Morgunblaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 3
Eftir Sigmund Ó. Steinarsson
sos@mbl.is
„Ég er afar stoltur og ánægður með
að við Framarar eru ofarlega á blaði
í öllum keppnisíþróttum og stöndum
okkur vel í efstu deildum og erum
þar að keppa um titla í knattspyrnu
og handknattleik karla og kvenna á
hverju ári.
Þá er starf okkar í yngri flokkum
mjög gott, þar sem unglingar okkar
eru alls taðar í efstu riðlum og
standa sig vel.
Grunnurinn er góður og félagið er
gott, þannig að framtíðin er afar
spennandi. Við erum nú að fara að
hreiðra um okkur á stórglæsilegu
svæði í Úlfarsárdal. Menn geta verið
stoltir af því að fara þangað, en við
megum ekki gleyma því að við erum
með ræturnar í Safamýrinni og við
munum sinna okkar gamla og góða
svæði áfram. Við hættum ekki að
þónusta það fólk sem er hér í Safa-
mýrinni,“ sagði Steinar Þór.
Steinar Þór sagði að það væri ljóst
að Framarar verða á nýja svæðinu
til hundrað ára. „Já, og miklu leng-
ur. Það má segja að í fyrsta skipti í
uppbyggingu á íþróttasvæði í
Reykjavík sé okkar svæði í Úlfars-
árdal hugsað til framtíðar. Það er
ljóst að aðstaðan mun duga hverfinu
til næstu hundrað ára – það verður
ekki þrengt að okkur með neinum
mannvirkjum. Það er nýtt í skipulagi
á íþróttasvæði hér í borginni og við
höfum lagt áherslu á það.
Það er alveg ljóst að við komum til
með að starfa á tveimur svæðum á
næstu árum – í Safamýrinni og í Úlf-
arsárdal. Við munum kappkosta að
hlúa sem mest og best að æsku
borgarinnar í hverfunum okkar og
gefa æskunni kost á því að njóta
leiks af ánægju,“ sagði Steinar Þór.
Þegar Steinar Þór var spurður
hvort það kostaði ekki fjölmennara
starfslið að vera með starfssemi á
tveimur stöðum – starfsmenn sem
vinna mikið í sjálfboðavinnu, sagði
hann að Framarar hafi alltaf verið
heppnir – átt frábært fólk.
„Starfsemi okkar hefur breyst
mikið, en við eigum sem betur fer
stóran hóp af frábæru fólki sem mun
leggja hönd á plóg til að gera veg fé-
lagsins sem glæsilegastan.
Rekstur félagsins er að breytast
mikið. Aðalstjórn Fram er að koma
meira og meira inn í starfið og hefur
tekið að sér verkefni sem deildirnar
hafa séð um áður. Við höfum verið að
ráða starfsfólk til starfa – eins og
bókara, framkvæmdastjóra, íþrótta-
stjóra og íþróttafulltrúa. Við erum í
vaxandi mæli að taka að okkur ým-
isleg störf til að halda sem best utan
um félagssstarfið.
Með þessu fyrirkomulagi geta
sjálfboðar okkar í deildunum sinnt
því sem er skemmtilegt. Sjá um
skemmtilegu hlutina og hlúa að
krökkunum okkar sem best. Sjá um
framtíðarþróun og uppbyggingu
deildanna án þess að hafa stöðugt
áhyggjur af peningum. Það erum við
í aðalstjórninni sem eigum að taka á
okkur þær áhyggjur, ef þær eru til
staðar. Við tökum að okkur ýmisleg
störf sem hafa oft vilja hlaðast á
sjálfboðaliðana og gert þeim stund-
um lífið leitt. Við höfum tekið þá
sterku stefnumótum á hundrað ára
afmælisári okkar og ráðið fólk til
starfa til að létta störf sjálboðalið-
anna.
Það er ekki bara áhugi hér í Safa-
mýrinni. Áhuginn er mikill hjá fólk-
inu í Grafarholtinu og Úlfarsfelli –
margir tilbúnir að starfa með okkur
á fullum krafti í uppbyggingunni í
Úlfarsárdal. Já, þar er bjart fram-
undan hjá Fram, þó að það hafi háð
félaginu nokkuð að við séum að reka
tvö hverfisfélög samtímis. Við erum
með tvö sett af öllu – tvo þjálfara í
öllum flokkum. Það hefur stundum
verið erfitt, þar sem það er langt á
milli svæðanna, en við munum leysa
það farsællega eins og annað.
