Fréttablaðið - 01.05.2009, Síða 2
2 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR
FÓLK „Hugsaðu þér vonbrigðin,“
segir Ingibjörg Auður Ingvadóttir,
sem í febrúar jarðsetti eiginmann
sinn og komst síðan að því að leg-
steinninn á gröfinni verður að vera
til fóta.
Eiginmaður Ingibjargar hvílir í
Gufuneskirkjugarði í Grafarvogi.
Þar snúa allir hinir látnu ásjónu
mót austri. Vegna uppbyggingar
garðsins snýr helmingur leiðanna
þannig að höfuð hinna látnu snúa
að göngustígum en helmingur
frá þeim. Síðan er reglan þannig
að legsteinar og krossar á leiðun-
um eiga að vera í þeim enda leið-
anna sem snýr frá stígunum. Þetta
þýðir að við helming leiðanna eru
legsteinar til fóta og helmingur við
höfðalagið. Þetta á líka við um aðra
nýrri kirkjugarða á svæði Kirkju-
garða Reykjavíkurprófastsdæm-
is að sögn Þorgeirs Adamssonar
garðyrkjustjóra.
„Ég á að vera við hliðina á mann-
inum mínum og sætti mig ekkert
við að vera með fæturna upp við
steininn sem ég ætla að hafa við
höfðalagið,“ segir Ingibjörg, sem
sjálf er orðin 74 ára gömul og er
farin að svipast um eftir sameigin-
legum legsteini fyrir þau hjón-
in. Hún kveðst hafa beðið um að
maðurinn hennar yrði fluttur. „Þá
var mér sagt að ég yrði að fara í
kirkjumálaráðuneytið og að það
væri ansi mikið mál. Ég veit ekki
hvað ég geri.“
Þorgeir Adamsson segir ekk-
ert hægt að gera fyrir Ingibjörgu
úr því að eiginmaður hennar hafi
þegar verið jarðsettur. „Þetta
er búið og gert. Það er algjört
neyðar úrræði að færa til kistur
og við gerum það helst ekki,“ segir
hann.
Að sögn Þorgeirs gera fáir
athugasemdir við fyrirkomulagið
sem tíðkast. „Allur þorri aðstand-
enda sættir sig við þetta eins og
það hefur verið undanfarna ára-
tugi,“ segir hann en bendir á að
sé óskað eftir því fyrir fram að
minnismerki komi við höfðalagið
sé hægt að verða við því.
Þorgeir segir hugmyndafræðina
að baki því að allir snúi ásjónu mót
austri vera þá að þá vísi þeir mót
sólarupprásinni. Þetta sé þó ekki
þannig í Fossvogskirkjugarði en
þar snúi þó allir eins. „Undanfarna
áratugi hefur það verið vinnuregla
að minnismerki eru sett þannig á
grafirnar að þau vísi út að stígun-
um en snúi ekki í þá baki,“ segir
Þorgeir og útskýrir að það auð-
veldi bæði álestur á legsteinana
og umhirðu í garðinum að hafa þá
ekki út við stígana.
Ingibjörg telur hins vegar
að hönnun garðanna sé mistök.
„Arkitektinn hlýtur að hafa getað
hannað göturnar þannig að allir
gætu notað höfðalagið. Það er allt-
af verið að stjórna fólki og það
má helst enginn vita neitt. Það
var bara tilviljun að ég komst að
þessu.“ gar@frettabladid.is
Legsteinninn til fóta
við aðra hverja gröf
Ingibjörg Auður Ingvadóttir segir það hafa verið mikil vonbrigði að uppgötva
eftir jarðsetningu eiginmanns síns að legsteinn við gröf þeirra hjóna verði að
vera þeim til fóta. Búið og gert, segir garðyrkjustjóri Kirkjugarða Reykjavíkur.
Í GUFUNESKIRKJUGARÐI Ásjónur hinna látnu vísa allar mót sólarupprásinni en helm-
ingurinn snýr þannig við stígakerfi kirkjugarðsins að legsteinarnir eru til fóta en ekki
við höfðalagið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Fjórar stúlkur sem
grunaðar eru um aðild að árás á
fimmtán ára gamla stúlku í Heið-
mörk á miðvikudag gáfu sig fram
við lögreglu í gær. Þær voru yfir-
heyrðar að viðstöddum forráða-
mönnum sínum eða fulltrúum frá
barnaverndarnefnd, þar sem þær
eru undir lögaldri, að sögn Frið-
riks Smára Björgvinssyni yfirlög-
regluþjóns. Stúlkurnar hafa þó náð
sakhæfisaldri.
