Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2008, Page 13
T
yrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk
hefur vakið athygli fyrir skáldsögur sín-
ar á undanförnum árum, ekki síst eftir að
honum voru veitt Nóbelsverðlaun 2006,
fyrstum landa sinna. Meðal verka hans má
nefna The Silent House (1983), The White
Castle (1985), The Black Book (1990), The New
Life (1995), My Name is Red (1998), Snow
(2002) og The Museum of Innocence (2008).
Pamuk er ekki við eina fjölina felldur. Jafn-
framt ritstörfum gegnir hann prófessorsstöðu í
samanburðarbókmenntum við Columbia-há-
skólann í Bandaríkjunum. Hann er því rithöf-
undur og fræðimaður í senn. Hann minnir að
þessu leyti á Umberto Eco en Nafn rósarinnar
(1994) kemur ósjálfrátt upp í hugann.
Nafn mitt er Rauður er söguleg skáldsaga,
rétt eins og Nafn rósarinnar. Báðar þessar
„rauðnafnabækur“ byggja á sögulegum heim-
ildum og báðar nota glæpafléttu til að draga frá-
sögnina áfram. Hvorug bókin er þó venjuleg
„hver-gerði-saga“: Glæpurinn er nánast yfir-
skin höfundanna fyrir því að rýna í menningu og
menningarsögu Vesturlanda og Austurlanda
nær (Ítalíu og Tyrklands).
Sögutími bókanna tveggja er ekki ósvipaður,
annars vegar ítalskt munkaklaustur á 14du öld
hjá Eco en Istanbul á 16du öld hjá Orhan Pa-
muk, miðaldir í algleymingi. Söguvísanir fram
og til baka vega þungt í báðum bókum en yfir
svífur nútímaleg söguvitund (en ekki alvitur hjá
Pamuk), þótt raddirnar séu fjölmargar og sjón-
arhornin ólík.
Fórnarlambið og söguhetjan í bókinni er En-
isthe Effendi sem ráðinn er til að skreyta bók til
heiðurs soldáni. Enishte á fyrsta orðið í bókinni
en það vill svo undarlega til að hann er þegar
fórnarlamb fólskulegs morðs á sjálfum sér þeg-
ar hann tekur til máls. Þessi töfraraunsæislega
byrjun er ekki það undarlegasta sem á sér
stað: tré og gullpeningur taka einnig til
máls og hafa sitt að segja um ástandið og
framvinduna.
Vitnisburður hvers mælanda, í hverj-
um kafla fyrir sig, varpar ljósi á morð-
gátuna. En bókin snýst ekki eingöngu
um lausn gátunnar heldur er til-
gangur hennar að rýna það siðferði
og þær venjur sem giltu á þeim tíma
þegar sagan á sér stað. Listin kemur einnig
til sögunnar og kannski sérstaklega gildi
skreytilistar og fígúratífrar myndlistar í Íslam.
Í kaupbæti fylgir svo ástarsaga og alls konar
flækjur sérkennilegra sögupersóna.
Þótt því verði ekki neitað að sögufléttan sé
listilega ofin er ekki laust við að bókin reyni
stundum á þolinmæði lesandans. Textinn er í
sjálfum sér góður en virkar heldur flatur og
leiðigjarn þegar fram í sækir. Sjálfsagt er hægt
að hafa meiri ánægju af Nafn mitt er Rauður
með því að kynna sér sögu Tyrkjaveldis og Ísl-
ams, en aftast í bókinni er skrá yfir sögulega at-
burði í Tyrkjaveldi (1300-1922) og í Íslam.
Ekki er ósennilegt að lesendur bókarinnar
skiptist í tvo hópa: þeirra, sem falla fyrir sög-
unni og njóta þess að lesa sig eftir söguþræð-
inum, og hinna (vonandi færri) sem þykir hún
heldur hæg. Hvað sem öðru líður er Nafn mitt
er Rauður eflaust ágætt mótvægi við allar
glæpa- eða hvergerðisögurnar sem ríða röftum í
íslenskri bókaútgáfu. Saga Pamuks býður
væntanlega upp á staðbetra hugarfæði en
skyndibitinn.
BÆKUR
GEIR SVANSSON
Ekki er ósenni-
legt að lesendur
bókarinnar skipt-
ist í tvo hópa:
þeirra, sem falla
fyrir sögunni og
njóta þess að lesa sig
eftir söguþræðinum, og
hinna (vonandi færri) sem
þykir hún heldur hæg.
SKÁLDSAGA | Nafn mitt er Rauður
Eftir Orhan Pamuk, Mál og menning 2008. 511 bls
bbbnn
Hvað felst í nafni?
