Fréttablaðið - 17.04.2009, Blaðsíða 52
36 17. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> SAMAN Á NÝ
Drew Barrymore virðist hafa tekið
aftur saman við Justin Long. Þau
sáust í innilegum faðmlögum
á frumsýningu nýjustu mynd-
ar hennar, Gray Gardens. Leik-
konan, sem er 34 ára, batt enda
á samband þeirra í fyrrasumar.
Nú virðist það allt gleymt og
þau þóttu afar innileg á frum-
sýningunni.
Ungstirnið Zac Efron segist ekki vera á leið í hjónaband. Og
því ættu táningsstúlkur að geta tekið gleði sína á ný. Reynd-
ar er Efron lofaður maður, er kærasti mótleikkonu sinnar úr
High School Musical, Vanessu Hudgens, en hyggst ekki biðja
hennar strax. Þau hafa verið saman síðan 2005, sem þykir
nokkuð langur tími meðal unglingastjarna, og hefur töluvert
verið slúðrað um væntanlegt hjónaband þeirra. Lengst gekk
blaðið Enquirer sem hélt því fram í blaðagrein að parið væri
á leiðinni til Japans og þar hygðist Efron bera fram bónorðið.
Það gekk ekki eftir.
Í viðtali við GQ lýsir Efron þessum fréttum sem bölvuðum
þvættingi. „Ég er ekki að fara gifta mig, í þessum bransa
ertu annað hvort á leið í hjónaband eða átt von á barni. Ég
ætla ekki að ganga í hjónaband fyrr en um fertugt, ef þá
nokkurn tíma. Ég hef aldrei pælt í því einu sinni.“
Efron ekki í hjónabandshugleiðingum
Gamanleikarinn Will Ferrell
sýnir á sér nýja hlið í heimildar-
myndaþáttunum Man vs. Wild
sem hafa verið sýndir við miklar
vinsældir á náttúrulífssjónvarps-
stöðinni Discovery. Ferrell dvaldi
í 48 klukkustundir í sænskum
óbyggðum ásamt sérsveitar-
manninum Bear Grylls og lærði
hvernig hann gæti lifað af án
nokkurra vista.
Meðal þess sem aðdáendur
Ferrells fá að sjá er þegar grín-
istinn drekkur eigið þvag en
það er víst eitt af því sem Grylls
hefur kennt áhorfendum sínum
að gera ef þeir lenda í hrakning-
um í óbyggðum. „Ég var mjög
hrifinn af hæfileikum Ferrells,
hann sýndi mikla þrautseigju og
treysti mér þegar mest á reyndi,“
segir Grylls. Ferrell var einnig
mjög hrifinn, þótt hann hefði
aldrei orðið fullur af eigin þvagi.
„Sem er sorgleg staðreynd.“
Will Ferrell í
villtri náttúru
Gunnar Eyjólfsson hefur
farið slíkum hamförum
í hlutverki skipstjórans í
leikverkinu Hart í bak að
jafnvel hörðustu mönnum
hefur vöknað um augu.
Honum barst nýverið skip-
stjórabúningur frá huldu-
manni sem hann auglýsir
nú eftir.
„Ég ætla að leika í þessum búningi
í síðustu sex sýningunum og lang-
ar til þess að bjóða þessum manni
á sýningu,“ segir Gunnar Eyjólfs-
son stórleikari.
Óhætt er hægt að segja að Gunn-
ar hafi hreyft við mörgum sem
skipstjórinn Jónatan sem siglir
óskafleyi íslensku þjóðarinnar í
strand. Hart í bak er eftir Jökul
Jakobsson sem Gunnar þekkti
persónulega og honum þykir aug-
ljóslega vænt um verkið sjálft sem
var frumsýnt í október. „Það var
maður sem hringdi í mig og sagð-
ist hafa farið á sýninguna tvisvar,
hann vildi þakka mér fyrir það að
hafa vakið sig til vitundar um að
hann væri ekki tilfinningalaus.“
Og Gunnari hafa einnig borist
merkilegar og sögulegar gjafir.
Nýverið kom maður og gaf honum
skipstjórahúfu Jónasar Böðvars-
sonar sem stýrði um árabil Brú-
arfossi. Jónas tengist lífi Gunn-
ars einnig með öðrum hætti því
þegar leikarinn hélt sem ungur
maður til Bretlands í ágúst 1945
þá sigldi hann með skipinu undir
styrkri stjórn Jónasar. Um borð
var þá einnig einn frægasti knatt-
spyrnumaður þjóðarinnar og síðar
ráðherra og alþingismaður, Albert
Guðmundsson. „Og þegar við hjón-
in snerum aftur heim þá leigðum
við okkar fyrstu íbúð af Jónasi og
konu hans.“ Gunnar bætir því við
í gríni að hann sé hins vegar eilítið
höfuðstór og því sé nú unnið að því
hörðum höndum að stækka aðeins
húfuna.
Önnur gjöf og ekki síður merki-
leg barst fyrir nokkru frá hálf-
gerðum huldumanni. En það var
skipstjórabúningur sem Gunnar
bregða sér í. „Stúlkurnar frammi
í afgreiðslu tóku við búninginum
en láðist að spyrja hann um nafn
og hann lét sjálfur ekki nafns síns
getið. Mig langar að hafa samband
við hann og þakka honum fyrir
þessa gjöf og fá að vita eitthvað
meira um búninginn og þann sem
klæddist honum,“ segir Gunnar,
hrærður yfir þessum viðtökum.
freyrgigja@frettabladid.is
Gunnar Eyjólfsson
bræðir jafnvel
hörðustu menn
EKKERT BRÚÐKAUP Zac Efron hefur tekið af öll tvímæli
um að hann og unnustan, Vanessa Hudgens, séu á leið-
inni í hnapphelduna.
NORDICPHOTOS/GETTY
Í BÚNINGI MEÐ HÚFU Gunnar Eyjólfsson hefur hreyft við mörgum sem skipstjórinn
Jónatan í Hart í bak. Honum hefur meðal annars verið gefinn skipstjórabúningur af
huldumanni sem hann auglýsir nú eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Baráttan gegn atvinnuleysinu er brýnasta verkefni næstu ríkisstjórnar. Ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur hefur þegar kynnt aðgerðir sem munu skapa 6.000 störf um
allt land á næstu misserum. Næstu verkefni eru endurreisn fjármálakerfisins,
mannaflsfrekar framkvæmdir og efling nýsköpunar og þróunar um allt land auk
nýtingar auðlinda í sátt við umhverfið. Um leið hefjum við samningaviðræður við
ESB til að tryggja blómlegt atvinnulíf á grunni trausts gjaldmiðils – evrunnar.
Við ætlum að koma öllum vinnufúsum höndum, karla jafnt sem kvenna, til starfa.
Þannig verður kreppan stutt.
Vinnum
gegn atvinnuleysi
www.xs.is
Kristján L. Möller
1. sæti í Norðausturkjördæmi
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
2. sæti í Reykjavík suður
Ný́jan
kaptein
í́ brú́na
Framboðsfundur á Apótekinu
föstudaginn 17. apríl,
klukkan 23.00-01.00.
Veigar að hætti kapteinsins.