Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 Lesbók 3BÓKARKAFLI
1
Mamma skírði mig Tomislav en
pabbi var Bokšic. Eftir fyrstu vik-
una í Ameríku var ég hinsvegar
orðinn Tom Boksic. Og þá var að-
eins tímaspursmál hvenær ég yrði
Toxic.
Það sem ég er í dag.
Ég velti því samt stundum fyrir mér hvort ég
hafi eitrað nafn mitt eða það fyrir mér.
Ég er stórhættulegur andskoti. Eða svo seg-
ir Munita allavega. Hún er algjör háspennufí-
kill. Litla eldfima ástin mín. Munita er frá Perú
en flúði land eftir að fjölskylda hennar fórst í
sprengjutilræði hryðjuverkamanna. Hún flutti
til New York og fékk vinnu á Wall Street. Dag-
inn fyrir 11. september. Í fyrstu ferðinni okkar
til Króatíu varð hún vitni að tveimur morðum.
Það fyrra var reyndar framið af mér, en hitt
var algjör tilviljun. Og eiginlega bara frekar
rómantískt. Við vorum úti að borða á staðnum
hans Mirkós þegar maðurinn á næsta borði
varð fyrir því óláni að fá kúlu í hausinn. Það
skvettist smá blóð í glasið hennar Munitu. Ég
var ekkert að segja henni frá því. Hún var með
rautt hvort sem er.
Hún segist ekki vera neitt sérstakt ofbeld-
isfan en mig grunar að hún hafi laðast að herra
Hættulegum vegna þess hve eitraður hann er.
Það er alltaf stutt í hvellinn hjá okkur. Kynlífið
algjör sprengjuhöll. Munita er það sem Kaninn
kallar body-girl. Þegar karlmönnum verður lit-
ið á hana byrja þeir alltaf neðan frá. Eins og títt
er um Suður-Ameríkana er hún ekki há í loftinu
og sumir hafa sagt að hún sé feit, en þeir hafa
reyndar ekki sagt mikið eftir það. Þegar maður
gengur með henni eftir rólegri götu má heyra
brjóstin hennar sveiflast til og frá. Djúsí-djús.
Uppáhaldshljóðið mitt í Ameríku. Ef hún er í
skrýtnu appelsínugulu blússunni sinni geta
aðrir heyrt það líka. Þegar ég sá hana fyrst
fannst mér eins og ég hefði séð hana áður. Áður
en við giftum okkur mun ég spyrja hana hvort
hún hafi einhverntíma leikið í klámmynd eða
strippað á netinu.
Það besta við Múnítuna er samt sú staðreynd
að hún á enga fjölskyldu. Það er engin tengdó,
engir frændur eða frænkur, engar þakk-
argjörðarmáltíðir, barnaafmæli eða brúðkaup
sem maður þarf að mæta í og standa úti í ein-
hverjum fjandans garði í brjáluðu sólskini með
fimmtíu manns á bakvið sig.
Munita Rosales er ekki alveg óvön byssu-
mönnum. Áður en ég braust inn í líf hennar
hafði hún verið með einhverjum Talíugaur frá
Long Island. (Við köllum Ítalíu alltaf Talíu eftir
að Niko skaut óvart Í-ið af skiltinu á einum
veitingastaðnum þeirra.) CV-ið hans var reynd-
ar mun styttra en mitt, en hann verður víst
samt að teljast kollegi minn.
Ég er það sem á okkar tungu nefnist plaèeni
ubojica. Í New York heitir það hitman, leigu-
morðingi. Frá því ég kom hingað fyrir sex árum
hef ég séð útfararþjónustum borgarinnar fyrir
nægum verkefnum. Ég pældi jafnvel í því að
bjóða þeim samstarfssamning og um daginn
sagði ég Dikan að hann ætti náttúrlega bara að
eiga eitt svona greftrunarfyrirtæki. Þannig
gætum við líka þénað á fórnarlömbum okkar
dauðum.
Leyfið mér að segja ykkur frá starfi mínu.