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008 Lesbók 13GAGNRÝNI
LEIKLIST
Janis 27
Íslenska óperan
„Texti Ólafs Hauks er skemmtilegur, frjálslegur
og óþvingaður. Þó vantaði nokkuð á dramatíska
framvindu í verkinu. “
Ingibjörg Þórisdóttir.
Utan gátta
Þjóðleikhúsið (Kassinn)
„Hér er list leikarans höfð í fyrirrúmi þar sem
orð höfundarins mynda þéttan skóg sem per-
sónur verksins reyna að feta sig í gegnum og
það er leikstjórans að leiða þær áfram.“
Ingibjörg Þórisdóttir.
Fólkið í blokkinni
Borgarleikhúsið
„Leikendur eru að vísu
misgóðir og það er ekki
fyrr en Halldóra Geir-
harðsdóttir fær stærra
hlutverk í framvindunni
sem erlenda far-
andverkakonan Valery
að sýningin fer á skrið. “
María Kristjánsdóttir.
KVIKMYNDIR
Quantum of Solace
bbbmn
Sýnd í Smárabíó, Há-
skólabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri
„Þegar öllu er á botninn
hvolft eru ekki minnstu
þreytumerki á hinni hálfrar
aldar gömlu kvikmynda-
hetju, ég spái honum ótrú-
legu langlífi svo lengi sem hugsað er um að hafa
hann í takt við tímann.“
Sæbjörn Valdimarsson.
Quarantine bbbnn
Sýnd í Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó
Akureyri
„Við erum komin á kunnuglegar slóðir sviðsetta
heimildarhrollsins, sem skaust upp á vinsælda-
listann í myndum eins og The Blair Witch Proj-
ect allt til Cloverfield. “
Sæbjörn Valdimarsson.
Hvar í veröldinni er Osama Bin Laden?
(Where in the World is Osama Bin Laden?)
bbbnn
Sýnd í Háskólabíó – Græna ljósið
„Í nýju myndinni, Hvar í veröldinni er Osama
Bin Laden? tekst Spurlock á hendur til-
raunaverkefni á öllu stærri skala, og leggur til
atlögu við hugmyndafræði óttans í hryðjuverka-
stríðinu svokallaða. “
Heiða Jóhannsdóttir.
Reykjavík-Rotterdam bbbnn
Sýnd í Háskólabíó
„Reykjavík-Rotterdam er kvikmynd sem er
áferðarfalleg og snyrtileg. Henni tekst að
skemmta áhorfendum á átakalausan hátt.“
Anna Sveinbjarnardóttir.
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið.
Ingibjörg Jónsdóttir – Samsíða heimar,
bbbmn
Sýning stendur til 11. janúar.
„Tíminn er áleitinn þáttur í verkum Ingibjargar
og hér renna saman áreynslulaust samtíminn
og hefðirnar, auk þess sem tími áhorfandans
verður órjúfanlega hluti af verkinu.“
Anna Jóa.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir
Bragi Ásgeirsson – Yfirlitssýning
bbbbm
Sýning stendur til 11. janúar.
„Það er augljóslega mikil undirbúningsvinna við
sýninguna. Vel er valið úr verkum og þótt ég
hafi séð mörg þeirra áður kom sýningin mér
samt á óvart og gaf mér enn dýpri innsýn í list
Braga. . . “
Jón B. K. Ransu.
Hafnarborg
Tveir módernistar – Sigurjón Ólafsson og
Þorvaldur Skúlasonbbbmn
Sýning stendur til 9. nóv.
„Íslensk listasaga er almenningi að mestu lokuð
bók sem hvergi er aðgengileg að staðaldri. Hér
hefur óvænt verið lokið upp nokkrum áhuga-
verðum síðum sem vert er að skoða, til upprifj-
unar eða nýrra kynna.“
Ragna Sigurðardóttir.
Í GANGI
Hér er sjálfstætt framhald sögunnar Fjör í fyrsta
bekk, sem náði talsverðum vinsældum í fyrra. Nonni
og Selma lenda í ýmsum ævintýrum í sumarfríinu.
Byggja kofa og stelast í steypuvinnu, smíða kassabíl,
fara í ferðalag og fremja nokkur prakkarastrik.
Frásögnin er lifandi og hrífur lesendur sem eru á
aldur við sögupersónurnar. Frekar er um röð stakra
atburða að ræða en heildstæða framvindu, en líflegur
norðlenskur veruleikinn skemmtir lesendum á öllum aldri.
Sumarævintýri
skólasystkina
BÆKUR
Einar Falur Ingólfsson
SKÁLDSAGA | Nonni og Selma - Fjör í fríinu Eftir Brynhildi
Þórarinsdóttur. Mál og menning gefur út. bbbbn
Í nýrri glæpasögu sinni, Myrká, sýnir Arnaldur Indr-
iðason að hann hefur sterk tök á þessu sagnaformi.