Það er mjög bjart fram undan hjá
Fram og mjög góð stemmning í fé-
laginu og frábær andi. Það eru
margir sem eru tilbúnir að leggja
hönd á plóginn og gefa Fram af sín-
um frítímum,“ sagði Steinar Þór,
sem hvetur alla Framara til að halda
í heiðri á afmælisárinu söng Ingi-
marskórsins, sem kenndur var við
Ingimar Brynjólfsson og sunginn
var eftir sigurleik Fram gegn KR á
Melavellinum á upphafsdögum ís-
lenskrar knattspyrnu fyrir tæplega
hundrað árum: „Við skulum halda
sigurhátíð snjalla!“
Steinar Þór Guðgeirsson, formaður Knattspyrnufélagsins Fram, segir að
það sé bjart fram undan hjá félaginu og æsku þess á 100 ára afmælisárinu
„Við skulum halda
sigurhátíð snjalla!“
Ljósmynd/Jóhann G. Kristinsson
Aðalstjórn Fram á 100 ára afmælinu. Fremri röð frá vinstri: Kristinn Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri,
Pétur Óskarsson, Ragnar Lárus Kristjánsson, Stefán Hilmarsson, gjaldkeri, Kjartan Þór Ragnarsson, vara-
formaður og Þór Björnsson, íþróttafulltrúi. Fremri röð: Ívar Guðjónsson, Skúli Helgason, Steinar Þór Guð-
geirsson og Þóra Guðmundsdóttir, ritari.
„Á þessum sögulegu tímamótum
Fram hugsum við fyrst og fremst
um framtíðina. Þó að saga félagsins
sé glæsileg – þar sem margir sætir
sigrar hafa unnist og margir stór-
glæsilegir félagsmenn hafa komið
fram – er það framtíðin sem við
hugsum um og einbeitum okkur að.
Eftir að Framarar hafa verið á
ýmsu flakki í hundrað ár um borg-
ina, þá er nú komið að þeim tíma-
punkti að við höfum fengið úthlutað
glæsilegu íþróttasvæði í Úlfarsár-
dal og á þessum tímamótum förum
við að hugsa til næstu hundrað ára.
Félagsmenn þurfa ekki að kvíða,
því að félagið býr nú afar vel,“ seg-
ir Steinar Þór Guðgeirsson, for-
maður Knattspyrnufélagsins Fram,
sem heldur upp á 100 ára afmæli
sitt í dag og út allt árið.
FYRSTU búningar Fram voru hvítar peysur og hvítar buxur. Blár borði
var þvert yfir brjóstið – með nafninu FRAM. Breytingar voru gerðar á bún-
ingnum 1911 er byrjað var að leika í albláum peysum án kraga, með reim-
um í hálsmálið. Þá þótti fínt að hafa peysuna utan yfir buxurnar, en sveita-
legt að gyrða peysurnar niður í brók.
Síðan kom hvítur kragi á peysuna og hvítar líningar á ermar – hvers
vegna? „Það var eitt sinn að haustlagi í kalsaveðri að við áttum að keppa.
Ég hafði vit á að klæða mig vel og átti hvíta peysu með kraga og löngum
ermum. Fór ég í þessa peysu innan undir og síðan í bláu peysuna. Lét hvíta
kragann koma utan yfir og braut upp ermarnar á þeirri hvítu yfir þá bláu.
Þetta þótti fallegt og var síðan tekið upp,“ sagði Pétur J. Hoffmann Magn-
ússon, fyrrverandi leikmaður og formaður Fram.
Frampiltar höfðu orð á sér fyrir að vera heitir þjóðernis- og sjálfstæð-
issinnar, og sú skýring var almennt gefin á félagsbúningi þeirra og merki
að hvort tveggja væri undir áhrifum frá íslenska flagginu sem notað var á
þessum tíma; blátt með hvítum krossi, sem Danir neituðu að samþykkja.
Hvítt og blátt
FLJÓTLEGA fer mynd að koma á
nýtt framtíðarfélagssvæði Fram í
Úlfarsárdal við Grafarholt sem verð-
ur hið glæsilegasta í fögru umhverfi
við Úlfarsá, eins og sést hér á teikn-
ingunni til hliðar. Rauðu punktarnir
sýna fornminjar, græna svæðið með
gulum línum við ána er hverfisvernd-
arsvæði og er opið eins og annað
grænt svæði og á þeim eru tjarnir.
Framsvæðið er innan punktalínu.
Svæðin sunnan árinnar sem eru
merkt Í eru íþróttavellir. Gönguleiðir
eru gular, reiðleiðir gráar (mjóar) en
vegir eru gráir, breiðir.
