Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 2
2 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR Mennt er máttur Verjum skólana fyrir niðurskurði og gerum háskólanemum kleift að stunda nám í sumar. Tökum upp gjaldfrjálsar og hollar skólamáltíðir í grunnskólum landsins og tryggjum þannig að kreppan bitni síður á heilsu og daglegu umhverfi barna. Fannar, eruð þið að skjóta ykkur undan ábyrgð? „Nei, við erum skotheldir.“ Fannar Bergsson er formaður Skotreynar sem hefur aðstöðu til skotæfinga á Álfs- nesi. Íbúar á Kjalarnesi hafa kvartað yfir hávaðamengun, en Fannar segist engin gögn hafa séð um of mikinn hávaða. SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti, eða 61,9 prósent, segist ekki vilja að íslenska krónan verði framtíðar- gjaldmiðill hér á landi. 38,1 pró- sent vill halda í krónuna. Ekki er munur á afstöðu eftir kyni, en íbúar á landsbyggðinni eru heldur jákvæðari gagnvart krónunni en íbúar á höfuðborgar- svæðinu. 57,7 prósent íbúa á lands- byggðinni segjast ekki vilja að krónan verði framtíðargjaldmiðill, en 64,5 prósent íbúa á höfuðborgar- svæðinu eru sama sinnis. Ef litið er til afstöðu fólks eftir stuðningi við stjórnmálaflokka er traust á krónunni mest meðal kjós- enda Sjálfstæðisflokks en minnst meðal kjósenda Samfylkingar. 81,8 prósent kjósenda Samfylk- ingar vill ekki að krónuna til fram- tíðar. 62,1 prósent kjósenda Fram- sóknarflokks er sama sinnis, sem og 59,3 prósent kjósenda Vinstri grænna. Meirihluti kjósenda Sjálf- stæðisflokks vill hins vegar að krónan verði hér framtíðargjald- miðill en 42,3 prósent vilja að skipt verði um gjaldmiðil. Af þeim sem ekki taka afstöðu segjast 57,8 prósent ekki vilja að krónan verði framtíðargjaldmiðill. Hringt var í 800 manns þriðju- daginn 14. apríl og skiptust svar- endur jafnt eftir kyni og hlutfalls- lega eftir búsetu. Spurt var; Vilt þú að krónan verði framtíðargjald- miðill á Íslandi? 83,3 prósent tóku afstöðu til spurningarinnar. - ss Skoðanakönnun Fréttablaðsins um afstöðu til íslensku krónunnar: Sjá ekki framtíð í krónunni 100 80 60 40 20 0% Allir 37 ,9 57 ,7 18 ,2 40 ,7 38 ,1 62 ,1 42 ,3 81 ,8 59 ,3 61 ,9 Vilt þú að krónan verði framtíðargjaldmiðill á Íslandi? Já Nei Skv. könnun Fréttablaðsins 14. apríl UMHVERFISMÁL Kolbrún Hall- dórsdóttir umhverfisráðherra undirritaði nýja reglugerð um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs til norðurs í þjóðgarðinum í gær. Hún tók einnig fyrstu skóflu- stunguna að nýrri gestastofu þjóðgarðsins á Skriðuklaustri. Með stækkun þjóðgarðsins verður Trölladyngja öll, Askja og stór hluti Ódáðahrauns hluti af garðinum. Vatnajökulsþjóðgarð- ur er stærsti þjóðgarður Evrópu. Hann var áður um 11.700 ferkíló- metrar, en hefur nú verið stækk- aður í 13.610 ferkílómetra, sem er um þrettán prósent af flatar- máli Íslands. - bj Vatnajökulsþjóðgarður: Þjóðgarðurinn stækkaður SKÓFLUSTUNGA Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra tók fyrstu skóflu- stunguna að nýrri gestastofu í gær. UMHVERFISMÁL Reykjavíkurborg mun ekki losa borgarbúa við garðaúrgang í ár, eins og verið hefur mörg undanfarin ár. Borgarbúar verða því sjálfir að losa sig við garðaúrgang og greinar. Jón Halldór Jónasson, upplýsingastjóri fram- kvæmda- og eignasviðs, segir að um sparnaðar- aðgerðir sé að ræða. Kostað hefði um 45 milljónir króna að halda úti óbreyttu verklagi hvað úrgang- inn varðar. Jón segir þetta geta valdið borgarbúum óþægindum, enda hafi þessi þjónusta verið til stað- ar í tæp tuttugu ár. Þetta sé hins vegar ekki skil- greind grunnþjónusta hjá borginni. „Við hvetjum borgarbúa til að taka til og köll- um eftir auknu frumkvæði og ábyrgð þeirra.