Morgunblaðið - 09.05.2008, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Helga S. Jóhannesdóttir frá Stjörn-
unni
Kristín Ýr Bjarnadóttir, byrjuð aft-
ur
Randi S. Wardum frá KÍ Klakksvík
Sif Rykær frá SönderjyskE
Linda Rós Þorláksdóttir í Keflavík
Lánuð út tímabilið 2008.
Nína Ósk Kristinsdóttir, hætt
Thelma Ýr Gylfadóttir í Fylki
Guðbjörg Gunnarsdóttir og
Guðný B. Óðinsdóttir leika líklega
ekkert í sumar vegna meiðsla.
*+
Stofnað: 1911.
Heimavöllur: Vodafonevöllurinn að
Hlíðarenda.
Aðsetur félags: Hlíðarendi v/
Laufásveg, 101 Reykjavík.
Sími: 414-8000.
Fax: 414-8010.
Netfang: valur@valur.is.
Heimasíða: www.valur.is
Framkvæmdastjóri: Ótthar
Edvardsson.
Þjálfarar: Elísabet Gunnarsdóttir
og Freyr Alexandersson.
Liðsstjóri: Ragnheiður Jónsdóttir.
Sjúkraþjálfari: Jóhannes Már Mar-
teinsson.
Formaður knattspyrnudeildar:
Edvard Börkur Edvardsson.
Íslandsmeistari: (7) 1978, 1986,
1988, 1989, 2004, 2006, 2007.
Bikarmeistari: (10) 1984, 1985,
1986, 1987, 1988, 1990, 1995, 2001,
2003, 2006.
Deildabikarmeistari: (3) 2003, 2005,
2007.
Knattspyrnufélagið Valur
Eftir Stefán Stefánsson
stes@mbl.is
„Við byrjuðum að æfa í janúar því
tímabilið okkar var langt, spiluðum
fram í október í Evrópukeppninni svo
við tókum góða pásu. Liðið hefur æft
eins og síðustu þrjú ár, en samt gefið
frekar í ef eitthvað er. Það hefur verið
mikið af landsliðsæfingum, mót í
Portúgal og núna er landsliðið í Finn-
landi svo þetta er meira púsluspil en
áður. Evrópukeppnin gerði að verkum
að tímabilið var mjög langt og veturinn
er orðinn mjög erfiður. Það eru svo
mörg mót, landsliðmenn okkar hafa
spilað tuttugu leiki að undanförnu og
það er spurning hvort þetta er ekki of
mikið, er held ég meira en þekkist.
Ég held að álagið hafi verið of mikið
á landsliðsmönnum okkar en það er
ekkert við landsliðið að sakast frekar
en okkur, það þyrfti bara að samræma
þetta betur en ég held að þetta líti vel
út,“ bætti Elísabet við og hefur ekki
farið varhluta af meiðslum.
Meiðsli leikmanna eru mikil
„Undirbúningurinn hefur verið góð-
ur, en einnig mjög erfiður. Við höfum
misst leikmenn í meiðsli og erum að
jafna okkur á því. Guðbjörg Gunnars-
dóttir markmaður sleit hásin og Guðný
Björk Óðinsdóttir krossbönd og svo
hafa Sif Atladóttir og Málfríður Erna
Sigurðardóttir verið frá í tvo mánuði.
Þetta eru allt leikmenn í landsliðsk-
lassa svo við þurfum að tjasla hópnum
saman fyrir mótið, það skiptir gríðar-
legu máli því það var mikið áfall að
missa þessa leikmenn og erfitt að tak-
ast á við það. Við fengum þá til liðs við
okkur markvörð úr færeyska landslið-
inu og svo danskan leikmann á miðj-
una, við vitum ekki mikið um hann en
mér líst vel á.“ Elísabet má þó aftur
búast við góðri törn með Evrópu-
keppni en kvíðir engu. „Við setjum
sjálfar pressu á okkur fyrir Evrópu-
keppnina en setjum hana á ís fram til
hausts, hún byrjar ekki fyrr en í sept-
ember og við setjum stefnuna á að ná
aftur þangað. Að sjálfsögðu ætlum við
inn í Íslandsmótið til að halda titlinum
en munum einnig gera atlögu að öllum
öðrum sem eru í boði. Ég finn samt
ekki fyrir neinni pressu frá félaginu,
ekkert meira en áður en Valur er lið
sem vill alltaf vinna titil og það hefur
ekkert breyst. Mótið í fyrra var jafnt
fram undir það síðasta og algert einvígi
milli Vals og KR. Það má reikna með
að það gerist aftur en Breiðablik mun
kom sterkara til leiks og Afturelding
mun koma á óvart og verður í efri hluta
deildarinnar. Við höfum sett okkur
markmið, þau eru fyrir löngu klár en
við höldum þeim fyrir okkur. Auðvitað
er alltaf spenna og pressa þegar maður
er meistari en það er einmitt þess
vegna sem maður er í þessu, maður vill
fá pressuna, hún er skemmtileg. Við
erum spennt að komast á nýja Vals-
völlinn en það verður ekki strax því við
spilum fyrsta leikinn í Egilshöll. Við
vonum að nýi völlurinn, með glæsilegri
aðstöðu fyrir áhorfendur og fjölmiðla,
færi okkur lukku,“ bætti þjálfarinn við.
