Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008 Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is MÖRG sveitarfélög eiga peninga í peningamark- aðssjóðum. Þeirra á meðal eru Hvalfjarðarsveit og Fljótsdalshreppur sem hafa síðustu ár haft miklar tekjur af verksmiðjunum á Grundartanga annars vegar og hins vegar af framkvæmdum við Kárahnjúka. Bæði sveitarfélögin hafa tapað peningum í sjóðunum; Hvalfjarðarsveit 10-20 milljónum króna, en Fljótsdalshreppur hærri upphæð sem þó fékkst ekki uppgefinn hjá odd- vita sveitarinnar. Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti Fljótsdals- hrepps, segir að upplýsingar um tap sveitarfé- lagsins verði kunngerðar á fundi sveitarstjórnar í næstu viku. „Við vorum með hluta af óráðstöf- uðu fé okkar í eignastýringu hjá viðskiptabanka okkar, Landsbankanum, og hluti af þessu fé var inni á peningamarkaðssjóðum, segir Gunnþór- unn. Kröfuhafar hljóta að skoða sína stöðu „Það var þannig að innistæður voru almennt ekki tryggðar nema að þremur milljónum á hverri kennitölu. Síðan var það ákvörðun rík- isvaldsins að tryggja innistæður á bankareikn- ingum að fullu. Það vissum við ekki fyrir ári.“ Gunnþórunn segir að fjármunir sveitarfé- lagsins hafi verið ávaxtaðir á ýmsan hátt og ekki séu öll kurl komin til grafar. Hún vill ekki gefa upp hversu miklu sé útlit fyrir að Fljótdals- hreppur tapi, en segir að það sé of mikið. „Niðurstaðan er ekki góð og það er sorglegt að tekjur íbúanna skuli tapast með þessum hætti. Kröfuhafar í peningamarkaðssjóðum hljóta hins vegar að að skoða sína stöðu miðað við það sem á undan er gengið,“ segir Gunnþórunn. Í Fljótsdalshreppi hefur útsvarsprósentan verið nýtt að fullu, 13,03%. Gunnþórunn segir líklegt að útsvarið verði óbreytt á næsta ári, en telur að almennt muni sveitarfélög ekki hækka gjöld vegna grunnþjónustu. Óvíst um byggingu nýs grunnskóla „Sem betur fer vorum við ekki með öll eggin í sömu körfu,“ segir Laufey Jóhannsdóttir, sveit- arstjóri í Hvalfjarðarsveit. Mest af óráðstöf- uðum fjármunum sveitarfélagsins var á venju- legum innlánsreikningum, en um 70 milljónir í peningamarkaðssjóðum. Laufey segir að sú upp- hæð geti skerst um 10-20 milljónir, en uppgjör liggi ekki fyrir. Í Hvalfjarðarsveit hefur útsvarsprósentan ekki verið nýtt að fullu og hefur útsvar verið 11,61%, sem, hefur verið með því lægsta á land- inu. „Sveitarstjórn hefur ekki tekið ákvörðun um útsvarsprósentu á næsta ári, en frumskylda okk- ar er að halda grunnþjónustu gangandi og herða frekar ólar annars staðar,“ segir Laufey. Fyrirhugað var að ráðast í byggingu nýs grunnskóla á næsta ári og til þeirrar fram- kvæmdar höfðu peningar verið lagðir til hliðar, m.a. á peningamarkaðssjóði. Samkvæmt ástandsmati á húsnæði Heiðarskóla er brýn nauðsyn á endurnýjun. Óvissa er nú um hvort ráðist verður í þessar framkvæmdir á næsta ári eða þeim frestað að einhverju leyti. Stöndug sveitarfélög í sjóðavanda Í HNOTSKURN »Í Hvalfjarðarsveitbjuggu 683 manns 1. desember síðastliðinn. Ál- verið og Járnblendiverk- smiðjan á Grundartanga eru rúmlega 800 manna vinnu- staðir og olíubirgðastöðvar eru í Hvalfirði. Í sveitinni er mikill búskapur og búin af öllum stærðum og gerðum. »Fljótsdalshreppur hefurá síðustu árum haft drjúgar tekjur vegna fram- kvæmda við Kárahnjúka. Sauðfjárbúskapur er aðalat- vinnugreinin í hreppnum, en síðasta kúabúið var lagt af árið 2000. Margir skóg- arbændur eru einnig í Fljótsdalshreppi. »Þegar nýjar tekjurkomu inn í Fljóts- dalshrepp með fram- kvæmdum síðustu ára var reynt eftir bestu getu og samkvæmt ráðleggingum fagmanna að ávaxta þessa fjármuni, m.a. í pen- ingamarkaðssjóðum. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hryssingur Oddviti Fljótsdalshrepps segir að í ár hafi vetrað snemma með hryssingslegu veðri. Þessi hreindýr voru í byl á Fljótsdalsheiði í fyrravetur en eltu svo forystuhreininn í átt að Snæfelli. Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is STÓRHUGA áform Landsbankans og Glitnis um byggingu nýrra höf- uðstöðva eru væntanlega að engu orðin vegna hruns bankanna. Hinir nýju bankar í eigu ríkisins eiga nú lóðirnar þar sem höfuðstöðvarnar áttu að standa og teikningar að nýju byggingunum. Þeir áhrifamenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær segja útilokað að ráðist verði í þessi verk- efni. Nýju bankarnir séu miklu minni í sniðum en fyrirrennarar þeirra og engin þörf á nýju húsnæði. Fram kom í Morgunblaðinu í gær, að til hafi staðið að tilkynna úr- slit í samkeppni um nýjar höf- uðstöðvar Landsbankans um miðjan þennan mánuð. Byggingin átti að standa við Geirsgötu í miðborg Reykjavíkur. Haukur Þór Haraldsson var einn fulltrúa Landsbankans í dómnefnd- inni. Að hans sögn stóð upphaflega til að tilkynna úrslitin í vor en af því gat ekki orðið og var því frestað fram á haustið. Nú hefur enn orðið frestun um óákveðinn tíma. Upphaflega sóttu 47 arkitekta- teymi frá 17 löndum um þátttöku í samkeppninni. Dómnefnd valdi 21 teymi frá níu löndum til frekari þátttöku. Hvert teymi fékk greiddar 50 þúsund evrur fyrir þátttökuna, jafnvirði 7,5 milljóna króna á gengi dagsins í dag. Loks valdi dómnefnd- in fimm teymi í síðasta þrep sam- keppninnar. Úrslitin liggja fyrir en þau hafa ekki verið birt ennþá. Að sögn Hauks Þórs verður nafn sigurveg- arans tilkynnt, jafnvel þótt aldrei verði byggt eftir teikningunni. Reiknar Haukur með því að gefin verði út bók með vinningstillög- unum, en útfærsla málsins er óljós á þessari stundu. Þrír arkitektar voru tilfnefndir í dómnefndina af hálfu Arkitektafélags Íslands. Að sögn Guðrúnar Guðmundsdóttur, fram- kvæmdastjóra félagsins, hefur verið þrýst á Landsbankann um að til- kynna úrslitin, þrátt fyrir óvissu um verkefnið sjálft. Samkvæmt reglum um sam- keppnina er það leyndarmál hvaða arkitektateymi komust í lokaúrslitin og það verður ekki opinberað fyrr en úrslitin verða kynnt. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er hlutfall íslenskra arkitekta óvenju- hátt í þessari samkeppni. Á heimasíðu YRKI arkitekta er birt teikning af höfuðstöðvunum, og segir þar að Landsbankinn hafi keypt þessa tillögu. Ekki fæst stað- fest hvort þetta er ein þeirra fimm teikninga, sem komust í loka- úrslitin. Arkitektateymin fimm hafa fengið verðlaunaféð greitt, en hæsta upphæðin kom í hlut sig- urvegarans, eðli málsins sam- kvæmt. Úrslit í samkeppni um nýjar höf- uðstöðvar Glitnis á Kirkjusandi voru kunngjörð 10. apríl 2007. Það var gert ráð fyrir höfuðstöðvum bankans auk fleiri skrifstofubygg- inga, alls 70-80 þúsund fermetrar. Sænska arkitektastofan Monarken í Stokkhólmi fékk 1. verðlaun, 50 þúsund evrur, sem þá var jafnvirði 4,5 milljóna króna. Í umsögn dómnefndar um vinn- ingstillöguna sagði m.a. að tillagan hefði yfir sér létt og áhugavert yf- irbragð. Byggingunum væri raðað óreglulega á reitinn nánast eins og um sjálfbyggt umhverfi væri að ræða. Kirkjusandur Á tölvuteikningu Monarken speglast byggingar Glitnis í sjávarfletinum. Eins og staðan er í dag er ólíklegt að þessar byggingar muni rísa. Bankabyggingar í salt  Áform Landsbankans og Glitnis um nýjar höfuðstöðvar líklega úr sögunni  Búið að greiða út verðlaunafé í samkeppni Landsbankans en úrslitin óbirt Miðbærinn Eina tillagan að höfuðstöðvum Landsbankans sem hefur birst opinberlega. Myndin er á heimasíðu YRKI arkitekta. AÐALFUNDUR Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, hinn 69. í röðinni, verður haldinn á Hilton Nordica-hótelinu í Reykjavík í dag og á morgun. Á fundinum á morgun verður kjörinn nýr for- maður sam- bandsins. Björg- ólfur Jóhannsson lýsti því yfir fyrir nokkru, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Adolf Guð- mundsson, útgerðarmaður á Seyð- isfirði, hefur lýst yfir framboði sínu. Fundurinn hefst í dag klukkan 13 með ræðu Björgólfs Jóhannssonar. Að því búnu flytur Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegsráðherra ávarp. Síðar í dag ræðir Friðrik Már Baldursson prófessor um stöðu og horfur í efnahagsmálum, Unnar Már Pétursson fjármálastjóri Ramma hf. ræðir um minni áhættu og langtímaávinning og Kristján Þórarinsson stofnvistfræðingur LÍÚ ræðir um ábyrgar fiskveiðar. Á morgun mun Geir H. Haarde forsætisráðherra ávarpa þingið. sisi@mbl.is Nýr for- maður LÍÚ kjörinn Björgólfur Jóhannsson NÝ ÁÆTLUN um norrænt sam- starf á sviði atvinnulífs fyrir árin 2009-2012 hefur verið lögð fram í Norðurlandaráði. Samkvæmt skoð- anakönnun, sem gerð var í október í ár, telur 61% af íbúum Norður- landanna norrænt samstarf um at- vinnulíf skipta máli. Þetta er aukn- ing frá 49% á síðasta ári, sem bendir til þess að fjármálakreppan hafi haft þau áhrif að Norður- landabúar vilji nú standa saman um norræna atvinnumarkaðslík- anið. Í nýju samstarfsáætluninni er m.a. lögð áhersla á að virkja mann- auð og þá munu ráðherrarnir vinna að því að samkeppnishæfni vinnuafls verði styrkt með sí- menntun. Samstarf á vinnumarkaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.