Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.2008, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 2008 5
kynntar. Þessu játar Þórir og bætir
við: „Við töpuðum frekar snemma
þannig að við vorum dálítið mikið á
barnum.“
Í kjölfarið hefur Rúnar farið í álíka
sigurgöngu með mynd sína „Smá-
fugla“ og Þórir segist vænta myndar
í fullri lengd frá bæði honum og
Benedikt Erlingssyni, sem einnig
hefur leikstýrt fyrir þá stuttmynd,
áður en langt um líður. Enn styttra
er þó í lengri myndir frá öðrum
stuttmyndaleikstjórum fyrirtæk-
isins. „Óskar Þór Axelsson, sem við
gerðum „Misty Mountain“ með, er
að skrifa Svartur á leik fyrir okkur
og mun leikstýra henni, handrit sem
við eigum með Filmus. Svo erum við
að vinna aðra mynd með Árna Jóns-
syni, sem er þekktur undir nafninu
Árni súri, en við gerðum jólasvein-
astuttmynd með honum í fyrra, Ör-
stutt jól, sem var í rauninni bara
kynningarmyndbrot fyrir löngu
myndina. Það er gamaldags hroll-
vekja sem Ottó Geir Borg og Ómar
Hauksson skrifuðu og fjallar um ís-
lensku jólasveinana.“
Að byggja upp frá grunni
„Hugmyndafræðin gengur út á að
vinna langtímaplan með leik-
stjórum, langtímasamstarf þar sem
byggt er upp frá grunni,“ segir Þórir
og bætir við: „Þannig er eðlilegt
framhald að reyna að færa okkur yf-
ir í að gera „alþjóðlegar“ myndir,
stærri myndir fyrir alþjóðamarkað,
eins og með The Good Heart. En við
viljum líka vera heima og gera ís-
lenskar myndir fyrir íslenskan
markað, það mun alltaf vera hryggj-
arstykki fyrirtækisins. Hugmyndin
er að nýta alla þessa hæfileika sem
eru heima og reyna samt að keppa
við alþjóðamarkað, en það er nátt-
úrlega fáránlega mikið af hæfi-
leikum heima á Íslandi.“ Og um-
hverfið hefur breyst mikið síðan þeir
byrjuðu. „Hollywood hefur breyst
svo mikið að það er ekkert því til fyr-
irstöðu núna að búa til Hollywood-
myndir, það hefði verið hlegið að
manni þá fyrir slíka drauma. Heim-
urinn hefur minnkað og stúdíóin
kaupa meira tilbúnar myndir. The
Good Heart er bara hægt að selja til
stóru kvikmyndaveranna, þau taka
enga áhættu með því, heldur bíða
bara eftir að þú gerir bíómyndina,
áhættan er okkar. En ef myndin er
góð þá selur maður hana.“
Hugmyndafræði fyrirtækisins
hefur þó breyst nokkuð eftir að Ottó
Geir Borg kom þangað sem þróun-
arstjóri, en að auki eru Hlín Jóhann-
esdóttir og Grímar Jónsson meðeig-
endur og samstarfsmenn þeirra
Skúla og Þóris. Árið 2006 bættust
svo þeir Þórður Kolbeinsson og
Kristinn Vilbergsson í eigendahóp-
inn.
„Við tókum þá stefnu þegar Ottó
kom til Zik Zak að fara bæði meira í
barnaefni og aðlaganir á bókum. Við
höfum kannski verið meira í avant
garde-myndum sem hafa skilað okk-
ur hellingi af verðlaunum en kannski
ekki beint peningnum sem við þurf-
um til að halda þessu gangandi.
