Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 12 LesbókGAGNRÝNI T vær nýlegar bækur um Hafskipsmálið hafa ekki vakið mikla athygli. Það er enda vart við því að búast að margir gefi sér tíma til að rifja upp ald- arfjórðungsgamalt fjármálahneyksli mitt í verstu fjármálakreppu sem landsmenn hafa komið sér í. Útgáfa beggja bókanna er styrkt af fyrr- verandi Hafskipsmönnum og textinn byggir að talsverðu leyti á upplýsingum frá þeim eða viðtölum við þá. Þetta geta því vart talist óháð fræðirit. Samúð höfundanna með mál- stað Hafskipsmanna skín alls staðar í gegn. Dregin er upp sú mynd að Hafskipsmenn hafi verið talsmenn samkeppni í viðskiptum í ójafnri baráttu við Eimskip og Skipadeild SÍS. Þrátt fyrir hetjulega framgöngu þeirra, sem m.a. annars hafi verið frumkvöðlar í út- rás íslenskra fyrirtækja, hafi þessi barátta tapast og Hafskip verið gert gjaldþrota að ástæðulausu. Fyrir vikið hafi útrás íslenskra fyrirtækja tafist um fjölmörg ár. Sökudólgarnir eru ýmsir að mati Björns Jóns og Stefáns Gunnars. Heiti bókanna gefa tóninn. Björn Jón nefnir bókina eftir skjalakassa sem fannst hjá Eimskipafélag- inu og Stefán Gunnar segir afdrif Hafskips í boði hins opinbera. Björn Jón einbeitir sér í bók sinni einkum að hlut skiptaráðenda en Stefán Gunnar fjallar þeim mun meir um Helgarpóstinn. Jafnframt fá ýmsir embætt- ismenn, stjórnmálamenn á vinstri vængnum og forsvarsmenn Eimskipafélagsins skamm- ir. Sáralitla gagnrýni er hins vegar að finna í bókunum á forsvarsmenn Hafskips. Nær engin umfjöllun er um þær sakir sem Haf- skipsmenn voru dæmdir fyrir á endanum. Myndin sem Björn Jón og Stefán Gunnar draga upp er ekki mjög sannfærandi. Full- yrðingar um að Hafskip hafi ekki verið í raun gjaldþrota hafa birst áður. Þær byggja einkum á því að talsvert fékkst upp í al- mennar kröfur þegar búið var gert upp. Það eru léttvæg rök þegar haft er í huga að kröf- ur í þrotabú Hafskip brunnu hratt upp í mik- illi verðbólgu. Lýsingar á vandræðagangi við rekstur Hafskips, sérstaklega Atlants- hafssiglinga, benda heldur ekki til þess að mikil von hafi verið til þess að síðustu stjórn- endur félagsins hefðu getað bjargað því hefðu þeir fengið til þess meiri tíma og næði frá gagnrýni fjölmiðla og stjórnmálamanna. Þetta breytir því ekki að ýmislegt í þeirri gagnrýni sem fram kom opinberlega á Haf- skip og stjórnendur þess reyndist ekki á rök- um reist. Málarekstur hins opinbera á hend- ur Hafskipsmönnum gekk einnig mjög brösuglega. Hátt var reist til höggs en upp- skeran rýr. Þetta er allt saman rakið í bók- unum tveimur og auðvelt að fá samúð með ur. Það er hins vegar óásættanlegt að fjár- styrkur ráði því hvað skrifað er um um- deilda kafla Íslandssögunnar þar sem auðmenn koma við sögu. Við lestur Hafskipsbókanna er freistandi að bera sögusviðið saman við nútímann. Sumt hefur lítið breyst. Allar aðalpersónur bókanna eru karlkyns. Konur koma lítt við sögu og einungis í aukahlutverkum. Margt var einkennilegt í efnahagslífi þessara ára. Helstu fyrirtækin skiptast í fylkingar eftir tengslum við stjórnmálaflokka, einkum Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk. Póli- tískt skipuð bankaráð og bankastjórar ráða ríkisbönkunum. Sami stjórnmálamaðurinn er samtímis formaður bankaráðs Útvegs- bankans og stjórnarformaður Hafskips, sem var helsti viðskiptavinur bankans og hans mesta vandamál. Ýmsir stjórnmálamenn á þessum tíma gagnrýndu þetta fyrirkomulag. Höfundar Hafskipsbókanna gefa lítið fyrir þá gagn- rýni. Þvert á móti virðast þeir telja hana hafa verið ómaklega. Það er erfitt að taka undir það, þótt í einhverjum tilfellum hafi verið seilst of langt til að koma höggi á Haf- skipsmenn eða pólitíska andstæðinga. Helgarpóstsmenn fá líka slæma útreið í Hafskipsbókunum, sérstaklega hjá Stefáni Gunnari. Það vekur spurningar um hlutverk fjölmiðla. Umfjöllun Helgarpóstsins um málefni Hafskips var vissulega hörð og óvægin og án efa afar óþægileg fyrir for- svarsmenn félagsins. Það hlýtur samt að vera hverju þjóðfélagi hollt að eiga slíka fjölmiðla. Lífsnauðsyn er fyrir heilbrigt þjóðlíf að eiga óháða og sjálf- stæða fjölmiðla sem eru ekki í eigu auð- manna eða stjórnmálaafla og hika ekki við að fjalla um stjórnmálamenn, fyrirtæki og stjórnendur þeirra á gagnrýninn hátt. Fjöl- miðla sem skyggnast bak við glansmynd- irnar sem forstjórarnir reyna að mála og benda á hve lítil innstæða er fyrir ýmsum fullyrðingum þeirra um glæstan rekstur. Fjölmiðlar þurfa einnig að vera óragir við að draga fram