Morgunblaðið - 09.05.2008, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Sigurður segir að það taki tíma að
byggja upp góð lið í kvennabolt-
anum en hann fagnar því að fleiri
lið í næstefstu deild kvenna séu að
ná þeim styrk að geta veitt þeim
liðum sem eru í neðri hluta Lands-
bankadeildarinnar keppni. „Það er
ekki mikill munur á efstu liðunum í
1. deild og neðstu liðunum í Lands-
bankadeildinni. Ég fagna því að
það sé búið að fjölga í deildinni og
það verður spennandi að sjá hvern-
ig þetta kemur út.“ Í sumar verða
10 lið í deildinni en á síðustu leiktíð
voru þau 9. Að mati landsliðsþjálf-
arans er of mikið bil á milli bestu
liða landsins og þeirra sem verða
um miðbik eða neðri hluta deild-
arinnar.
„KR og Valur eru með lang-
sterkustu liðin. Þar eru flestir
landsliðsleikmennirnir og í þeim
liðum er mesta breiddin. Ég hef
haft gaman af því að fylgjast með
liði Breiðabliks úr Kópavogi. Þar
eru margir ungir og efnilegir leik-
menn sem eru stöðugt að bæta sig.
Það lið er á uppleið og virka betri
en í fyrra í þeim leikjum sem ég
hef séð. Breiðablik er eina liðið
sem ég tel að geti tekið stig af Val
og KR í deildinni í sumar. Þriðja
sætið verður hlutskipti Breiða-
bliks.“
Úrslitakeppni eða ekki?
Ójafnir leikir hafa einkennt
Landsbankadeild kvenna í gegnum
tíðina og er landsliðsþjálfarinn á
þeirri skoðun að það gæti hjálpað
íslenskri kvennaknattspyrnu að tví-
skipta efstu deild kvenna um mitt
keppnistímabil. „Þessi hugmynd er
ekki ný af nálinni. Það hefur verið
rætt að setja 4 efstu liðin í sér-
staka „úrslitakeppni“ þegar keppn-
istímabilið er hálfnað. Og láta liðin
í neðri hlutanum leika um fallið.
Þegar ég skoða þessa hluti með
gleraugum landsliðsþjálfarans
finnst mér að bestu knattspyrnulið
landsins þyrftu að mætast oftar.
Það er of mikið um leiki þar sem
að hraðinn og áreitið er ekki nógu
mikið fyrir bestu leikmenn lands-
ins. Með slíku keppnisfyrirkomu-
lagi yrðu líka fleiri jafnir leikir og
það er gott fyrir deildina.“
Sigurður nefnir sem dæmi að
hann hafi lent í ákveðnum vand-
ræðum með vængmenn íslenska
landsliðsins og það vandamál mætti
rekja til deildarkeppninnar.
„Þeir leikmenn sem eru væng-
menn þurfa oftast ekki að hugsa
mikið um varnarleikinn hjá sínum
liðum. Þær þurfa því ekki að spila
vörn. Því miður fá bestu leikmenn
landsins ekki nógu miklar áskor-
anir í mjög mörgum leikjum á
keppnistímabilinu. Og þau lið sem
eru í neðri hlutanum eru oftar en
ekki að leika á þeim hraða sem
leikmenn þurfa í dag til þess að
komast í A-landslið.“
Með boltann á tánum
Sigurður var staddur á Gar-
dermoen-flugvellinum við Osló í
gær þegar viðtalið var tekið og þar
voru sumir af landsliðsleikmönnum
Íslands með boltann á tánum í
flugstöðinni. Hann segir að þeir
leikmenn sem æfi sig mest og sýni
því áhuga að gera aðeins meira en
hinir nái langt. „Sumir vilja meina
það að konur leiki sér ekki í fót-
bolta fyrir utan æfingar og það sé
stórt vandamál við kvennaboltann.
Ég hef séð aðra hlið á þessu sem
landsliðsþjálfari. Leikmenn
kvennalandsliðsins eru frekar of
mikið að leika sér í fótbolta fyrir
utan æfingar og keppni. Ég hef
stundum þurft að draga aðeins úr
þessum leik hjá þeim. Þær eru með
boltann á tánum á ólíklegustu stöð-
um, í flugstöðvum og hótelgöngum.
Það er með þetta eins og allt ann-
að. Þeir sem æfa mest verða best-
ir.“
Það verður töluverður fjöldi af
erlendum leikmönnum í liðunum 10
í Landsbankadeildinni en landsliðs-
þjálfarinn hefur ekki stórar
áhyggjur af því. „Að sjálfsögðu vil
ég sem landsliðsþjálfari að sem
flestir íslenskir leikmenn nái góð-
um árangri í Landsbankadeildinni.