Strax í fyrsta kafla tekst að ná tökum á lesandanum
með því að snúa upp á fyrirframhugmyndir hans. Síð-
an hefst hröð atburðarás sem Arnaldur passar sig á
að flækja aldrei um of og kaffæra ekki í boðskap eða
samfélagsfræðilegum stúdíum.
Að þessu sinni kemur Erlendur lítið við sögu en
þess í stað heldur Elínborg utan um rannsókn morðmálsins sem allt
snýst um. Við þetta færist nýtt líf í sagnaheim Arnaldar. Ef horft er
fram hjá einsleitum aukapersónum og umhverfislýsingum er þetta einn
af þéttustu krimmum Arnaldar.
Sterk tök
SKÁLDSAGA | Myrká eftir Arnald Indriðason, Vaka-
Helgafell, 2008, 294 bls. bbbbn
Þröstur Helgason
Titilinn á nýrri bók Kristínar Ómarsdóttur, Sjáðu feg-
urð þína, þarf helst að taka bókstaflega til að njóta
sem best. Enn vinnur skáldið stórvirki með minni og
mýtur, (kvenlegt) myndmál og afhelgun. Afhelgunin
beinist ekki síst að skáldinu sjálfu, skáldskapnum og
ferðalagi lesandans inn í hann. Í þeim hugmyndum
liggur einnig styrkur bókarinnar sem heildar – í örlát-
um aðferðum Kristínar við að kryfja hlutverk skálds-
ins, textans (tungunnar) og lesandans, þar sem allir þessir þættir brjót-
ast út af hefðbundum leiðum, upp úr fyrirfram mörkuðum farvegum.
Það rýrir þó aðeins gæði verksins sem heildar hversu misgóðir text-
arnir eru. Sumt er gríðarsnjallt en annað hefði mátt missa sín.
Leiðsögn um ljóð
LJÓÐABÓK | Sjáðu fegurð þína eftir Kristínu Ómars-
dóttur, Uppheimar 2008, 68 bls. bbbmn
Fríða Björk Ingvarsdóttir
Við fyrstu hlustun slær það mann að það skuli
ekki vera neinn byrjandabragur á plötunni.
Hljóðfæraleikur er góður, útsetningar snyrti-
legar og lagasmíðar yfir meðallagi. Helst
hægt að líkja þessu við bandarískt fullorð-
inspopp á borð við Mike and the Mechanics.
Við ítrekaða hlustun rennur glampinn örlítið af. Hljóðblöndun er of
hlutlaus og mörg lögin óeftirminnileg. Stanslaust flakk á milli mislukk-
aðra íslenskra og enskra texta skemmir fyrir.
Fullorðinspopp
POPP | Menn ársins,
Menn ársins bbbnn
PLÖTUR
Birgir Örn Steinarsson
Um er að ræða safnplötu sem inniheldur plöt-
urnar Fólkið í blokkinni (2000) og Allt í góðu
(2004) ásamt fjórum nýjum lögum sem eru góð
viðbót við hin eldri. Útgáfan er vegna uppsetn-
ingar Borgarleikhússins á söngleiknum Fólkið í
blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson sem er
einnig höfundur allra laganna. Textarnir eru skemmtilegir og lögin
grípandi. Auðvelt er að tralla og dilla sér með. Af hinum fjölmörgu góðu
flytjendum sker KK sig nokkuð úr, stíll hans fellur vel að lögum Ólafs.
Frábær fjölskylduplata
POPP | Fólkið í blokkinni
Allt í góðu … ásamt nýjum lögum úr blokkinni
bbbbn
Ingveldur Geirsdóttir
Blúsinn er þeim eiginleikum gæddur, líkt og
Hafnarfjarðarbrandarar, að það má enda-
laust bæta í safnið. Johnny and the Rest
framreiðir á samnefndri plötu afskaplega
þægilegt og hefðbundið blúsrokk sem
hnykkir höfðinu til Yardbirds, Zeppelin og
annarra hippa-blússveita.
Hljómur plötunnar er hrár sem hentar oftast nær lagasmíðunum
en það hefði e.t.v. mátt liggja betur yfir trommuhljóminum sem er
helst til máttlaus og bendir til þess að platan hafi verið tekin upp og
hljóðblönduð í miklum flýti. Þegar best lætur ættu hvaða blúsaðdá-
endur sem er að skynja hæfileika Johnny and the Rest á blússviðinu
en þegar sveitin gengur of langt í keyrslunni fer maður ósjálfrátt að
hugsa til sveita á borð við Creed og Knickelback, og það getur ekki
vitað á gott.
Ein í safnið
ROKK/BLÚS | Johnny and the Rest
Johnny and the Rest bbnnn
Höskuldur Ólafsson