Morgunblaðið - 08.09.2008, Page 2

Morgunblaðið - 08.09.2008, Page 2
2 F MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Opið mán.-fös. kl. 9-17.00 Haukur Geir Garðarsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali haukur@fastis.is Ásbjörg Högnadóttir sölufulltrúi asbjorg@fastis.is Í einkasölu rúmgóð, 94 ferm., 3ja her- bergja íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýli. Stofa, 2 svefnherb., eldhús, baðherbergi og þvottaherbergi í íbúð. Parket. ÁKVEÐIN SALA. RJÚPNASALIR - KÓP. 3 Vorum að fá í sölu fallega og rúmgóða 3ja herb. íb. ofarlega í lyftuhúsi með stórglæsi- legu útsýni í þrjár áttir og 15 ferm. yfir- byggðar svalir. L.f. þvottavél í íbúð, þurrk- herbergi á hæðinni. Sérbílastæði. Ásett verð 22,2 millj. ORRAHÓLAR – ÚTSÝNI 3 Vorum að fá í einkasölu glæsilega 111 fer- metra 3ja herb. íbúð á jarðhæð í litlu ný- legu fjölbýli ásamt stæði í bílskýli. Stofa með hurð út á verönd, 2 herbergi, vandað eldhús, baðherbergi með baðkari og sturtu og þvottahús. Parket og flísar á gólfum. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslítið. Áhv. um 16 millj. Ásett verð 33,8 millj. BOÐAGRANDI - NÝTT HÚS - BÍLSK. 2 Vorum að fá í einkasölu góða 4ra herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílskýli á þessum vinsæla stað. Hol, stofa með suðvestursvölum, 3 svefnher- bergi, eldhús og baðherbergi. Góð sam- eign. Hús nýlega yfirfarið og málað. Ásett verð 26,9 millj. BOÐAGRANDI - BÍLSKÝLI 4 Vorum að fá í einkasölu vel skipulagt 4ra herbergja 126,5 fm raðhús á einni hæð á góðum stað á Kjalarnesinu. Íbúðin er björt og opin þar sem lofthæðin fær að njóta sín. Rúmgott eldhús, björt stofa, 3 her- bergi, þvottahús og baðherbergi sem ný- lega var tekið í gegn. Timburverönd og af- girtur suðurgarður. LÆKKAÐ VERÐ 26,9 millj. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 19.00 – 19.30 ESJUGRUND 90, KJALARNES - OPIÐ HÚS Glæsileg 4ra herb. 90,5 fm nýuppgerð hæð í þríb. auk 17,2 fm bílskúrs á góðum stað í Sundunum. Íbúðin er sérlega björt og rúmg. Eldhús, stofa, 3 herb. og flísal. baðherb. Eik í innr., hurðum og fallegu plankaparketi. Sameiginl. þvhús. Stór og gróinn garður. Endurn. vatns- lagnir og rafmagn. ÝMIS SKIPTI MÖGULEG. Ásett verð 33,7 millj. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 18.00–18.30. SKIPASUND 11, GLÆSIL. HÆÐ – OPIÐ HÚS Vorum að fá í sölu góða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Endurnýjaðar lagn- ir og rafmagn. Áhv. um 2,5 m. húsbréf. Góð fyrstu kaup fyrir þá sem vilja vera miðsvæðis. Ásett verð 14,9 millj. SNORRABRAUT – FYRSTU KAUP 2 Síðasta einingin. Um er að ræða 132 fer- metra einingu í nýl. iðnaðarhúsnæði sem er klætt að utan. Mjög góð lofthæð allt að 7 metrar. Milliloft að hluta. Stórar innkeyrslu- dyr. Gott athafnasvæði. Sanngjarnt verð: 19,9 millj. STEINHELLA – HAGSTÆTT VERÐ Atv Vorum að fá í einkasölu um 27 fermetra nýlega geymslu/bílskúr á afgirtu og vökt- uðu svæði í Hafnarfirði. Hiti, vatn og raf- magn. Malbikað plan. Sameiginlegar snyrt- ingar. Mjög gott húsfélag. Áhvíl. um 1,5 millj. Laust strax. Verð 3,9 millj.. HAFNARFJÖRÐUR – BÍLSK./GEYMSLA Atv SK IP TI „ÉG vil að búðin skapi ákveðin hug- hrif og að þeir sem hingað koma upplifi stemningu við að skoða búð- ina og galleríið,“ segir Kolbrún Ró- berts listmálari og eigandi versl- unarinnar Augnakonfekts sem opnuð var fyrir skömmu á nýjum stað að Bæjarlind 1 í Kópavogi. Kolbrún, sem hefur verið listmál- ari í tíu ár, segist hafa reynt að finna leið til að vera með vinnustofu þegar henni datt í hug að opna verslunina. „Ég hef haldið sýningu árlega en langaði að verða sýnilegri listamað- ur. Ég fór á sýningu erlendis og féll fyrir húsgögnum með handmáluðum eftirmyndum verka eftir 19. aldar listmálarann Gustav Klimt. Ég fékk í framhaldinu hugmynd að því að blanda saman verslunarrekstri með fallegum handgerðum munum og galleríi.