Ég skil alveg að sum lið þurfa að fá
liðsstyrk erlendis frá. Það er metn-
aður hjá liðunum að vera í efstu
deild og ef það vantar leikmenn í
vissar stöður þarf oftar en ekki að
leita erlendis að þeim leikmönn-
um.“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari segir að bestu leikmenn Landsbanka-
deildarinnar þurfi öflugri samkeppni Breiðablik gæti stolið stigum af Val og KR
„Valur og KR eru í
sérflokki í deildinni“
„Það verða tveir „bikarúrslita-
leikir“ í Landsbankadeild kvenna
þar sem úrslitin um Íslandsmeist-
aratitilinn munu ráðast. KR og Val-
ur eru með yfirburðalið í deildinni
og ég sé aðeins eitt lið sem gæti tek-
ið stig af þessum tveimur liðum,
það er Breiðablik,“ segir Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, en hann
fagnar því að efsta deild kvenna sé
nú skipuð 10 liðum.
Ljósmynd/Carlos Brito
Fögnuður Íslensku landsliðskonurnar fagna marki á Algarvemótinu. Þær þyrftu að fá meiri samkeppni á Íslandsmótinu, að mati landsliðsþjálfarans.
EDDA Garð-
arsdóttir úr
KR er leikja-
hæst af núver-
andi leik-
mönnum
Lands-
bankadeildar
kvenna en hún
hefur spilað
145 leiki í efstu
deild. Hana
skortir þó enn marga leiki til að
komast í hóp þeirra leikjahæstu
frá upphafi.
Sigurlín Jónsdóttir á leikja-
metið í deildinni en hún spilaði
233 leiki fyrir ÍA og KR.
Þessar tíu hafa spilað flesta leiki
í efstu deild:
233 Sigurlín Jónsdóttir
220 Auður Skúladóttir
215 Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
202 Olga Færseth
193 Helena Ólafsdóttir
184 Ragnheiður Víkingsdóttir
178 Laufey Sigurðardóttir
178 Sigrún Óttarsdóttir
172 Kristrún L. Daðadóttir
169 Steinunn H. Jónsdóttir
Sigurlín
á leikja-
metið
Edda
Garðarsdóttir
OLGA Fær-
seth, sem nú
hefur lagt
skóna á hilluna
eftir langan og
glæsilegan fer-
il, er lang-
markahæsti
leikmaður
efstu deildar
kvenna frá
upphafi.
Olga hefur skorað 265 mörk í
202 leikjum fyrir KR, ÍBV og
Breiðablik í deildinni. Þar að auki
gerði hún 54 mörk í aðeins 12
leikjum fyrir Keflavík í næstefstu
deild þegar hún var 16 ára gömul.
Olga er með 111 mörk í forskot
á næstu leikmenn og ljóst að
markametið mun standa lengi.
Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val
þarf 122 mörk til að ná henni.
Þessar tíu hafa skorað flest
mörk í deildinni frá upphafi:
265 Olga Færseth
154 Ásta B. Gunnlaugsdóttir
154 Helena Ólafsdóttir
143 Margrét Lára Viðarsdóttir
138 Laufey Sigurðardóttir
135 Ásthildur Helgadóttir
120 Hrefna Jóhannesdóttir
98 Ásgerður H. Ingibergsdóttir
91 Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
87 Kristrún L. Daðadóttir
Olga Fær-
seth er lang-
markahæst
Olga
Færseth
TVEIR leikir í fyrstu umferð
Landsbankadeildar kvenna
verða spilaðir innanhúss. Opn-
unarleikurinn, milli Vals og
Þórs/KA á mánudaginn kemur,
annan í hvítasunnu, fer fram í
Egilshöllinni þar sem grasvöll-
urinn að Hlíðarenda er ekki
tilbúinn.
Leikur HK/Víkings og
Stjörnunnar á þriðjudags-
kvöldið fer fram í Kórnum í
Kópavogi en lið HK/Víkings
mun væntanlega spila fleiri
leiki þar á tímabilinu.
Þriðji leikurinn á gervigrasi í
fyrstu umferðinni verður við-
ureign Aftureldingar og
Breiðabliks en grasvöllurinn að
Varmá í Mosfellsbæ er ekki
orðinn leikfær.
Þá má reikna með því að við-
ureign Vals og HK/Víkings í
annarri umferð fari einnig
fram í Egilshöllinni.
Byrjað í
höllunum