Fréttablaðið - 17.04.2009, Side 64

Fréttablaðið - 17.04.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Í dag er föstudagurinn 17. apríl, 107. dagur ársins. 5.49 13.27 21.08 5.26 13.12 21.00 Metsölubókahöfundurinn og matarvitringurinn Nanna Rögnvaldardóttir sagði mér eitt sinn að hún hefði þá reglu að segja aldrei nei þegar hún væri beðin um að tala í blöðum eða ljósvakamiðlum – af þeirri ein- földu ástæðu að hún hefði heyrt að erfiðara væri að fá konur sem viðmælendur. Það yrði þá kannski hennar eina framlag á jafnréttis vogarskálarnar. Því miður stemmir þetta við reynslu undirritaðrar. GETUR verið að fjölmiðlar, þar sem þó svo margar konur starfa, séu svo fjandsamlegir kvenfólki, að þeir inni þær sjaldnar eftir áliti í fréttum eða fréttaþáttum og taki þær síður fyrir sem umfjöll- unarefni? Niðurstöðurnar liggja fyrir sem staðreynd, til að mynda í rannsókn frá árinu 2005. Konur eru sjaldnar á síðum blaða og á öldum ljósvakans. En getur verið að okkur konum sé sjálfum um að kenna að einhverju leyti? MARGAR konur taka vel í að tala fyrir opnum tjöldum og víla ekki fyrir sér að gefa álit sitt, séu þær inntar eftir því. Hitt er annað mál að skoði ég hversu langan tíma ég þarf að eyða í það að fá karlmann eða konu í spjall, þá vinnur karl- maðurinn, sem segir samkvæmt mínum skráningum oftar já og fljótar. Of langt mál er að fara í gegnum alla þá lista en sem lítið dæmi nefni ég að fyrir um einu ári sendi ég út spurningar á hóp fólks, með jöfnu kynjahlutfalli, og bað um álit á ákveðnu efni. Svör bárust frá tíu konum og 25 karl- mönnum. AF hverju þetta er reyndin er svo annað rannsóknarefni. Ég hef heyrt þekktar konur hér í bæ klappa sjálfum sér á bakið og segja sig „fjölmiðlafælnar“. Þær séu að „spara sig“ og láta í það skína að þeim finnist þær fínn pappír að segja nei og aftur nei þegar blaðamenn hringja í þær. Slíkt er helber misskilningur og gerir lítið í að þoka jafnréttinu fram. ÉG veit að til eru líka þeir karl menn sem forðast að láta eitt- hvað eftir sér hafa opinberlega. Munurinn er sá að karl peningur- inn má alveg við því. Nóg er af karlmönnum sem vilja koma fram í blöðum og sjónvarpi. Við konur eigum hins vegar að gera hver annarri greiða og nýta okkur það þegar sóst er eftir kvenlegum sjónarmiðum á opinberum vett- vangi. Og setja okkur það mark- mið að segja sem oftast já. Segð´ ekki nei BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexandersdóttur H E I L S U R Ú M 20-30% AFSLÁTTUR AF SVEFNSÓFUM Einn stæðsti og glæsilegastisvefnsófa-sýningarsalur landsins VERÐ FRÁ 37.840 kr. 20-30% AFSLÁTTUR AF FJÖLSTILLANLEGUM HEILSURÚMUM (2x80x200) Hægt er að velja um no kkrar gerðir af heilsudýnum VERÐ FRÁ 199.000 kr. Með öllum keyptum rúmum er 25% AFSLÁTTUR af öllum vörum í mjúku deild Rekkjunnar 25% AFSLÁTTUR! HEILSUKODDAR FRÁ 7.900 kr. SÆANGURFATNAÐUR FRÁ 5.300 kr. Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 30% AFSLÁTTUR!Leður rúmstæði meðlaxex heilsudýnu(160x200)Verð 247.180 kr. NÚ FRÁ 173.026 kr.35% AFSLÁTTUR! Þrýstijöfnunar- svampsrúm Queen size (153x203) Verð 165.500 kr. NÚ 107.575 kr. ÞÝSTIJÖFNUNARSVAMPUR A R G H ! 0 4 0 4 0 9 Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.