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Íslands-
meistara Vals, hefur ekki fengið
nægilegt næði til að undirbúa lið sitt
Alltaf spenna
og pressa
þegar maður
er meistari
„SUMARIÐ leggst vel í mig,“ sagði
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
Valskvenna, um Íslandsmótið í
knattspyrnu sem er að hefjast. Þar
hafa hún og lærisveinar titil að
verja. Elísabet segir að þátttaka
landsliðsins í Evrópukeppni og fjöl-
mörg verkefni landsliða að und-
anförnu hafi haft áhrif á undirbún-
ing sinn með Valsliðið.
Morgunblaðið/Ómar
Markadrottning Margét Lára Viðarsdóttir, markahrókur Vals, er hér á ferðinni með knöttinn í leik gegn Breiðabliki.
!
"# $ %&
' (#
!)
* $
'
+%
*
,!
-
+
.
,+ /
* .,0
1232
1241
1233
1245
1221
1226
1245
1244
1226
1227
1228
1249
124:
1221
1221
56
179
11:
47
9
:
54
6
7
6
6
4:
56
6
8
13
53
:6
82
1
6
4
6
6
6
6
1:8
87
6
6
54
1:
37
8:
6
6
7
6
6
6
6
:6
6
6
6
3
5
14
75
5
18
6
1
19
77
;(
,' ./0
,+<% ,
(= $
>% *+
;
2
71
75
74
1 '-
,.
9
3
4
16
1:
13
12
78
7:
79
73
,0/23-
,.
7
8
:
5
11
14
76
''-
,.
?)
1245
1249
1244
28
6
:
6
6
6
2
2
6
*
@
&
+&(
+
>>
' < ,(,
,+ (A+
*,+
1245
124:
124:
1248
1249
1244
1244
97
9:
166
111
:7
83
:
14
1
15
6
:
11
6
4
B
%
C
D
Morgunblaðið/ÞÖK
Á æfingu Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Valsliðsins, stjórnar sínum stúlkum.
SJÚKRASAGA Kristínar Ýrar Bjarnadóttur er löng. Hún spilaði síð-
ast fyrir Val 2004. Þá lenti hún í bílslysi og eftir aðgerð gekk sárum
illa að gróa og þegar hún fékk blóðtappa í kjölfarið þurfti hún að
hægja á sér. „Það er erfitt að koma sér í gang. Ég hef meiðst oftar en
hinar stúlkurnar, en held að ég sé tilbúin núna. Reyndar tognaði ég í
leik um daginn – þegar hraðinn var of mikill, en ég er klár,“ sagði
Kristín Ýr.
Hún reyndi að byrja með Val keppnistímabilið 2005, en líkaminn
var ekki tilbúinn. „Ég reyndi en gat ekkert gert út af bakinu. Fór þá í
Aftureldingu, þar sem ég vildi vita hvort það gengi að spila í neðri
deild og það gekk eftir en svo fékk ég blóðtappa upp úr þurru. Ég
ákvað samt að koma aftur í besta liðið. Ég hef farið eins hratt af stað
og líkaminn leyfir, en hann ræður að mestu hversu hratt er farið og
leyfir bara ákveðið. Hugurinn er til staðar, hefur verið öll þessi ár og
var reyndar tilbúinn langt á undan líkamanum.“
Ljósmynd/Stefán Stefánsson
Óheppin Það hefur mikið gengið á hjá Kristínu Ýr undanfarin ár.
Kristín Ýr er
tilbúin í slaginn