Morgunblaðið - 08.09.2008, Side 12
12 F MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 9-17
Snorri Egilsson, lögg. fasteignasali, sölustjóri. Björn Stefánsson, sölufulltrúi. Úlfur Sveinbjarnarson, skjalagerð, Þóra
Björk Gísladóttir, ritari, Sigríður Gunnlaugsdóttir, lögg. fasteignasali. Ægir Breiðfjörð, lögg. fasteignasali.
Netfang: borgir@borgir.is • www.borgir.is
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
TRÖLLAKÓR - FLOTT VERÐ OG KJÖR
Sýnum daglega – hringið í Björn s: 698 9056 og Ægi s: 896 8030
til að skoða og ræða kosti og kjör.
Vandaðar nýjar íbúðir í fjögurra hæða lyftuhúsi. Stæði í lokuðu bílskýli fylgir. Íbúðirnar eru
3ja og 4ra herbergja og stærð frá 100 fermetrum. Talið við okkur um kjör og verð. SÖLU-
MENN SÝNA. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar. 8017
SKÓLABRAUT - ELDRI BORGARAR
Höfum eina ca 79 fm endaíbúð á efstu hæð, aðra af sömu stærð á 2. hæð og einnig eina
einstaklings íbúð, í lyftuhúsi fyrir 65 ára og eldri. Íbúðirnar geta losnað fljótlega. Mikil þjón-
usta í húsinu í samvinnu við bæjarfélagið. Sjá myndir á netinu. 8255
HJARÐARHAGI
Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi. Lítið aukaherbergi í risi. Parket á gólf-
um. Laus strax. V. 23,5 m. 8231
SKEIFAN
Iðnaðarhúsnæði sem er 246,5 fm og skiptist þannig að171,1 fm er á jarðhæð en milliloft er
75,4 fm Í húsnæðinu er rekið bílaverkstæði og er það vel búið af tækjum (fjórar lyftur og
fjórar greiningartölvur) Verkstæðið hefur sérhæft sig í viðgerðum á bílum frá Heklu. Rekstur
og húsnæði er til sölu hvort sem er í einu lagi eða sitt hvoru. Verð á húsnæði er kr. 55,0
milljónir og á rekstri og tækjum kr. 17,5milljónir. V. 55,0 m. 8271
VESTURGATA
Falleg þriggja herbergja efri sérhæð í parhúsi.Húsið er byggt 2004 og er steinsteypt með ál-
klæðningu. Lítil lóð er með húsinu og er húsið bakhús. Vandaðar innréttingar. Laust strax. V.
26,5 m. 8266
GRENSÁSVEGUR
Falleg ca 75 fm íbúð á 2.hæð í litlu fjölbýli.Íbúðin er mikið endurnýjuð. Parket og flísar á
gólfum. V. 19,5 m. 7969
BORGIR ERU Í FÉLAGI FASTEIGNASALA
Fasteignasala dróst saman
um 66,9% á milli ára
Alls var 286 kaupsamningum fast-
eigna þinglýst við sýslumannsemb-
ættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst.
Heildarvelta nam 9,4 milljörðum
króna. Þegar ágúst 2008 er borinn
saman við ágúst
2007 fækkar
kaupsamningum
um 66,9% og
velta minnkar um
63%. Í ágúst 2007
var þinglýst 864
kaupsamningum,
velta nam 25,3
milljörðum króna
Viðskipti með
eignir í fjölbýli
námu 5,6 millj-
örðum í ágúst
2008, viðskipti
með eignir í sér-
býli 2,1 millj-
örðum og viðskipti með aðrar eignir
1,6 milljörðum króna.
Þegar ágúst 2008 er borinn saman
við júlí 2008 fækkar kaupsamn-
ingum um 20,8% og velta minnkar
um 19,8%. Í júlí 2008 var þinglýst
361 kaupsamningi, velta nam 11,7
milljörðum króna og meðalupphæð á
hvern kaupsamning 32,3 milljónir
króna. Fjöldi þinglýstra kaupsamn-
inga á Akureyri í ágúst 2008 var 31.
Þar af voru sautján samningar um
eignir í fjölbýli, þrettán samningar
um eignir í sérbýli og einn samn-
ingur um annars konar eign.