“ Jón segir vonast til að fólk taki höndum saman, haldi jafnvel hreinsunardag í götunni eða götuhátíð og hjálpist að við að koma úrganginum í Sorpu. Jón segir að vissulega hefði mátt láta borgarbúa vita fyrr af breytingunum, en margir hafa þegar komið úrgangi sínum fyrir úti á götu. Venjan sé að borgin hreinsi til í lok apríl, en vegna veðurs hafi fjölmargir þegar hafið vorverkin. Margir hafa komið upp eigin moltugerð í görðum sínum en aðrir verða að koma úrgangi úr görðum sínum til endurvinnslustöðva. - kóp Borgarbúar verða sjálfir að losa sig við úrgang úr görðum í ár: Borgin hirðir ekki garðaúrgang ALÞINGI Óheimilt er að beita börn líkamlegum eða andlegum refs- ingum eftir að Alþingi samþykkti samhljóða breytingar á barna- verndarlögum í gær. Viðurlög eru sektir eða allt að þriggja ára fang- elsisdómur. „Hér eru tekin af öll tvímæli um að það er óheimilt að berja börn, eða veita þeim líkamlega eða and- lega refsingu. Það er mjög gott að brugðist sé svo hratt við,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Með breytingunni eru stjórn- völd meðal annars að bregðast við nýlegum dómi Hæstaréttar, sem sýknaði karlmann af ákærum um brot gegn barnaverndarlögum þrátt fyrir að sannað þætti að hann hefði rassskellt fjögurra og sex ára syni kærustu sinnar. Í dómi Hæstaréttar, sem féll 22. janúar síðastliðinn, segir að í barnaverndarlögum sé ekki lagt fortakalaust bann við því að foreldri beiti barn „líkamleg- um aðgerðum til að bregðast við óþægð“. Ekki sé hægt að refsa fyrir slíkt ofbeldi gegn börnum nema refsingin sé til þess fallin að skaða barnið, andlega eða lík- amlega. Með lagabreytingunum er ekki verið að taka fram fyrir hendur foreldra, segir Bragi. Fjölmarg- ar rannsóknir hafi sýnt fram á að þó líkamlegar refsingar geti virst árangursríkar til skamms tíma séu þær alltaf skaðlegar til lengri tíma litið. Það sama eigi við um andleg- ar refsingar. Bragi segir að meta verði í hverju tilviki fyrir sig hvað falli undir ákvæði um bann við andleg- um refsingum gagnvart börnum. Líta verði svo á að með því sé lagt bann við niðurlægjandi meðferð sem skaði sjálfsmynd barna og trú á eigin getu, geri lítið úr börnum eða hæðist að þeim. Lagabreytingarnar taka ekki eingöngu til foreldra eða forráða- manna, heldur til allra sem beita börn andlegum eða líkamlegum refsingum. Ákvæðin hefðu því einnig náð til leikskólakennara sem nýverið varð uppvís að því að slá leikskólabarn, segir Bragi. Í breytingunni á barnaverndar- lögum er einnig lagfært laga- ákvæði um barnaverndarnefndir. Með því er í raun verið að stoppa í gat á lögunum, og heimila fulltrú- um barnaverndarnefnda að vera viðstaddir skýrslutökur af börn- um, segir Bragi. brjann@frettabladid.is Banna andlegar og líkamlegar refsingar Eftir breytingu á barnaverndarlögum er óheimilt að beita börn líkamlegum eða andlegum refsingum. Nauðsynleg breyting í ljósi nýlegs dóms Hæstaréttar sem sýknaði mann sem flengdi tvo drengi segir forstjóri Barnaverndarstofu. REFSING ALLT AÐ ÞRIGGJA ÁRA FANGELSI Í nýjum ákvæðum barnaverndarlaga segir meðal annars: „Allir sem hafa uppeldi og umönnun barna með höndum skulu sýna þeim virðingu og umhyggju og óheimilt er með öllu að beita börn ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi.