Morgunblaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÞÓRÓLFUR Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsu-
stöðvar, segir ekki vænlegt til árangurs að dreifa
starfi Lýðheilsustöðvar út um allt. Þvert á móti
væri betra að efla tengslin milli þátta og auka
samstarfið milli þeirra sem vinna að heilsueflingu
og forvörnum.
Þórólfur Þórlindsson segir mikilvægt að ræða
hvernig forvarnastarfi verði best fyrir komið og
með hvaða hætti megi vinna að heilsueflingu
þannig að hún skili sem mestum árangri. Skipu-
leggja megi starfið á fleiri en
einn veg, en í viðtali við Herdísi
Storgaard í Morgunblaðinu á
laugardag og í Staksteinum
Morgunblaðsins á sunnudag
gæti bæði misskilnings og auk
þess sé beinlínis farið rangt
með nokkur atriði.
Engin yfirbygging
„Það er engin yfirbygging á
Lýðheilsustöð,“ segir Þórólfur.
Hann bætir við að allir sérfræðingarnir séu á kafi
í samstarfi við grasrótarsamtök eins og til dæmis
íþróttafélög, sveitarstjórnir og skóla. Grasrótar-
starfið skipti miklu máli og það megi alltaf efla. Í
áratugi hafi hann unnið mikið að forvarnamálum
með grasrótarsamtökum og mikilvægt sé að gera
sér grein fyrir því að forvarnastarf hefur byggst á
þessum frjálsu félaga- og grasrótarsamtökum í
langan tíma og fimm til sex milljarðar liggi til
dæmis í sjálfboðaliðastarfi íþróttahreyfingarinnar
árlega. Allt þetta starf sé fyrst og fremst unnið af
hugsjón og vangaveltur um það að betra sé að
vinna þessi mál út frá beinhörðum peningasjón-
armiðum eru úr lausu lofti gripin. Þvert á móti
megi segja að ákveðið einkenni á heilsueflingu og
forvarnastarfi á Íslandi sé hvað félagasamtök eins
og t.d. Krabbameinsfélagið og Hjartavernd séu
öflug. Einnig megi nefna stórmerkilegan og mikil-
vægan hlut bindindishreyfingarinnar í forvarna-
starfi í tengslum við áfengismál og minna jafn-
framt á að hið mikilvæga starf SÁÁ sé rekið af
frjálsum félagasamtökum. Enginn sé í starfi fyrir
þessi samtök peninganna vegna og það sé styrkur
Íslands.
„Brýnasta verkefnið í sambandi við heilsuefl-
ingu er að efla heilsugæsluna,“ segir Þórólfur.
Ekki dreifa starfi Lýðheilsustöðvar
Félagasamtök öflug og
samstarf í heilsueflingu
og forvörnum mikilvægt
Þórólfur
Þórlindsson
ÞÓRÓLFUR Þórlindsson, for-
stjóri Lýðheilsustöðvar, segir
að vangaveltur um það að
betra sé að vinna forvarnamál
út frá beinhörðum peninga-
sjónarmiðum séu úr lausu
lofti gripin.
Herdís Storgaard, forstöðu-
maður Sjóvár Forvarnahúss,
segir að einkafyrirtæki geti
unnið verkefni Lýðheilsu-
stöðvar betur en hún geri og á
ódýrari hátt fyrir skattgreið-
endur.
Með og á móti
HINN ameríski Cocker Spaniel-hundur Lance
sést hér ásamt eiganda sínum, Bryndísi Péturs-
dóttur. Bæði hafa fulla ástæðu til að vera kát á
myndinni, en Lance var valinn besti hundur vel
heppnaðrar sumarsýningar Hundaræktarfélags
Íslands sem haldin var í Víðidal um helgina.
Amerískir Cocker Spaniel-hundar eru yfirleitt
glaðlyndir, elskulegir og félagslyndir. Þá þykja
þeir auk þess afar barngóðir.
Vel heppnaðri sýningu Hundaræktarfélags Íslands lokið í Víðidal
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Lance er besti hundurinn
ÁSTA Möller,
formaður heil-
brigðisnefndar
Alþingis, segir
að full ástæða sé
til að horfa á
heildarmyndina í
forvörnum. Það
sé þeim til fram-
dráttar að nýta
sem flesta og
stjórnvöld eigi að styðja við einka-
framtak í þessum efnum.
Haft var eftir Herdísi Storgaard,
forstöðumanni Sjóvár Forvarna-
húss, að einkafyrirtæki gætu unnið
verkefni Lýðheilsustöðvar betur en
hún og á ódýrari hátt fyrir skatt-
greiðendur.
Ásta Möller segir að Herdís hafi
töluvert til síns máls. Þegar Lýð-
heilsustöð hafi verið stofnuð hafi
ýmis verkefni á vegum frjálsra fé-
lagasamtaka en með stuðningi rík-
isins verið sett undir hana. Þá hafi
hún sagt að það væri alger for-
senda að Lýðheilsustöð myndi
virkja grasrótina áfram og jafnvel
enn betur en stjórnvöld hefðu gert
fram að þeim tíma. Frjáls félaga-
samtök hafi gert mjög marga góða
hluti og viti hvar skórinn kreppi.
