Morgunblaðið - 08.09.2008, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2008 F 25
Hafnarfjörður | Fasteignasalan Fold
er með í sölu einbýli á jaðarlóð með
aukaíbúð.
Á efri hæðinni eru fjögur svefn-
herbergi, baðherbergi, þvottahús,
stórt eldhús og stofa. Úr eldhúsi er
rennihurð út í garð, en í stofu er út-
gengt út á svalir með fallegu útsýni
að sögn fasteignasala.
Að innan afhendist húsið fullbúið
með eldunartækjum í eldhúsi, bað-
herbergi, þvottahúsi og flísalögðu
anddyri. Allar innréttingar og fata-
skápar eru frá DK innréttingum.
Hiti er í gólfi að hluta og vegg-
hengdir ofnar að hluta. Gluggar og
útihurðir frá Gluggasmiðjunni. Allar
innihurðir fylgja en þær eru úr
hvíttaðri eik frá Parket og Gólf.
Húsið er efst í götu á jaðarlóð,
innst í botnlanga og ekki verður
byggt ofan við húsið. Á neðri hæð er
stórt anddyri með skáp og þar er
innangengt í bílskúr, en hann af-
hendist tilbúin undir sandspörtlun.
Á neðri hæð er fullbúin tveggja
herbergja íbúð með sérinngangi,
svefnherbergi, stofu, eldhúsi, bað-
herbergi og þvottaaðstöðu á baðher-
bergi. Parketlagt gólf, flísalagt and-
dyri og baðherbergi. Auðvelt er að
opna á milli íbúðanna og samnýta.
Afhending er eftirfarandi; án gólf-
efna og ómúrað að utan, þak og þak-
kantur frágenginn, gluggar og gler í
sett, svalir með handrið. Þakið er
venjulegt Aluzink-þak. Gluggar eru
úr oregano pine, sprautaðir hvítir.
Gler er Sunergy K-gler. Útihurðir
eru úr oregano pine, sprautaðar
hvítar, með þriggja punkta læsingu.
Bílskúrshurð er stál-flekahurð á
brautum með mótor. Seljandi greið-
ir öll heimtaugagjöld. Lóð afhendist
grófjöfnuð.
Stutt er í golfvelli og hesthúsa-
byggð og göngufæri í skóla.
Tilboð óskast í eignina.
Tilboð Fasteignasalan Fold er með einbýlishús í Hafnarfirði á sölu.
Brekkuás
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Glæsilegar sérhæðir á frábærum stað við Fossa-
hvarf í Kópavogi. Neðri hæðirnar eru 129,9 fm Efri
hæðirnar eru 147,4 fm ásamt 31 fm bílskúr, alls því
178,4 fm Auk ca 50 fm suðursvalir ofan á bílskúr.
Fossahvarf 1-5 eru þrjú tveggja hæða hús sem
tengjast saman á bílskúrunum. Í hverju húsi eru
tvær sérhæðir, með efri hæðunum fylgir bílskúr. Sér suðurlóð fylgir íbúðum á 1. hæð.
Íbúðirnar afhendast tilbúnar undir tréverk og málningu. Húsin afhendast fullbúin að ut-
an, lóð frágengin. Húsin verða steinuð að utan. Fallegt útsýni. Stutt í skóla. Afhending
í jan/febr. 2008. Verð á neðri hæð frá 30,9 millj. Efri hæð frá 38,9 millj.
F O S S A H VA R F - S É R H Æ Ð I R
F R Á B Æ R S TA Ð S E T N I N G
Mjög gott 120 fm verslunar- og atvinnuhúsnæði
á götuhæð ásamt ca 40 fm nýju millilofti. Hús-
næðið er bjart og lítur vel út. Inngangur er á
suðurhlið húsnæðisins, einnig eru góðir gluggar
á norðurhlið. Nýr frontur er á suðurhlið. Lóð frá-
gengin. Laust strax. Verð 26 millj.
S M I Ð J U V E G U R
L A U S T S T R A X
EYSTEINN SIGURÐSSON lögg. fasteignasali • MAGNÚS HILMARSSON • JÓN ÞÓR INGIMUNDARSON
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 9.00 TIL 17.00 • WWW.SKEIFAN.IS
3ja herbergja
GERÐHAMRAR Falleg 70 fm 3ja her-
bergja íbúð á jarðhæð í tvíbýli á góðum
stað í Hamrahverfi. Sérinngangur og sér
suður lóð. Tvö svefnherbergi. Fallegar inn-
réttingar. Parket. Hiti í stétt. Sér bílastæði.