Flesta daga vikunnar vinn ég sem þjónn á The
Zagreb Samovar, hinum stórhuggulega veit-
ingastað okkar á Tuttugasta og fyrsta Austur-
stræti. Enska orðið waiter hæfir mér vel því
stór hluti leigumorðingjastarfsins felst í því að
bíða eftir næsta verki. Sem getur tekið á taug-
arnar. Sú Balkanskagaskepna sem sál mín er
fær aldrei nóg. Ég verð viðþolslaus ef meira en
þrír mánuðir líða frá síðasta skothvelli. Dauf-
asta árið mitt var 2002. Aðeins tvö skot í mark
og eitt framhjá. Ég sé enn eftir því síðarnefnda.
Feilskot eru bönnuð í mínum bransa. Maður
vill ekki vita af einhverjum skotsárum aum-
ingja arkandi um bæinn í leit að kveðjukúlunni
handa manni. Fólk verður yfirleitt frekar pirr-
að þegar það uppgötvar að maður sé að reyna
að drepa það. En ég get fullvissað ykkur: Sá
sem ég hitti ekki 2002 varð fyrstur til að falla
2003. Annars er ég frægur fyrir góða skotnýt-
ingu. Ég er þrefaldur pakkari. Sem mun vera
Manhattanmet. Hinn talíski Perrosi á víst að
hafa náð tvöföldum six-pakk seint á síðustu öld,
þegar John Gotti var kóngurinn af Queens, en
þreföldum náði enginn fyrr en Toxic mætti á
svæðið. Talíugaurarnir eru nett búnir á því.
Þegar þeir eru farnir að skjóta fleiri kvikmynd-
ir um þig en þú fólk er stutt í slúttið. Eftir tutt-
ugu ár verður sjálfsagt búið að gera heila Sópr-
anó-seríu um okkur: The Sliškos. En þá verð ég
líka orðinn eins og vinur okkar, Shaking Trig-
ger, með permanent í hárinu og sífreðinn af ví-
agra-áti.
Ég segi Munitu alltaf að þetta six-pakk-
dæmi sé allt í þágu umhverfisins. Ég vilji
ómögulega bæta enn einum óþarfa byssuhvell-
inum við þessa háværu borg. Ég nefndi þetta
fyrst á okkar þriðja deiti, eftir að hún hafði í
þriðja sinn spurt mig hvað ég gerði. Það kostaði
mig fjórar vikur af endalausum hringingum og
eitt snyrtilegt innbrot að fá hana á fjórða deitið.
Sorrý, ég gleymi. Að vera pakkari þýðir að
maður hafi náð einum six-pakk, að sex skot í
röð hafi skilað líki í kistu. Sex kúlur, sex jarð-
arfarir. Með grátandi ekkjum, blómum og öllu.
Dikan ætti að vera búinn að hækka mig í
tign fyrir löngu en mannfýlan er þrjóskari
en hestur með hausverk. Það eina sem
Puttasleikir segir er:
„Toxic er traustur þjónn. Hann
klikkar aldrei á pöntun.“
Ég hlakka til að hlýða skipun Biliès
þegar þar að kemur og setja punktinn
aftan við Puttasleiki. Gælunafnið fékk
hann fyrir að sleikja þessa stuttu feitu guðs-
gaffla sína að lokinni hverri máltíð.
Við reynum að láta lítið á okkur bera. MMS
er okkar fag. Minnsti mögulegi sýnileiki. Ég
reyni yfirleitt að ganga frá mínu fólki úr aug-
sýn; grípa það í bílnum eða bólinu. Helst án
vitna. Ef það tekst ekki notum við stundum
Last Supper-aðferðina; bjóðum fórnarlambinu
að borða á staðnum okkar. Í lok máltíðar færi
ég viðkomandi reikning sem er svo svimandi
hár að menn kjósa ávallt að greiða hann með lífi
sínu. Við fylgjum þeim í sérstakt herbergi
bakatil sem kallað er Rauða herbergið þótt
grænt sé.
Það eru engir fastagestir á The Zagreb Sam-
ovar.
Á meðan ég man. Nafnið á staðnum er al-
gjörlega út í hött þar sem samóvar er rússnesk
tevél og hefur ekki gramm að gera með króat-
ískan kúltúr, en Dikan telur þetta vera málið.
„Að þykjast heimskur er besta dulargervið,“
segir hann alltaf á hálfa og heila tímanum.
