veitist frá 1. apríl nk. eða eftir
samkomulagi.
Starfið felst í undirbúningi og vinnslu vefja-
sýna til smásjárskoðunar.
Umsækjendur skulu hafa menntun í
lífeindafræði, líffræði eða sambærilega mennt-
un og er reynsla af vinnu við meinafræði
æskileg. Lögð er áhersla á frumkvæði,
sjálfstæð vinnubrögð, samskiptahæfileika og
enskukunnáttu.
Næsti yfirmaður er yfirlæknir meinafræði-
deildar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Ísaksdóttir
forstöðulífeindafræðingur í síma 463 0234 eða
tölvupósti gulla@fsa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars .
Umsóknum með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skal skilað, á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem fást á skrifstofu sjúkrahússins eða
www.fsa.is, til Starfsmannaþjónustu
Sjúkrahússins á Akureyri, Eyrarlandsvegi, 600
Akureyri eða á netfang bjarnij@fsa.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf við
FSA er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins. FSA
er reyklaus vinnustaður.
Bakari óskast
Björnsbakarí - vesturbæ óskar eftir að ráða
bakara til starfa. Æskilegt er að viðkomandi
hafi fjölbreytta reynslu og létta lund.
Allar upplýsingar gefur Steinþór Jónsson,
framkvæmdastjóri í síma 663 2268 eða á
netfanginu: steinthorj@hotmail.com
Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar
fyrirspurnir.
Grindavíkurbær
óskar að ráða iðnmenntaðan aðila
á byggingasviði
eða aðila með sambærilega menntun til starfa
á skipulags- og byggingarsviði sveitarfélags-
ins. Um er að ræða framtíðarstarf með 100%
starfshlutfalli.
Helstu verkefni eru yfirferð byggingarleyfis-
teikninga og séruppdrátta, úttektir, uppfærsla á
byggingarstigum, útgáfa byggingarleyfa,
graftrarleyfa, fokheldisvottorða og umsagnir
vegna rekstrarleyfa.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og
þekkingu á skipulags- og byggingarlögum og
byggingarreglugerð og annarri löggjöf á sviði
byggingarmála. Lipurð í mannlegum sam-
skiptum er mikilsverður eiginleiki.
Umsóknarfrestur er til 7. mars 2008,
umsóknum ber að skila á bæjarskrifstofu
Grindavíkur Víkurbraut 62, 240 Grindavík.
Nánari upplýsingar veitir Ingvar Þ. Gunnlaugs-
son forstöðumaður Tæknideildar á
bygg@grindavik.is og síma 420 1100
UMBROT
Nánari upplýsingar fást
hjá Ingu Huld Hermóðsdóttur,
starfsmannastjóra í síma
515 5500 eða í tölvupósti
ingahuld@birtingur.is –
www.birtingur.is
DV óskar eftir umbrotsmanni.
Góð þekking á Adobe
InDesign og gott auga
fyrir útlitshönnun er
nauðsynleg. Reynsla í
Photoshop og
Illustrator er æskileg.
Allt árið 2007 voru fluttar út vörur fyrir 302,8 milljarða króna
en inn fyrir 390,7 milljarða króna fob (422,9 milljarða króna cif),
að því er kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands.
Óhagstæð vöruskipti
Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob-verð-
mæti, sem nam 87,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru
þau óhagstæð um 155,7 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfn-
uðurinn var því tæpum 67,8 milljörðum króna hagstæðari en á
sama tíma árið áður.
Í desembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 25,5 milljarða
króna og inn fyrir 34,8 milljarða króna fob (37,7 milljarða króna
cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob-verðmæti, voru því
óhagstæð um 9,3 milljarða króna. Í desember 2006 voru vöru-
skiptin óhagstæð um tæpa 20,2 milljarða króna á sama gengi.
Útflutningur
Allt árið 2007 var heildarverðmæti vöruútflutnings 64,2 millj-
örðum eða 26,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.
Sjávarafurðir voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra
4,4% (5,4 milljörðum) meira en á sama tíma árið áður. Stærstu
liðir útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök, ferskur fiskur og
saltaður og/eða þurrkaður fiskur. Útflutningur á frystum flök-
um jókst en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystum heil-
um fiski. Útfluttar iðnaðarvörur voru 39% alls útflutnings og
var verðmæti þeirra 29,7% (27,2 milljörðum) meira en árið áð-
ur. Ál vó þyngst í útflutningi iðnaðarvöru. Aukningu útfluttra
iðnaðarvara má helst rekja til aukins útflutnings á áli. Sala á
skipum og flugvélum jókst umtalsvert á árinu.
Innflutningur
Árið 2007 var heildarverðmæti vöruinnflutnings 3,5 millj-
örðum eða tæpu 1% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áð-
ur. Stærstu liðir innflutnings 2007 voru hrá- og rekstrarvara
með 26,2% hlutdeild, fjárfestingarvara með 22,0% hlutdeild og
flutningatæki með 20,3% hlutdeild. Af einstökum liðum varð
mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á flutninga-
tækjum 13,3%, aðallega flugvélum 46,1% (18,1 milljarður) og
fjárfestingavöru 9,4% (8,9 milljarðar) en á móti kom aukning í
innflutningi á hrá- og rekstrarvöru 7,4% (7,0 milljarðar),
neysluvöru 11,8% (6,5 milljarðar) og mat- og drykkjarvöru
13,5% (3,1 milljarður).
Morgunblaðið/ÞÖK
Álframleiðsla Ál vó þyngst í útflutningi iðnaðarvöru í fyrra.
Vöruskiptin við
útlönd í fyrra
Sigur vannst í tveimur málum sem SFR rak fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur, segir í fréttatilkynningu frá BSRB.
„Annars vegar var um að ræða biðlaunamál sem höfðað
var gegn Hjartavernd og hins vegar mál gegn ríkinu um
endurkröfu á ofgreiddum launum til félagsmanns SFR.“
Biðlaunagreiðslur
Í fréttatilkynningunni kemur fram að biðlaunamálið hafi
snúist um það hvort Hjartavernd falli undir ákvæði laga um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins um biðlauna-
greiðslur til starfsmanna sem ráðnir voru til starfa fyrir
1996.
„Stefnanda var sagt upp störfum með þriggja mánaða
uppsagnarfresti vorið 2005 og þegar ráðningu hans lauk var
starf hans lagt niður.“
Ekki ofgreidd laun
Hitt málið varðaði starfsmann skattstjórans í Reykjanes-
umdæmi sem átti í 20% hlutaveikindum en var vinnufær
80%, segir ennfremur í fréttatilkynningunni.
„Hlutaveikindi stefnanda drógust á langinn og gleymdist
að færa inn lokadagsetningu í samræmi við áunninn veik-
indarétt. Mistökin uppgötvuðust ekki fyrr en sex mánuðum
eftir að 273 daga veikindaréttur starfsmannsins hafði runnið
út. Ákvað skattstjórinn að endurkrefja stefnanda um þriggja
mánaða ofgreiðslu. Niðurstaða dómsins var sú að stefnandi
hefði verið í góðri trú um að útreikningar á laununum hefðu
verið réttir og því ekki hægt að kenna honum um að hafa
tekið við ofgreiddum launum.“
Morgunblaðið/Ómar
Dæmt starfs-
mönnum í hag