Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Blaðsíða 4
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Þ rjú ár eru síðan Álf- rún Gunnlaugsdóttir hætti að kenna við Háskóla Íslands, þar sem hún kenndi er- lendar bókmenntir um árabil í almennri bókmenntafræði. Samhliða því að kenna væntanlegum bókmenntafræðingum um suðurevr- ópskar og suðuramerískar bók- menntir vann hún að smíði eigin skáldverka og var hvert um sig lengi í smíðum, svo lengi að hún telur ekki útilokað að á þeim tímum hraða og hamagangs sem við lifum hafi hún „gleymst“ sem höfundur frá einni bók til þeirrar næstu. Að minnsta kosti var hún oft spurð að því hvort hún óttaðist ekki að slíkt gerðist. Rán er fimmta skáldsaga Álfrúnar en þrjár sagna hennar hafa verið til- nefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Rán er kona sem hefur lifað mest- an hluta ævinnar fjarri ættlandinu, var um tíma við nám í Barcelona en giftist svo til Sviss. Í sögunni er hún á leið heim til átthaganna, en tekur á sig krók og kemur við í Barcelona þaðan sem hún hafði farið heldur vonsvikin á sínum tíma. „Upphaflega ætlaði ég að láta sög- una gerast í Reykjavík, en sá fram á að mér myndi ef til vill ekki takast að fá nógu ferska sýn á staði og atburði í fortíðinni, þar sem maður er sjálfur hluti af umhverfinu og breytist með því,“ segir Álfrún þar sem við ræð- um um verkið á heimili hennar. „Ég ákvað því að hafa sögusviðið Genf og Barcelona, sem eru ekki endilega merkilegri pláss en hver önnur í skáldskaparlegu tilliti, en þá staði þekkti ég frá fornu fari, kom á þá með kannski löngu millibili og sá alltaf eitthvað „nýtt“, en um leið gamalt og rótgróið, nokkurs konar endurtekningu. Og þá varð maður heltekinn af tímanum og allri þeirri fílósófíu eins og vera ber! Rán er á leið heim og hún veit ekki enn hvort það verður hennar sein- asta ferð. Henni finnst eins og hún sé á leið burt frá því lífi sem hún hef- ur lifað og kannski þess vegna leitast hún við að finna ákveðið samhengi eða „þræði“ í því sem gerðist og spyr sig hversu mikinn þátt hún hafi átt í að spinna þá sjálf. En samhengið er líka í því sem hún réð ekki við og gat ekki haft áhrif á, meira að segja í því sem gerðist fyrir hennar daga á Lesandinn skapar líka Í Rán, nýrri skáldsögu Álfrúnar Gunn- laugsdóttur, segir að listin sé „fyrst og fremst hugarflug undir ströngum aga“. Lýsinguna má heimfæra á sögu Álfrúnar, þar sem hrífandi frásögnin er haganlega fléttuð inn í meistaralega byggt verkið. Maður átti að gera hlut- ina eins vel og maður gat og svo var ekki hægt að biðja um meira. Morgunblaðið/Einar Falur MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 4 LesbókBÓKMENNTIR B ekkurinn í kirkjunni er grjótharður og ég orðin aum í rófubeininu, rétt eins og í gamladaga þegar ég vermdi bekki Háskólans í Barcelona. Að vísu var ég þá með minna hold á beinum. En burtséð frá því líður mér prýðilega í Santa María del Mar, ekkert vantar til að fullkomna myndina frá því forðum nema þá helst svart- klæddu konurnar sem lágu á hnjánum og þuldu bænir. Þær virtust lifa utan við tímann og lög- mál hans. Voru alltaf eins. Óum- breytanlegar. Eiginlega kórinn. Í hvaða leikriti? Prívatleikriti mínu? Ég er gengin úr þeim leik og hver veit nema ég hafi skilið handritið eftir heima. Átök við aðra eru lýjandi og auk þess leiðinleg, enda er ég engin manneskja til að standa í slíku. Maður verður að hafa orku til þess, löngun til að slást, jafnvel málstað að verja. Þannig var ein- mitt ástatt þegar ég var með Ro- berto. Ég lagði ýmislegt á mig til að halda í hann, verja ástina sem ég bar til hans, þangað til upp fyrir mér rann að hann væri ekki sá sem allt átti að snúast um. Valur varð eftir á mínu gamla heimili og ég giftist Hansjürg. Nú er hann farinn frá mér þótt ég viti ekki hvers vegna. Þegar ég giftist honum vissi hann ósköp vel að ég var ekki ástfangin, að minnsta kosti ekki uppnumin. En mér hef- ur ekki þótt vænna um nokkurn annan mann. Það hefur Hansi aldrei skilið og þegar hann er í glasi þrástagast hann á að ég hafi aldrei elskað sig. Ef hann bara vissi … hvað það var sárt að upp- götva í gærmorgun að hann var farinn án þess að kveðja eða gefa skýringu á framferði sínu. Trú- lega ætlaðist hann til að mér fyndist ég á einhvern hátt sek og „ætti þetta skilið“. Hafi það verið raunin, tókst honum ekki það sem hann ætlaði sér. Ég horfi upp eftir voldugum burðarsúlunum. Birta fellur efst á þær gegnum steinda gluggana og er allt að því yfirnáttúrleg. Hvelf- ingin yfir kórnum seiðir mann til sín. Það væri gott að til- heyra … þó ekki væri nema ein- hverjum stað. En ég tilheyri ekki neinum og er að þessu leyti frjáls, þótt sjálf viti ég varla af því. Ég hef löngum vanist að mér sé ýtt til hliðar. Auðvelt hefði verið fyrir mig að taka að mér hlutverk fórn- arlambsins, en það gerði ég ekki. Að vera fórnarlamb er niðurlægj- andi. Sárast af öllu var þó tímabilið þegar Valur vildi hvorki sjá mig né heyra, þótt sá sársauki sé horf- inn og að mestu bundinn bernsku hans og æsku. Valur og ég erum orðin þokkalega sátt hvort við annað, hann býður mér heim til sín og meira að segja út að borða til að við getum verið bæði tvö í ró og næði. Meinið er hins vegar að við höfum fjarska lítið um að tala, tækifærið til að brúa bilið milli okkar er löngu liðið. Við töl- um mest um fjölskyldu hans og það verða langar þagnir. Ég fer varlega í að spyrja. Valur líkist mér að þessu leyti, ekki sérlega málgefinn og þó finnst mér eins og honum liggi eitthvað á hjarta. Eitthvað sem hann langi til að spyrja um og komi sér ekki til þess. Ég ímynda mér að hann hugsi, þegar við göngum út af Afskræming á hugmynd Í eftirfarandi kafla úr skáldsögunni Rán, hittir lesand- inn samnefnda að- alpersónu sögunar fyrir í gamalli kirkju í Barcelona.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.