áhættu fjármálafyrirtækja af lánveitingum fyrir skýjaborgunum og op- inbera ýmis hagsmunatengsl á milli fyr- irtækja, banka og stjórnmálaafla. Líklega hefur okkur Íslendinga sárlega vantað slíka fjölmiðla undanfarin ár. BÆKUR GYLFI MAGNÚSSON ÞJÓÐFÉLAGSUMRÆÐA | Hafskip í skotlínu eftir Björn Jón Bragason og Afdrif Hafskips í boði hins opinbera eftir Stefán Gunnar Sveinsson Hafskip í skotlínu bnnnn Afdrif Hafskips bmnnn Útgáfufélagið Sögn og JPV útgáfa, 2008. Endalok Hafskips rifjuð upp Gerður Kristný sendir núna frá sér fjórðu skáldsöguna sem ætluð er börnum og unglingum en fyrir þá fyrstu, Mörtu smörtu (2002), hlaut hún Bókaverðlaun barnanna. Land hinna týndu sokka (2006) og Ballið á Bessastöðum (2007) hlutu einnig mjög góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Titill nýju bók- arinnar, Garðurinn, vísar til Hólavallagarðs, gamla kirkjugarðs- ins við Suðurgötu í Reykjavík. Aðalpersóna bókarinnar er ung- lingsstúlkan Eyja sem er nýflutt á Ljósvallagötuna, á þriðju hæð í húsi sem stendur gegnt garðinum og býður upp á gott útsýni yfir hann. Það vekur nokkurn óhug hjá Eyju að búa við hliðina á þeim dánu enda kemur á daginn að nokkrir „íbúar“ garðsins eiga eftir að snerta líf hennar svo um munar. „Draugasagan“ myndar aðalfléttu frásagnarinnar og er hún vel sam- an fléttuð og verulega spennandi. En það eru fleiri þræðir sem mynda frásögnina; hér er líka fjallað um það að skipta um skóla og vini, sem og um veikindi innan fjölskyldunnar, svo fátt eitt sé talið. Þegar pabbi Eyju kaupir gamlan hægindastól á fornsölu fer undarleg atburðarás af stað sem virðist tengjast stólnum; „það er sál í honum,“ eins og pabbi orðar það. Stóllinn er frá tíma spænsku veikinnar, en pabbi Eyju hefur sérstakan áhuga á því tímabili í íslenskri sögu og ætlar sér að skrifa um það bók. „Sálin“ í stólnum er þó langt frá því að vera góð sál og eftir að stóllinn er kominn á heimilið fer ískyggileg atburðarás af stað. Það er hraði og spenna í þessari sögu Gerðar Kristnýjar og ekki spillir fyrir að ungir lesendur fræðast um leið um íslenska sögu og kynnast þáttum úr íslenskri þjóðtrú. Garðurinn er ágætt dæmi um það hvernig hægt er að byggja samtímasögu á þjóðlegum arfi, eins og margir ís- lenskir höfundar hafa verið að gera undanfarin ár. Aðall bókarinnar er þó að frásögnin er fyrst og fremst spennandi og skemmtileg og ætti að geta höfðað til breiðs lesendahóps. BÆKUR SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR SKÁLDSAGA | Garðurinn Eftir Gerði Kristný. Mál og menning 2008, 148 bls. bbbbn Spennandi frásögn byggð á þjóðlegum arfi Reuters Orhan Pamuk „Saga Pamuks býður væntanlega upp á staðbetra hugarfæði en skyndibitinn,“ segir Geir Svansson. Hér talar Pamuk við setningu bókamessunnar í Frankfurt 14. október. Hafskipsmönnum vegna þess. Sérstaklega virðist ákvörðun um að hneppa þá í gæslu- varðhald hafa verið misráðin. Það er líka án efa rétt að kaup Eimskipafélagsins á þrotabúi Hafskips tryggðu félaginu yf- irburðastöðu í sjóflutningum til og frá land- inu. Það var óheppileg ráðstöfun frá sam- keppnissjónarmiði. Það er hins vegar erfitt að sjá að það skipti höfuðmáli hvort sú sala var þegar í undirbúningi þegar stjórn Haf- skips gafst loks upp og óskaði eftir gjald- þrotaskiptum, eftir langt dauðastríð félags- ins. Uppsetning bókanna er einföld og frá- gangur ágætur. Meira er lagt í slíka vinnu við bók Stefáns Gunnars, sérstaklega mynd- skreytingar, sem gerir hana líflegri. Málfar er ágætt en textinn frekar þurr. Nokkuð er um óþarfa endurtekningar, sérstaklega í bók Björns Jóns. Bækurnar hafa báðar yf- irbragð skýrslna eða skólaritgerða og eru varla skemmtilestur nema fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á Hafskipsmálinu. Það er erfitt að leggja mat á þessar bækur sem heimildarit. Höfundar hafa vissulega leitað víða fanga og engin ástæða er til að ætla að þeir fari rangt með staðreyndir. Það virðist hins vegar full ástæða til að efast um túlkun höfundanna á sögunni og stað- reyndum hennar í ljósi þess hve eindreginn stuðningur þeirra er við Hafskipsmenn, sem jafnframt styrkja útgáfu bókanna. Það er ekki heppilegt að Íslandssagan sé rituð með þessum hætti. Stuðningur auðmanna við bókaútgáfu getur verið góðra gjalda verð- Útgáfa beggja bók- anna er styrkt af fyrr- verandi Hafskips- mönnum og textinn byggir að talsverðu leyti á upplýsingum frá þeim eða viðtölum við þá. Þetta geta því vart talist óháð fræðirit.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.