Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 1. maí 2009 3
Ástralska Rosemount-tískuvikan var
haldin dagana 27. apríl til 1. maí í Circul-
ar Quay við höfnina í Sydney. Þar sýndi
hópur þekktra hönnuða frá Ástralíu og
Kyrrahafslöndum Asíu (Asia Pacific) vor-
og sumarlínur sínar. Tískusýningarnar
voru eins ólíkar og hönnuðirnir voru
margir en þó bar nokkuð á skærum litum
á borð við appelsínugulan hjá nokkrum
þeirra. Í það minnsta var sumarið hönn-
uðunum hugleikið þrátt fyrir að vetur-
inn hefjist í Ástralíu eftir mánuð.
Tískuvikan í Ástralíu fór fyrst af stað
árið 1996 og hefur stimplað sig inn sem fastur
liður í dagskrá margra tískujöfra um heim allan.
Talið er að tískuvikan veki jafn mikla athygli fjöl-
miðla og ástralski Grand Prix-kappaksturinn.
Hönnuðir geta aðeins tekið þátt ef þeim hefur
verið boðið sérstaklega af nefnd á vegum tísku-
vikunnar. Uppákoman þykir sérstaklega mikilvæg
fyrir unga hönnuði frá þessu svæði, sem þannig
geta vakið athygli kaupenda og blaðamanna.
Þess má geta að hönnuðir á borð við Akira, Camilla
and marc, sass & bide og Ksubi komust á tískukort-
ið með sýningum sínum í Ástralíu.
solveig@frettabladid.is
Stutt
pils
og
flæð-
andi
appels-
ínugulur
toppur
eftir
Aurelio
Costar-
ella.
Léttur og rauður kjóll eftir tísku-
hönnuðinn Kate Sylvester.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrirsæta í hvítum
fjaðraham með
appelsínugulan
augnskugga.
Hannað undir
merkjum TV.
Rosemount-tískuvikunni í Ástralíu lýkur
í dag. Skærlitir kjólar og sumarlegir voru
áberandi þrátt fyrir að nú stefni í vetur
hinum megin á plánetunni.
Skært skína
klæðin
Sumarlegur
stuttur kjóll
hannaður af
Kirrily Johnston.
Íburðarmikill
appelsínugulur kjóll
að hætti Aurelio
Costarella.
SVÍNAFLENSAN hefur leitt til þess að stór hluti fólks, sérstaklega í Mexíkó,
ber nú andlitsgrímur. Margir hafa tekið upp á því að teikna eða mála á grímurn-
ar til að lífga upp á útlitið og tilveruna.