Framsvæðið, sem fer undir
íþróttamannvirki, grasvelli og fleira,
er um 100.000 ferm. og síðan til við-
bótar um 10.000 ferm. undir bílastæði
og annað en þess má geta til gamans
að allt svæðið í Safamýrinni er um
4.000 fm.
Á svæðinu er fullbúið íþróttamann-
virki (rauða húsið á teikningunni)
með tveimur handknattleiksvöllum
og aðstöðu fyrir áhorfendur. Húsið er
um 60-90% stærra en íþróttahúsið og
félagsaðstaðan í Safamýri. 8 grasæf-
ingavellir í fullri stærð verða á svæð-
inu. Þá verður á svæðinu fullbúinn
keppnisvöllur – völlurinn fyrir sunn-
an íþróttahúsið, með áhorf-
endastúkum með báðum hliðum vall-
arins og möguleika á stúku allan
hringinn. Vestan við völlinn verður
fullbúinn gervigrasvöllur. Samtals
verða á svæðinu 10 fullbúnir vellir í
fullri stærð.
Á framtíðarsvæði austan við
íþróttahúsið er gert ráð fyrir tveimur
völlum til viðbótar, annar verður í
knatthúsi.
Helstu atriði varðandi umfang,
stærðir og framkvæmdaáætlun eru:
Fjölnota íþróttamannvirki Fram.
Felur í sér fjölnota íþróttahús þar
sem hægt er að koma fyrir tveimur
handknattleiksvöllum í fullri stærð,
þversum. Með áfastri áhorf-
endaaðstöðu fyrir aðalleikvang og
búningsklefum undir til viðbótar við
aðra búningsklefa í mannvirkinu.
Þrír minni íþróttasalir verða í kjall-
ara mannvirkisins. Félags- og þjón-
ustuaðstaða fyrir starfsfólk, þjálfara
og félagsmenn ásamt samkomusal og
fundaraðstöðu. Anddyri, verslun,
þjónusta, áhaldageymslur, geymslur,
líkamsræktarsalur o.s.frv. Gert ráð
fyrir að íþróttasalurinn verði tekinn í
notkun fyrri hluta 2010 og fjölnota
mannvirkið fullbúið seinni hluta árs
2010. Lóðin ca 15.000 ferm. að stærð.
Aðalleikvangur Fram fullnægir öll-
um kröfum leyfiskerfis KSÍ um
mannvirki til keppni í efstu deild
karla í knattspyrnu með áhorf-
endastúku undir sama þaki og fjöl-
nota íþróttamannvirki og með hinni
langhlið vallarsins. Við enda vallar
beggja vegna verði möguleiki á áhorf-
endastæðum í framtíðinni. Leikið
verði á vellinum keppnistímabilið
2011. Gervigrasvöllur. Fullnægir öll-
um þörfum skv. núverandi stöðlum
varðandi grasið, flóðljós, stærð
o.s.frv. Tekið í notkun 2009.
Grassvæði við aðalleikvang er sam-
tals um 12.000 ferm. – rúmar tvo
knattspyrnuvelli í fullri stærð. Tekið í
notkun 2010.
Fjölnota grasæfingavöllur, sem er
fyrir vestan aðalsvæðið á teikning-
unni. Stærð 12.680 ferm. – rúmlega
tveir knattspyrnuvellir í fullri stærð.
Tekið í notkun 2011.
Grasæfingavellir, suðaustur af að-
alsvæði á teikningunni – rúmar þrjá
knattspyrnuvelli í fullri stærð. Tekið í
notkun 2010. Þjónustuhús við grasæf-
ingavelli. Áhaldageymsla, búnings-
klefar, þjónusta o.fl. Samtals 150 fer-
metrar. Tekið í notkun 2011.
Bílastæði, lóðafrágangur, trjá-
gróður, gönguleiðir, hjólaleiðir, und-
irgöng, svæðið afgirt o.fl. Allur frá-
gangur kláraður í lok árs 2011 og í
upphafi 2012 verður allt svæðið
fullfrágengið. Knatthús o.fl. er í
skipulagi svæðisins og er gert ráð
fyrir framtíðar þróunarsvæði íþrótta-
svæðisins með knatthúsi og æf-
ingasvæði. Stærð svæðisins um
10.000 ferm., gert ráð fyrir knatthúsi,
ca 6.000 ferm., og æfingaaðstöðu.
Tekið í notkun eftir 2012.
Framsvæðið í
Úlfarsárdal