Stúlkurnar eru grunaðar um að
hafa numið fimmtán ára stúlku á
brott frá heimili hennar, ekið með
hana í Heiðmörk og gengið þar í
skrokk á henni.
Þolandi árásarinnar gaf skýrslu
hjá lögreglu í gær og kærði verkn-
aðinn formlega, segir Friðrik
Smári Björgvinsson, yfirlögreglu-
þjónn rannsóknardeildar Lögreglu
höfuðborgarsvæðisins.
„Það er skelfilegt að sjá andlitið
á systur minni, hún er mjög bólg-
in og er í rauninni ennþá í sjokki,“
segir Hrönn Óskarsdóttir, syst-
ir fórnarlambsins. Hún vonar að
aðrir sem lent hafi í svipaðri lífs-
reynslu en ekki þorað að kæra
hingað til fari nú alla leið og kæri
til lögreglu. Friðrik segir mál af
þessu tagi ekki algeng. Hann hafði
ekki upplýsingar um hvort stúlk-
urnar sjö hefðu komið áður við
sögu lögreglu. - bj, kg
Fimmtán ára stúlka kærði hóp stúlkna sem gengu í skrokk á henni í Heiðmörk:
Fjórar stúlkur gáfu sig fram
ÓVIÐUNANDI Hrönn Óskarsdóttir, systir
fórnarlambsins, segir að samfélagið
sætti sig ekki við að unglingar séu barðir
til óbóta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAGSMÁL „Við erum að reyna
að gera meira úr þessu en áður
hefur verið,“ segir Hafsteinn Egg-
ertsson, framkvæmdastjóri 1. maí
nefndar Reykjavíkur, um hátíðar-
höldin í dag. „Enda ærin ástæða
til, við erum í miðri kreppu. Tut-
tugu þúsund manns eru atvinnu-
lausir og margir eiga um sárt að
binda svo það er mikilvægt að
sýna samstöðu.“
Af því tilefni verða hátíðarhöld-
in haldin á Austurvelli en ekki
Ingólfstorgi eins og undanfarin ár.
„Það tengir þetta við búsáhalda-
byltinguna að hafa hátíðarhöldin á
Austurvelli enda má segja að það
hafi verið 1. maí á hverjum degi
þegar hún var í gangi.“
Hann segir að eins verði gert
meira úr tónlistarflutningi við
hátíðarhöldin en verið hefur, til
að reyna að ná til fleira fólks.
Hátíðarhöldin þóttu ekki sér-
lega móðins í góðærinu. „Undan-
farin ár hafa mætt um þrjú til
fimm þúsund manns en við von-
umst til að fá sjö til átta þúsund
manns að þessu sinni.“
Kjörorð dagsins eru sótt í
Inter nasjónalinn (Alþjóðasöngur
verkalýðsins) „Byggjum réttlátt
þjóðfélag“ og verður gengið niður
Laugaveg undir því við lúðraþyt
og trommuslátt. Gangan hefst
klukkan hálf tvö. Á vefsíðu ASÍ,
asi.is, má finna upplýsingar um
hátíðarhöld víða um land. - jse
Meira verður lagt í 1. maí hátíðarhöldin sem að þessu sinni verða á Austurvelli:
Þá var 1. maí á hverjum degi
ÖLLU TJALDAÐ TIL Hafsteinn segir
boðskap 1. maí hátíðarhalda eiga mun
meira erindi nú en oft áður og því verði
meira lagt í þau en undanfarin ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært mann og konu fyrir heiftar-
lega árás með kjötexi og hafna-
boltakylfu.
Skötuhjúin sem eru bæði um
þrítugt réðust á mann aðfaranótt
laugardags í september 2007.
Árásarmaðurinn lagði til fórnar-
lambsins með kjötexi. Í kjölfarið
sló konan manninn með hafna-
boltakylfu í vinstri öxl.
Af atlögunni hlaut fórnarlamb-
ið djúpan skurð frá nefrót og upp
á mitt enni og yfir alla nefbrún-
ina og sex til sjö sentimetra lang-
an skurð á vinstri framhandlegg.