“ Kolbrún segir að síðan þá hafi hugmyndin undið upp á sig. „Ég held ég hafi „misst“ mig því núna er ég með húsgögn frá Kólumbíu, list- muni og gjafavörur frá Þýskalandi, muni frá Bandaríkjunum, Kína, Frakklandi, Ítalíu og Indlandi, svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru munir sem ég hef séð á sýningum eða fund- ið á netinu og flutt hingað,“ segir Kolbrún, en í búðinni eru verk henn- ar einnigtil sýnis. „Ég er með opna vinnustofu inn af búðinni og get því sinnt listinni samhliða versluninni,“ segir Kolbrún sem segist geta breytt lýsingu búðarinnar eftir tilefni hvert sinn, hvort sem húsnæðið á að vera gallerí eða gjafavöruverslun. Kol- brún segir ennfremur að þótt aug- lýstur opnunartími sé kl. 11-19 á virkum dögum og á laugardögum þá eyði hún löngum stundum á vinnu- stofunni og þá sé búðin einnig opin. „Ég hef fengið fólk hingað á öllum tímum sólarhrings. Ef ég er hér þá hef ég opnar dyr og þá finnst mér sjálfsagt að hafa búðina opna.“ Kolbrún hefur ekki reynslu af verslunarrekstri en hefur fengið dygga aðstoð frá Vali Heiðari Sæv- arssyni sem var með verslunina Hann, hún og heimilið, sem versl- unin Augnakonfekt tók við að hluta. Hún segist bjartsýn á framtíðina þótt harðnað hafi á dalnum að und- anförnu. „Ég trúi á alheimsorku og að maður laði hluti að sér. Ég hef upplifað það mjög sterkt í búðinni, eitt leiddi af öðru, ferlið var eins kon- ar flæði. Og nú hef ég Augnakonfekt sem ég hef gefið mig alla í, raðað upp eftir ákveðinni hugsjón og get um leið sýnt myndirnar mínar eins og ég ætlaði mér.“ Kolbrún segir ósk sína þá að viðskiptavinir og gestir Augna- konfekts finni fyrir þeirri stemningu sem hún hefur reynt að skapa. „Þeg- ar fólk hefur orð á því að það sé góð- ur eða skemmtilegur andi í búðinni er takmarki mínu náð.“ gudrunhulda@mbl.is Leidd áfram af flæðinu Handverk Þessa sjarmerandi handmáluðu gipsplatta fær Kolbrún senda frá Bandaríkjunum. TENGLAR ........................................... http://augnakonfekt.is/ Söfnunarstell Kolbrún tók við umboðinu fyrir Mikasa af versluninni Kristall &Postulín á dögunum. Morgunblaðið/Golli Djörf Listaverk Kolbrúnar setja sterkan svip á versl- unina Augnakonfekt. Ásbyrgi ......................................... 17 Borgir ............................................ 12 DP fasteignir .............................. 22 Eignaborg .................................... 25 Eignamiðlun .......................... 18-19 Eik .................................................. 13 Fasteign.is .................................. 20 Fasteignamarkaðurinn ............... 11 Fasteignamiðlun ....................... 26 Fasteignasala Íslands ................. 2 Fasteignastofan ........................... 6 Fold ............................................... 23 Garðatorg ....................................... 6 Gimli ................................................ 3 Hraunhamar ............................. 8-9 Húsanaust .................................... 10 Híbýli ............................................. 16 Höfði ................................................ 7 ÍAV ................................................. 21 Lundur .......................................... 28 Miðborg ......................................... 17 Miklaborg ..................................... 14 Remax Skeifan .............................. 9 Skeifan ......................................... 25 Stórhús ........................................ 24 Valhöll ........................................ 4-5 Efnisyfirlit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.