Þótt ég sé enn að bíða eftir helvítis stöðu-
hækkuninni get ég ekki kvartað. Peningurinn
er fínn og maturinn auðvitað líka. Ég á mína
mögnuðu íbúð á horninu á Wooster og Spring,
staðsetning sem Munita er til í að ríða fyrir, og
ég elska Noisy York, þótt ég sakni auðvitað
gamla landsins fokking fimmtíu tíma á dag. En
fyrr á þessu ári lentum við í því að end-
urskipuleggja litla kapalstöð og nú get ég horft
á HRT og Hajduk Split á flatskjánum heima.
Mamma hringir á hverju ári og spyr hvenær ég
ætli aftur í nám. Þetta er króatískt dulmál fyrir
„búin með peninginn“. Um leið og hún leggur á
legg ég tvö þúsund dali inná hana á netinu og er
laus við hana næsta árið.
Hún býr ein með litlu feitu systur minni.
Bróðir minn og pabbi dóu í stríðinu. Ég er kom-
inn af veiðimönnum í báðar ættir. Afi var veiði-
vörður Títós. En Tító var leiðtogi fyrrverandi
föðurlands míns, Júgóslavíu. Það dó stuttu eftir
að hann dó, eins og sorgmædd gömul ekkja.
Tító elskaði skógarbirni. Einkum dauða. Ég hef
aldrei farið á bjarnaveiðar en þegar ég var lítill
fór ég stundum með pabba að veiða villisvín.
„Það er með villisvínið eins og konuna. Þú mátt
aldrei láta það halda að þú hafir minnsta áhuga
á því. Þannig að við bíðum bara hérna.“ Pabbi
var líka waiter.
Ég er veiðimaður. Ég lifi á því að skjóta svín.
Hallgrímur Helgason
Ný skáldsaga eftir Hallgrím Helgason, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp, kemur út á
þriðjudaginn. Sagan fjallar um leigumorðingja króatísku mafíunnar í New York, Tomislav Bokšic, kallaður
Toxic. Hann neyðist til að flýja Bandaríkin og fyrir röð tilviljana endar hann í flugvél á leið til Íslands. Við
komuna til Keflavíkur lendir mafíósinn í fangi íslenskra trúboðshjóna sem halda að hann sé amerískur sjón-
varpsprestur kominn til að predika á sjónvarpsstöð þeirra, Amen. Hér birtist fyrsti kafli bókarinnar.
10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp
Þ
egar Hallgrímur Helgason er spurður hvernig karakter Toxic sé, svarar hann:
„Toxic er fæddur í Split í Króatíu árið 1971. Hann var fótgönguliði í króatíska hern-
um í Balkanstríðinu á árunum 1991-1995. Að því loknu hóf hann nám í landslags-
arkitektúr við háskólann í Hannover í Þýskalandi. Þar kynntist hann skipulagðri glæpastarf-
semi, flosnaði upp úr námi og hóf að starfa fyrir króatísku mafíuna þar sem hann sérhæfði
sig í knattspyrnumútum. Árið 2000 var hann fluttur til í starfi og ráðinn sem leigumorðingi
New York-deildar sömu samtaka. Hann gegndi því starfi með farsælum hætti til vorsins
2006 þegar honum var gert að flýja land – flótti sem leiddi
hann að lokum til Íslands, þar sem hann rataði fljótt á
skrá lögreglunnar yfir eftirlýsta glæpamenn.
Toxic er krúnurakaður og þykkholda, 182 cm á
hæð og 110 kg á þyngd. Hann er yfirleitt klæddur
víðum gallabuxum og svörtum leðurjakka yfir
peysu og stuttermabol.
Hann tók snemma ferilinn fram yfir fjöl-
skyldulíf og hefur litla reynslu af sambúð
við konur. Eins og títt er um leigumorð-
ingja er hann dulur og einrænn en þyk-
ir þó þægilegur í viðkynningu. Þeir
sem lifað hafa kynni sín af Toxic
bera honum söguna yfirleitt
vel. Hann telst að vísu nokk-
uð orðljótur, eins og títt er
um Króata, en hefur
auga skyttunnar fyrir
fólki og smáatriðum.“
Þægilegur í viðkynningu