Ath. geymsla íbúðar er ekki innifalin í fer-
metratölu íbúðar. Verð 18,6 millj.
HÁAGERÐI
Falleg 3ja til 4ra herb. 73 fm neðri hæð í
raðhúsi. 2 til 3 svefnh. Gengið er út frá
stofu út á timburverönd í suður með heit-
um potti. Parket. Sérinngangur. Sérlega
skemmtileg eign á frábærum stað. Stutt í
alla þjónustu.
HÁAGERÐI
Sérlega falleg og mikið endurnýjuð 3ja
herbergja risíbúð í endahúsi á þessum eft-
irsótta stað í Smáíbúðahverfinu. Fallegar
innréttingar. Parket. Suðursvalir út frá
stofu. Falleg ræktuð lóð. Búið er að end-
urnýja þak, gler og pípulögn að mestu
leyti. Verð 19,9 millj.
2ja herbergja
HVERFISGATA
Mjög falleg og afar sérstök, rúmgóð 2ja
herbergja risíbúð á 3ju hæð í góðu timbur-
húsi í hjarta Miðb. Íbúðin er skráð 68 fm
en gólfflötur er ca 90 til 95 fm Viðargólf-
borð á gólfum. Verð 24,6 millj.
Einbýlis-, rað-, parhús
FANNAFOLD
Vorum að fá í einkasölu fallegt og vel við
haldið 113,6 fm einbýlishús á einni hæð
ásamt 37 fm bílskúr. Alls 150,6 fm. Parket.
Góður garður með timburverönd í suður.
Gott bílaplan með hita. Góð staðsetning.
Verð 45,6 millj.
SUÐURÁS
Sérlega vandað og fallegt 191.7 fm. rað-
hús á tveimur hæðum með innbyggðum
27,5 fm. bílskúr. Sérlega glæsilegar inn-
réttingar. Parket og flísar. Stór timburver-
önd í suður. Frábær staðsetning. Verð
51,9 millj.
5-7 herb. og sérh.
TJARNARBÓL Falleg 5 herbergja
íbúð á 4. hæð á frábærum útsýnisstað.
Parket. Góðar innréttingar. 4 svefnher-
bergi. Stórar og fallegar stofur. Suðvestur-
svalir. Frábær staðsetning og útsýni út yf-
ir sjóinn. Verð 29,2 millj.
4ra herbergja
MÍMISVEGUR
Vorum að fá í sölu 101 fm hæð ásamt 15
fm herb. í risi með svölum og 20 fm bíl-
skúr. Samt. 136 fm á einum besta stað í
Þingholtunum. Íb. skiptist í 2 saml. stofur
og 2 herbergi. Íbúðin þarfnast standsetn-
ingar. Laus strax. Verð 38,2 millj.
GALTALIND Glæsileg 4ra herb. 125 fm
neðri sérhæð í fallegu húsi á þessum frá-
bæra stað í Lindarhverfi. Fallegar innrétting-
ar. Parket. Stórar svalir með frábæru útsýni.
Íbúðin er 4ra herb., en eitt herbergi hefur
verið tekið niður til að stækka stofuna, auð-
velt að breyta aftur. Sérlega falleg eign á frá-
bærum stað. Verð 31,5 millj.
23 ára á b y r g þ j ó n u s t a
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
☎564 1500
30 ára
EIGNABORG
Fasteignasala
www.eignaborg.is
BÓLSTAÐARHLÍÐ Mikið
endurnýjuð 114 fm 4ra herbergja íbúð á 4.
hæð, kirsjberjainnrétting í eldhúsi, eikar-
parket á eldhúsi, herb. og stofu, flísar á
baðherbergi, nýbúið er að skipta um allar
innréttingar og gólfefni í íbúðinni. Mögu-
leiki á að taka minni íbúð upp í.
FRAMNESVEGUR Góð
116,3 fm 5 herb. íbúð á 2. hæð, fjögur
svefnherbergi, stórir skápar á svefnher-
bergisgangi, rúmgott eldhús, þvottahús
innaf eldhúsi, stór stofa með parketi og
suðursvölum.
VALSHÓLAR 75 fm 2ja-3ja
herb. íbúð á jarðhæð, hvít innrétting í eld-
húsi, parket á stofu og herb. Þvottahús
innan íbúðar, sérgarður.
LÆKJASMÁRI 82 fm 2ja heb.
íbúð á jarðhæð, góð innrétting í eldhúsi,
rúmgott svefnherb. með skáp, á stofu og
herb. er merbau parket, úr stofu er gengið
út á sér lóð sem er afgirt.