Þannig verður meiri áhersla á efni
sem er þarna úti og er gott og ferskt
og við höfum verið dálítið grimmir í
að kaupa bækur,“ segir Þórir og
nefnir Skipið og Svartur á leik eftir
Stefán Mána, Hníf Abrahams eftir
Óttar M. Norðfjörð og Öðruvísi daga
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Og úr
smiðju Guðrúnar kemur svo fyrsta
útspil fyrirtækisins í sjónvarps-
þáttagerð. „Við erum að þróa Jón
Odd og Jón Bjarna sem sjónvarps-
seríu. Ottó og Gunnar Guðmunds,
sem gerði Astrópíu með honum, eru
að skrifa. Við ætlum að gera nú-
tímaútgáfu. Við vorum að skoða
bækurnar aftur, þær henta frábær-
lega í sjónvarpsform því hver kafli
er eiginlega bara skets frá a til ö,
með upphafi, miðju og endi. Þannig
að við erum svolítið að finna bestu
sögurnar til að byrja með og finna
einhvern heilsteypta sögu fyrir
fyrstu seríuna og erum vonandi að
fara í tökur eftir ár.“
Snillingurinn Fincher og hinn
vafasami Michael Bay
Þórir segir 2008 stefna í að verða
eitt stærsta árið í sögu Zik Zak.
„Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar
keppti um gullpálmann í Cannes í
maí og hefur að undanförnu unnið
hver verðlaunin á fætur öðrum.
Skrapp út Sólveigar Anspach verð-
ur frumsýnd á Íslandi 8. ágúst. Tök-
um á The Good Heart lauk í júlí og
tökum á Brimi Árna Óla Ásgeirs-
sonar lauk í maí. Tökur á Baldri eft-
ir Róbert Douglas eru áætlaðar í
haust og einnig tökur á Gauragangi
Ólafs Hauks Símonarsonar, sem
Gunnar Guðmundsson leikstýrir.“
Þá hefur Zik Zak líka hægt og ró-
lega verið að fikra sig meira yfir í
heimildarmyndir og er með þrjár
slíkar í vinnslu, en hafði áður verið
meðframleiðendi tveggja slíkra.
En hvað varð til þess að Þórir
endaði í kvikmyndabransanum?
Hann kennir föður sínum um, en
hann er Sigurjón Sighvatsson kvik-
myndamógúll sem rak meðal annars
kvikmyndafyrirtækið Propaganda
Films, sem var leiðandi á sviði tón-
listarmyndbanda þegar Þórir var
þar vikapiltur á táningsaldri. „Ég
var hlaupatík þarna í mörg ár og
þarna hitti maður leikstjóra sem eru
ansi stórir í dag, eins og David Finc-
her, Michael Bay, Spike Jonze, An-
toine Fuqua og Dominic Senna. Og
þarna breyttist maður smám saman
í einhvern bíónörd, sem var alls ekk-
ert ætlunin.“ Fincher var stóra
stjarnan í músíkvídeóheiminum
þegar þetta var og gerði fræg
myndbönd á borð við „Janie’s Got a
Gun“ (Aerosmith) og „Express Yo-
urself“ (Madonna). En það andaði
köldu á milli hans og Bay. „Við
snobbuðum mikið fyrir Fincher,
okkur fannst Bay svo mikill „ripp-
off“-listamaður. Einn mánuðinn
gerði Fincher „Janie’s Got a Gun“
og næsta mánuð kom Bay með eitt-
hvað alveg eins. Þetta var mikil
samkeppni þarna á milli, vægast
sagt – og þeir voru ekkert mikið að
tala saman.“ En þessir tímar eru
löngu liðnir. „Þessi myndbönd voru
svo stór, kostuðu milljónir dollara á
þessum tíma. En þetta er nátt-
úrlega löngu búið, netið drap það.
En Propaganda var með mjög fjöl-
breytt verkefni og lagði áherslu á að
vinna með ungu og efnilegu fólki
sem hafði svipaðan metnað og eig-
endurnir. Sem er nákvæmlega það
sem við erum að reyna að gera hjá
Zik Zak.“
Morgunblaðið/Golli
Framtíðin þá Leikstjórar Villiljóss þegar myndin var frumsýnd. Einar Þór Gunnlaugsson, Ragnar Bragason, Ásgrímur Sverrisson og Dagur Kári. Ingu Lísu Middleton vantar á myndina.