Heildarveltan var 704 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
22,7 milljónir króna.
Á sama tíma var fjórtán samn-
ingum þinglýst á Árborgarsvæðinu.
Þar af voru fimm samningar um
eignir í fjölbýli, átta samningar um
eignir í sérbýli og einn samningur
um annars konar eign. Heildar-
veltan var 279 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 19,9 millj-
ónir króna.
Þá var átta samningum þinglýst á
Akranesi. Þar af voru fjórir samn-
ingar um eignir í fjölbýli og fjórir
samningar um eignir í sérbýli.
Heildarveltan var 147 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
19,9 milljónir króna. Á sama tíma
var 37 samningum þinglýst í
Reykjanesbæ. Þar af voru 27 samn-
ingar um eignir í fjölbýli, sjö samn-
ingar um eignir í sérbýli og þrír
samningar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 1.456 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
39,4 milljónir króna, að því er fram
kemur á vef Fasteignamats ríkisins.
Húsnæðisverð í Bretlandi
lækkaði um 12,7% á ári
Fasteignaverð í Bretlandi hefur
lækkað um 12,7% á undanförnum 12
mánuðum að sögn breska fasteigna-
lánasjóðsins Halifax. Er þetta mesta
verðlækkun, sem orðið hefur á fast-
eignamarkaði á einu ári þar í landi
frá því byrjað var að halda saman
þessum upplýsingum árið 1983.
Fasteignaverð hefur lækkað sjö
mánuði í röð. Á sama tíma hefur svo-
nefnd húsnæðisverðbólga, sem mæl-
ir meðalkostnað húseigenda á
þriggja mánaða tímabili samanborið
við sama tímabil árið á undan, hækk-
að um 10,9%. Meðalverð í fasteigna-
viðskiptum í Bretlandi er nú 174.178
pund eða 26,3 milljónir króna.
Vellíðan á Vallarheiði
Megnið af þeim stúdentum sem
leigja húsnæði á Vallarheiði, fyrrum
yfirráðasvæði varnarliðsins við
Keflavíkurflugvöll, hefur lýst yfir
ánægju sinni með aðstöðuna í könn-
un sem Capacent Gallup lét gera.
Í fréttatilkynningu frá Þróunar-
félagi Keflavíkurflugvallar segir að
meðal helstu niðurstaðna könnunar-
innar sé að 87,4% íbúa eru ánægð
eða mjög ánægð með Vallarheiði
sem búsetustað og 92,5% telja að
uppbygging á Vallarheiði hafi tekist
vel.
FASTEIGNIR
ÞETTA HELST …
Reykjavík | Fasteignasalan Miðborg er með á
sölu 170,9 fm einbýli á tveimur hæðum við Skeið-
arvog í Reykjavík. Bílskúrinn er þar af 31,7 fm.
Eignin skiptist í forstofu, snyrtingu, sjónvarps-
hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú
svefnherbergi, geymslu og bílskúr og er eignin
laus við kaupsamning.
Komið er inn í forstofu með fataskápum. Inn af
forstofu er parketlagt hol, Gestasnyrting er flísa-
lögð í hólf og gólf með upphengdu salerni. Stofa
og borðstofa eru samliggjandi með parketi á gólfi.
Útgangur er úr stofu út á fallega verönd. Eldhús
er parketlagt með viðarinnréttingu og stáltækj-
um. Borðkrókur er í eldhúsi. Gengið er upp
nokkrar tröppur þar sem tvö svefnherbergi eru
með skápum. Baðherbergi er á hæðinni með bað-
kari. Út frá forstofu er gengið niður nokkrar
tröppur niður á jarðhæð. Þar er parketlagt her-
bergi. Þvottahús er á jarðhæð með lökkuðu gólfi
og glugga. Bílskúr er fullbúinn með rafmagni og
hita.
Að sögn eigenda var nýlega gert við steypu á
húsinu og húsið var málað í sumar. Garðurinn er
snyrtilegur og gróinn. Hiti er í hellulögn fyrir
framan hús. Stutt er í alla þjónustu. Að sögn fast-
eignasala er áhvílandi hagstætt lán.
Ásett verð er 53,7 milljónir.
Skeiðarvogur 153
53,7 milljónir Fasteignasalan Miðborg er með þetta hús á sölu.