EFSTIHJALLI Íbúðin er öll
nýinnréttuð, parket á stofu og herbergi,
flísar á forstofu, baðherbergi og eldhúsi,
nýjar innihurðir og nýir skápar og rafmagn
er að mestu nýtt. Ekki hefur verið búið í
íbúðinni eftir að hún var endurnýjuð.
Glæsileg íbúð, áhvílandi lán ca 17,5 m.
BAUGAKÓR 88 fm 3ja herb.
íbúð á 1. hæð, með svalainngangi. Falleg
innrétting í eldhúsi, þrjú svefnherbergi,
stofa með eikarparket, úr stofu er gengið
út á vestursvalir. Rúmgott stæði í bílahúsi.
LÆKJASMÁRI 117 fm 4ra
herb. íbúð 2. hæð, innrétting í eldhúsi
með krisjuberjaspæni, þrjú svefnherb.
með skápum og parketi, á stofu parket, úr
stofu er gengið út á suðursvalir, þvottahús
innan íbúðar. Möguleiki á að taka 3ja
herb. íbúð upp í kaupverðið í sama hverfi.
ATVINNUHÚSNÆÐI
FURUGEÐI 3 - Rvk. 98 fm
skrifstofuhúsnæði á götuhæð sem skipt-
ist í anddyri, 5 góðar skrifstofur, fun-
darherbergi, opið rými og salerni. Þetta er
sérlega hentugt fyrir t.d. endurskoðendur,
lögfræðinga, tannlækna og aðra sem vilja
góða og þægilega aðkomu og bílastæði
miðsvæðis í Reykjavík.
SMIÐJUVEGUR 320 fm
atvinnuhúsnæði með innkeyrsluhurð og
gönguhurð, húsnæðið eru þrjú súlubil,
þannig að hægt er að setja fleiri
innkeyrsluhurðir, gólf nýlega flotað og
málað. Steypt bílastæði framan við húsið.
Reiðholt-Rangárþing-
Ytra Til sölu 50 ha. Landið liggur að
jöðinni Haga. Búið er að fá samþykki fyrir
þremur húsum allt að 100 m2 hvert hús á
1.200 fm lóð. Teikningar, myndir og
nánari upplýsingar á skrifstofunni.
SÝNINGIN 8+8 Made in Hafnar-
fjörður stendur nú yfir en á henni má
sjá afrakstur samstarfs átta hönn-
uða og hönnunarteyma og átta hafn-
firskra framleiðslufyrirtækja. Sam-
starfið fólst í því að hönnuður og
framleiðslufyrirtæki unnu saman við
að þróa og skapa vöru en hönnuðirn-
ir unnu út frá sérkennum og fram-
leiðslumöguleikum fyrirtækjanna.
Var markmið verkefnisins að sýna
fram á möguleika sem felast í sam-
starfi hönnuða við fyrirtæki með það
að leiðarljósi að skapa ný tækifæri
og innleiða sýn hönnunar að þróun
vöru.
Til sýnis er afrakstur samstarfs
átta alþjóðlegra hönnuða og átta
hafnfirskra framleiðslufyrirtækja,
en verkefnið á að sýna fram á þá
ónýttu möguleika sem felast í sam-
starfi hönnuða við fyrirtæki.
Á sýningunni má sjá afrakstur
samstarfs þýska iðnhönnuðarins Jo-
hannes Fuchs og trésmiðjunnar
Breiður, verk eftir Katrínu Ólínu
sem hún gerði í samstarfi við Mest,
Egill Kalevi Karlsson hannaði fyrir
stoðtækjaframleiðsluna Stoð. Þá á
hönnunarteymið El Ultimo Grito frá
Spáni verk sem þau unnu í samstarfi
við RB rúm, annað hönnunarteymi
að nafni Studio Makkink & Bey unnu
fyrir Málmsteypuna Hellu, Bryn-
hildur Pálsdóttir og Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir unnu fyrir Rafhitun
undir nafninu Borðið. Páll Einarsson
hannaði fyrir fyrirtækið Flúrlampar
og Hildigunnur og Snæfríð hönnuðu
með Prentheimum.
Sýningin 8+8 Made in Hafnar-
fjörður er hluti af hundrað ára af-
mæli Hafnarfjarðarbæjar og er
haldið á vegum Hafnarborgar og
Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Hún
er staðsett í sýningarsalnum Dverg
við Lækjargötu 2 í Hafnarfirði og
stendur til 5. október.
8+8 Made in Hafnarfjörður Afrakstur samstarfs Johannes Fuchs og Trésmiðjunnar Breiður.
Hönnuðir og fyrirtæki taka
höndum saman í Hafnarfirði