Morgunblaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2008 9
ÚTSALAN ER HAFIN
Kringlunni • Simi 568 1822
www.polarnopyret.is
Opnunartími mánud. - föstud. kl. 10.00-18.00
Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík
sími 568 2870
Útsala!
www.friendtex.is
Mikið úrval af
fallegum fatnaði
Dúndur útsala !
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Útsala útsala
mikill afsláttur
Laugavegi 53 • Sími 552 3737
Opið virka daga 10-18 • Laugardaga 10-16
Útsalan
hefst í dag
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Garður | Lútherskt menningar-
setur verður í gamla prestshúsinu
á Útskálum í Garði. Unnið hefur
verið að því að hefja þetta forna
menningarsetur og höfuðból til
vegs og virðingar á ný og nú eru
stórir áfangar fram undan, að
koma upp sýningum um siðbótina
og íslensk prestsetur og að byggja
safnaðarheimili og hótel á staðn-
um.
Útskálasókn lauk fyrr á þessu
ári við umfangsmiklar endurbætur
á Útskálakirkju. Jón Hjálmarsson,
formaður sóknarnefndar, segir að
forsenda ákvörðunar um að gera
við gömlu kirkjuna, frekar en að
rífa hana og byggja nýja og hent-
ugri, hafi verið að byggja safn-
aðarheimili í kjölfarið. Safnaðar-
fundur hefur nú heimilað að hafist
verði handa við þessa framkvæmd,
með fyrirvara um fjármögnun sem
enn er unnið að. Jón segir að
sveitarfélagið Garður styðji vel við
þessa uppbyggingu og sótt hafi
verið um styrk úr Jöfnunarsjóði
kirkna.
Ætlunin er að byggja veglegt
safnaðarheimili með 180 manna
sal sem nýta á sem viðbót við
kirkjuna við fjölmennar athafnir,
skrifstofu sóknarprests og annað
safnaðarstarf. Safnaðarheimilið
verður byggt í tengslum við ráð-
stefnuhótel sem einstaklingar eru
að fara að byggja og nýtir hótelið
salinn sem einnig verður leigður
til almennra samkoma í bænum.
Hótelið og safnaðarheimilið
verða neðan við bæjarhól Útskála-
hússins og mun því nýtast starf-
seminni í gamla prestshúsinu. Við
skipulagningu og hönnun bygging-
anna hefur verið tekið mið af um-
hverfinu og reynt að láta þær falla
sem best inn í menningarlands-
lagið.
„Þetta verður mikil upplyfting
fyrir allt safnaðarstarf og menn-
ingu í byggðarlaginu,“ segir Jón.
Prestshúsið gert upp
Gamli prestsbústaðurinn á Út-
skálum var lengi í niðurníðslu,
með útstungin augu þar sem
hlerar voru fyrir gluggum. Eftir
að sóknarnefndin fékk húsið af-
hent og hafði forgöngu um að
gera það upp og koma þar upp
sögusetri hefur húsið verið gert
upp að utan í sem næst uppruna-
legri mynd. Sýningar hafa verið
undirbúnar og vinna hefst næstu
daga við að innrétta húsið.
Upprunalega hugmyndin var að
nota húsið til að segja sögu ís-
lenskra prestsetra. Hefur verk-
efnið þróast út í það sem Björn
Sveinn Björnsson sóknarprestur
kýs að nefna Lútherskt menning-
arsetur enda telur hann að það
höfði til breiðari hóps. Nefnir er-
lent ferðafólk í því sambandi,
ekki síst Þjóðverja. Á jarðhæð
hússins verður sett upp sýning
sem segir sögu siðbótarinnar með
áherslu á Lúther og Gissur Ein-
arsson sem var fyrsti lútherski
biskupinn á Íslandi. Á efri hæð
verður síðan sýning um prest-
setrin en íslensku prestaheimilin
eru einmitt einn af ávöxtum siða-
skiptanna.
„Við viljum færa orð Guðs nær
þjóðinni og þjóðina nær uppruna
sínum,“ segir séra Björn um til-
ganginn með menningarsetrinu.
Hann vonast til að sýningin veki
menn til umhugsunar um trú-
ararfinn.
Stefnt er að því að ljúka upp-
setningu sýninganna í Lútherska
menningarsetrinu á Útskálum á
þessu ári, á hundrað ára afmælis-
ári sveitarfélagsins Garðs sem
styður uppbygginguna myndar-
lega, að sögn Björns.
Vekja umhugsun
um trúararfinn
Lútherskt menn-
ingarsetur verður
í gamla prestshús-
inu á Útskálum
Í HNOTSKURN
»Útskálar eru kirkjustaðurí Garði og þar var áður
prestssetur. Þeir voru eitt
mesta höfuðból á Suður-
nesjum fyrr á árum. Kirkjan
sem nú stendur var reist á ár-
unum 1861 til 1863. Prestsbú-
staðurinn var byggður 1889.
»Siðbótin er miðuð við þannatburð þegar þýski munk-
urinn Marteinn Lúther negldi
skjal með 95 greinum um
trúarlegar umbætur á kirkju-
dyrnar í Wittenberg árið 1517.
Við hann er kennd evangelísk-
lúthersk kirkja. Siðaskipti
urðu á Íslandi um miðja 16. öld
og miðast oftast við líflát Jóns
Arasonar, biskups á Hólum,
sem tekinn var af lífi ásamt
sonum sínum í Skálholti 1550.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Menningarsetur Útskálahúsið í Garði hefur verið gert upp að utan og vinna að hefjast við innréttingar. Húsið fær
nú nýtt hlutverk í þágu staðarins og gesta hans en þar mun verða lútherskt menningarsetur til húsa.
Sími 551 3010