“ Í ákvæðunum segir enn fremur: „Hver sem beitir barn andlegum eða líkamlegum refs- ingum, hótunum eða ógnunum eða sýnir af sér aðra vanvirðandi háttsemi gagnvart barni skal sæta sektum eða fangelsi allt að þremur árum.“ REFSAÐ Stjórnvöld brugðust við nýlegum hæstaréttardómi með breytingu á barnaverndar- lögum til að koma í veg fyrir líkamlegar og andlegar refsingar á börnum. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. NORDICPHP0TOS/GHETTY BRETLAND, AP Bæjaryfirvöld í breska sveitaþorpinu Navestock íhuga nú að hætta að gera við holur og aðrar skemmdir á vegum í þorpinu. Vonast bæjarfulltrúar til þess að það dragi úr hraðakstri í gegnum þorpið og dragi úr við- gerðarkostnaði. Áfram verði gert við aðal vegina, en minna notaðir vegir látnir drabbast niður. Íbúar eru ekki allir ánægðir með hugmyndina, og vilja sumir meina að hætta geti skapast verði viðhaldi ekki sinnt. Meðal þeirra er Roy Tyzack, lögreglumaður á eftirlaunum, sem segir hugmynd- ina órökrétta og geta sett vegfar- endur í hættu. - bj Nýstárleg ráð við hraðakstri: Íhuga að hætta viðhaldi vega Þorskárgangurinn sterkur Fyrsta mat Hafrannsóknastofnunar á þorskárganginum árið 2008 bendir til þess að árgangurinn sé sterkur. Þetta kemur fram í niðurstöðum vorralls stofnunarinnar. Stofnvísitala þorsks hækkaði um níu prósent, sem rakið er til þess að meira fékkst af stórum fiski, og holdafarið var betra en áður. FISKVEIÐAR GARÐÚRGANGUR Borgarbúar þurfa sjálfir að losa sig við garð- úrgang sinn í, þar sem Reykjavíkurborg hirðir hann ekki. FJÁRMÁL Utanríkisráðuneytið hefur sent inn athugasemdir um endurskipulagningu evrópsks fjármálakerfis. Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins óskaði eftir tillögum og sjónarmiðum hagsmunaaðila utan Evrópusam- bandsins. Af hálfu Íslands er lögð mikil áhersla á mikilvægi þess að EES/ EFTA-ríkin geti tekið þátt í upp- byggingu nýs fjármálaeftirlits- kerfis og átt aðild að fyrirhug- uðu Fjármálakerfisáhætturáði Evrópu. Þá er lögð mikil áhersla á endurskipulagningu innistæðu- trygginga fyrir fjármálastofnan- ir. Framkvæmdarstjórnin leggur endanlegar tillögur fyrir leið- togafund ESB í júní. - kóp Fjármálakerfi í Evrópu: Ísland sendir inn umsögn ÍTALÍA, AP Sum af yngstu fórnar- lömbum jarðskjálftans á Ítalíu nýverið komust aftur í skólann í gær. Aðstæðurnar voru þó öðru- vísi en fyrir skjálftann, enda fór skólahaldið fram í tjöldum. Liberata Marchi grunnskóla- kennari segir þó búið hafi verið að fara yfir námsefni vetrar- ins að mestu sé mikilvægt fyrir börnin að komast aftur í skól- ann og upplifa að lífið gangi sinn vanagang á ný. - bj Yngstu fórnarlömb skjálftans: Ítölsk börn aftur í skólann SKÓLAHALD Silvio Berlusconi, forsætis- ráðherra Ítalíu, leit við í skólatjöldunum á hamfarasvæðinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.