Ástæða sé til að endurskoða rekst-
ur Lýðheilsustövar og huga að því
að virkja betur einkarekstur og
frjáls félagasamtök til að halda
uppi þessu forvarnastarfi. Það hafi
sýnt sig að frumkvöðlar og eld-
hugar eins og Herdís Storgaard
hafa náð verulega góðum árangri
og stjórnvöld eigi að styðja við slíkt
framtak. steinthor@mbl.is
Stjórnvöld
styðji einka-
framtak
Ásta Möller
RÁÐHERRAR Norðurlandanna eru
sammála um rétt neytenda til að
geta treyst því að fiskafurðir sem
þeir kaupa séu unnar úr stofnum
sem nýttir eru á sjálfbæran hátt og
hvetja til merkinga og rekjanleika í
þessum efnum. Í síðustu viku sótti
Einar K. Guðfinnsson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
sumarfund matvælaráðherra Norð-
urlandanna sem lauk í Vaxjö í Sví-
þjóð á föstudag. Miklar umræður
hafa átt sér stað í Svíþjóð þar sem
náttúruverndarsamtök hafa gefið
út bæklinga þar sem lagst er gegn
kaupum á þorski. Mun Einar hafa
bent á að því fylgdi mikil ábyrgð
þegar náttúruverndarsamtök
hvettu kaupendur til að sniðganga
fisktegundir á grunni ófullnægj-
andi upplýsinga. Þá var lögð fram
yfirlýsing á fundinum um sjálfbæra
nýtingu sela þar sem lýst var
áhyggjum af fyrirhuguðu banni
Evrópusambandsins við viðskiptum
með selskinn. thorbjorn@mbl.is
Ráðherrar
vilja bættar
merkingar
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
MAÐURINN sem sérsveitarmenn
lögreglunnar handtóku í Grímsey sl.
laugardag var yfirheyrður af lögregl-
unni á Akureyri í gær. Maðurinn, sem
er rétt rúmlega tvítugur, hafði haft í
hótunum við fólk á staðnum og gert
misheppnaða tilraun til þess að stinga
mann með hnífi sem hann varð sér úti
um í fiskvinnsluhúsnæði á staðnum.
Á næstunni verða teknar skýrslur af
vitnum og í kjölfarið tekin ákvörðun
um hvort gefin verður út ákæra.
„Þetta er ekki stórvægilegt brot.
Hann meiðir engan þótt þarna hafi
auðvitað skapast alvarlegt ástand,“
segir Jóhann Olsen, varðstjóri hjá
lögreglunni á Akureyri. Engin lög-
gæsla er í Grímsey að staðaldri.
Maðurinn var ekki yfirheyrður strax
þar sem hann var ölvaður og líklega
undir áhrifum fíkniefna. Gisti hann
fangageymslur aðfaranótt sunnudags
en nýtur núna aðstoðar fagfólks sem
reynir að „koma honum á réttan
kjöl.“
Var einn á ferð í Grímsey
Áður en sérsveitarmenn lögregl-
unnar handtóku manninn hafði
óbreyttum borgara í Grímsey tekist
að róa hann mikið niður og ræða við
hann. Var maðurinn því „þokkalega
rólegur“ og hættuástand yfirstaðið
þegar sérsveitin kom á vettvang,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Maðurinn, sem var einn á ferð í
Grímsey, var dæmdur í 20 mánaða
fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands
eystra í upphafi þessa mánaðar fyrir
ýmis hegningarlagabrot, þar á meðal
þrjár hnífstungur, líkamsárás og
fíkniefnabrot. Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni á Akureyri er
„mikil gremja í fólki“ fyrir norðan yf-
ir því að maðurinn gangi laus og hafi
embættinu borist mörg símtöl þess
efnis. Bæði sakborningur og ákæru-
vald hafa lögum samkvæmt áfrýjun-
arfrest sem lengir þann tíma sem líð-
ur að fullnustu dómsins.
Flugvél með sjúkraflutningamönn-
um var aftur send til Grímseyjar
seinna sama kvöld vegna annars ungs
manns sem var þar í annarlegu
ástandi og voru nokkrir sérsveitar-
menn þá einnig með í för en ekkert
hættuástand skapaðist. Var maður-
inn veikur vegna áfengis- og vímu-
efnaneyslu og þurfti að komast á
sjúkrahús til aðhlynningar. Mennirn-
ir tveir þekkjast en ekki er vitað um
frekari tengsl á milli þeirra.
Hættuástand í Grímsey
Handtekinn Hættuástand var yfirstaðið þegar sérsveitin kom á vettvang.
Flogið var með manninn til Akureyrar þar sem hann gisti fangageymslur.
Í HNOTSKURN
»Misheppnaða tilraun tilþess að stinga annan mann
má flokka sem tilraun til stór-
felldrar líkamsárásar á grund-
velli 218. gr. almennra hegn-
ingarlaga og 20. gr. sömu laga
þar sem notuð er hættuleg að-
ferð.
»Vopnaburður á almanna-færi er bannaður. Í 30. gr.
kemur fram að heimilt er að
bera á sér bitvopn þar sem
eðlilegt og sjálfsagt getur tal-
ist, svo sem við vinnu eða veið-
ar eða þegar engin hætta er
því samfara.