- jss
Maður og kona ákærð:
Réðust á mann
með öxi og kylfu
VIÐSKIPTI MP Banki hefur keypt
útibú gamla SPRON í Borgartúni
og hyggst hefja starfsemi þar í
þarnæstu viku. Sextán fyrrver-
andi starfsmenn SPRON hafa
verið ráðnir til
bankans.
MP hafði
áður náð sam-
komulagi við
skilanefnd
SPRON um
kaup á öllu úti-
búanetinu fyrir
800 milljónir
króna. Full-
trúar bank-
ans sögðu hins vegar Kaupþing
hafa hindrað söluna og hættu því
við. Spurður hvort þessi nýju tíð-
indi þýði að breyting hafi orðið
þar á, segir stjórnarformaðurinn
Margeir Pétursson að verið sé að
reyna að bjarga því sem bjargað
verði. „Við erum tilbúnir að
standa við okkar hluta af samn-
ingnum en við borgum auðvit-
að ekki fyrir eitthvað sem hefur
farið forgörðum,“ segir hann. - sh
Opna fljótlega í Borgartúni:
MP kaupir eitt
útibú SPRON
MARGEIR
PÉTURSSON
Steinþór, er það ekki bara
grís að fá ferðamenn eins og
ástandið er?
„Nei, ekki þegar þú býður upp á
góða þjónustu. Það er trikk sem
svínvirkar.“
Svínaflensan hefur slæm áhrif á ferða-
iðnaðinn að sögn Ernu Hauksdóttur,
framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón-
ustunnar. Steinþór Jónsson er hótelstjóri
Hótels Keflavíkur.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu handtók í gær
fjóra menn sem voru eftirlýstir
vegna gruns um tilraunir til inn-
brota í hraðbanka og verslanir að
undanförnu.
Þrír mannanna voru hand-
teknir í Leifsstöð þegar einn
þeirra var á leið úr landi. Sá
fjórði gaf sig fram við lögreglu,
eftir því sem fram kemur í til-
kynningu frá lögreglu. Mennirnir
eru allir af erlendu bergi brotnir.
Einn mannanna var færður í
Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem
krafist verður farbanns á hann
vegna rannsóknar lögreglunnar
á Selfossi á innbroti í hraðbanka
í Hveragerði fyrir skömmu. Lög-
reglan útilokar ekki að fleiri
handtökur verði framkvæmdar
vegna þessa máls. - kg
Grunaðir hraðbankaþjófar:
Fjórir voru
handteknir
BANDARÍKIN, AP Lögmenn tveggja
ungra manna sem hafa verið í
haldi í Guantanamo-fangabúðun-
um frá árinu 2002 hvöttu banda-
rísk stjórnvöld í gær til að fylgja
sáttmálum um barnahermenn og
láta þá lausa.
Mennirnir voru teknir höndum
í Afganistan árið 2002. Annar var
fjórtán eða fimmtán ára þegar
hann var tekinn til fanga en hinn
sextán eða sautján ára. Þeir réð-
ust báðir á bandaríska hermenn
með handsprengjum. Öryggis-
ráðið fjallaði í gær um barnaher-
menn. Fulltrúi Bandaríkjanna
ítrekaði þar andstöðu landsins
við notkun barnahermanna. - bj
Minna á barnahermenn:
Vilja frelsi frá
Guantanamo
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
dæmt tvo fyrrverandi blaðamenn
Ísafoldar til að greiða Ásgeiri
Davíðssyni, betur þekktum sem
Geira á Goldfinger, hálfa milljón
króna í miskabætur vegna meið-
yrða. Í grein blaðamannanna
Jóns Trausta Reynissonar og
Ingibjargar Daggar Kjartans-
dóttur var Ásgeir sakaður um að
selja nektardansmeyjar á Gold-
finger í vændi.
Hæstiréttur lækkar með þessu
bæturnar um helming, en héraðs-
dómur hafði áður dæmt Ásgeiri
milljón í miskabætur. Hann fær
hins vegar eftir sem áður 300
þúsund krónur til að birta dóm-
inn í fjölmiðlum. Alls ómerkir
Hæstiréttur fimm ummæli í
greininni, en héraðsdómur hafði
áður ómerkt sjö ummæli. - sh
Dómur fyrir meiðyrði:
Miskabætur
til Geira lækka
um helming
SPURNING DAGSINS