Morgunblaðið - 30.10.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 2008
„VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN
OG SKEMMTILEG GRÍNMYND.
KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI
RÆMUM ÁRSINS.
TÉKKIÐ Á HENNI!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
EMMA ROBERTS ER NÝJA STELPAN,
Í NÝJA SKÓLANUM ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU TIL VANDRÆÐA!
EAGLE EYE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
WOMAN kl. 8 LEYFÐ
SEX DRIVE kl. 10:20 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
THE HOUSE BUNNY kl. 8 LEYFÐ
PINEAPPLE EXPRESS kl. 10:10 B.i. 16 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 LEYFÐ
BURN AFTER READING kl. 10:10 B.i. 16 ára
/ SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
EINHVER HROTTALEGASTA
SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA,
Í ANDA HINNA MÖGNUÐU
FLATLINERS
EAGLE EYE kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 8 B.i. 12 ára
RIGHTEOUS KILL kl. 10:10 B.i. 16 ára
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
FRÁ HÖFUNDI THE NOTEBOOK
KEMUR NIGHTS IN RODANTHE
SÝND Á AKUREYRI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á SELFOSSI
MYND SEM ALLAR
KONUR VERÐA AÐ SJÁ
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
SÝND Á SELFOSSI
TOPP GRÍNMYND
SEX DRIVE FER FRAM
ÚR AMERICAN PIE
Á 100 KM HRAÐA!
OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
RICHARD GERE
ÁSAMT DIANE LANE
FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI FALLEGU
ÁSTARSÖGU.
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
ÞRÁTT fyrir bágt efnahagsástand
hefur plötusala í miðbænum aukist.
Sala geisladiska- og vínylplatna var
meiri í október í ár en á sama tíma í
fyrra. Aðstandendur verslananna
segja helstu ástæðu þess vera að
ferðamenn geti leyft sér að eyða
fleiri krónum en áður og að íslensk
útgáfa sé yfir höfuð góð. Söluhæstu
plöturnar í öllum verslunum bæj-
arins eru nýútkomnar íslenskar
plötur.
„Salan í kringum Airwaves í ár
var sérstaklega betri en í fyrra,“
segir Halldór Gunnar Pálsson, versl-
unarstjóri Skífunnar á Laugavegi.
„Ég sé að það er meiri sala en í fyrra
og hvernig hefði hún verið ef ástand-
ið væri ekki svona? Ég held að góð
útgáfa á íslenskri tónlist sé ein
ástæðan fyrir þessu. Það er fullt af
skemmtilegum ungum sveitum að
koma upp á yfirborðið. Það er samt
erfitt að segja til um hvernig þetta
verður. Útlendingarnir gátu auðvit-
að eytt meira í kringum Airwaves og
ef það gengur eftir sem maður held-
ur, að fólk komi til með að kaupa
ódýrari jólagjafir í ár en í fyrra, trúi
ég því að fólk muni kaupi fleiri bæk-
ur og geisladiska.“
Tvöfalt meira en á síðasta ári
Plötubúð Smekkleysu færði sig
um set í sumar og opnaði á nýjum
stað á Laugavegi 28. Benedikt
Reynisson, starfsmaður þar, segir
það hafa haft mikil áhrif á söluna.
„Það hefur aldrei gengið betur en
núna,“ segir Benedikt er telur líka
að hörðustu tónlistargrúskararnir
leiti frekar í persónulegra umhverfi
en stóru búðirnar bjóða upp á. „Ég
held að október í ár hafi skilað tvö-
falt meira í kassann en í fyrra. Þó
var fínt að gera í október í fyrra. Það
sem skiptir mestu máli er breytt
staðsetning og að við erum líka með
plötur sem aðrir eiga ekki. Það hefur
líka orðið aukning í vínylplötusölu
alls staðar, líka hér á Íslandi.“
Söluhæstu titlarnir í síðustu viku
voru nýútkomnar plötur FM Bel-
fast, Retro Stefson, Emilíönu Torr-
ini og allt eftir Sigur Rós.
Betra ár en í fyrra
„Salan hér í búðinni hefur verið
vel stígandi og hefur alltaf staðið
vel,“ segir Lárus Jóhannesson hjá
12 tónum er þakkar auknum fjölda
ferðamanna aukna plötusölu. „Októ-
bermánuður hjá okkur er talsvert
betri en í fyrra. Þar vil ég þakka
mjög góðri Airwaves-hátíð.“
12 tónar leggja mikið upp úr góðu
umhverfi fyrir kúnna og eru þekktir
fyrir að bjóða upp á kaffi á meðan
rennt er í gegnum diska. „Hér fær
fólk tækifæri til þess að hlusta á það
sem það langar til, oft í nokkrar
klukkustundir. Það fer oft út með tíu
eða fleiri diska. Fyrir ferðamenn er
þetta eins og kynningarmiðstöð fyrir
íslenska tónlist.“
Plötusala eykst
Helstu plötubúðir miðbæjarins selja
allar meira nú en á sama tíma í fyrra
FM Belfast Fyrsta breiðskífa FM Belfast er ein þeirra fjölda íslensku platna
sem rjúka út úr hillum plötubúða miðbæjarins þessa dagana.
BRAD Pitt ætlar ekki að giftast
barnsmóður sinni og unnustu
Angelinu Jolie vegna þess að hann
er hræddur við að ganga í gegnum
skilnað aftur. Pitt skildi við leik-
konuna Jennifer Aniston árið 2005,
stuttu áður en hann hóf samband
sitt við Jolie. Sá skilnaður á að hafa
lagst illa í kappann og hefur hann
því heitið því að ganga ekki upp að
altarinu í annað skipti af ótta við að
þurfa að skilja aftur.
Pitt er nú við tökur á Quentin
Tarantino-myndinni Inglorious
Bastards í Berlín. Mótleikkona hans
þar, Diane Kruger, hefur æst upp
afbrýðissemina í Jolie. Kruger hef-
ur lýst yfir áhuga sínum á Pitt en
þeim tveimur semur víst vel á töku-
stað.
Annars er það líka að frétta af
skötuhjúunum að þau þurftu að
ráða sex barnfóstrur og fá nokkra
bíla að láni á meðan Pitt er við tök-
ur í Þýskalandi.
Mya Walters, upplýsingafulltrúi
bílaframleiðandans Volkswagen,
sagði að fyrirtækið hefði þurft að
sjá Hollywood-fjölskyldunni fyrir
tuttugu bílum á meðan hún dvelur í
Berlín.
Jolie og Pitt flugu nýlega ásamt
börnunum sínum sex í stutta heim-
sókn til New Orleans. Með í fluginu
út voru fjórar barnfóstur en þegar
til Bandaríkjanna kom þurfti að
bæta tveimur við til að hafa stjórn á
öllum barnahópnum.
Ætlar ekki að giftast Jolie
Reuters
Hrifin Diane Kruger.Unnast Brad Pitt og Angelina Jolie.