Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
ÆVINTÝRIÐ 1939 kallast sýning sem opnuð verður í dag á
Skriðuklaustri í tilefni af því að sjötíu ár eru liðin frá byggingu hins
einstæða húss Gunnars Gunnarssonar skálds. Þar verður í máli
og myndum sagt frá byggingunni en hátt í hundrað manns unnu
sex daga vikunnar frá vori og fram að jólum við að reisa stórhýsið.
Sýningin stendur fram á haust.
„Réttinn hef ég borið fram fyrir
marga gesti við ýmis tækifæri
og hann veldur aldrei vonbrigð-
um,“ segir Guðrún Edda Bents-
dóttir verkefnastjóri. „Rétturinn
er úr einni af fyrstu matreiðslu-
bókunum sem ég eignaðist sem
ber yfirskriftina Great Chin-
ese Cooking – From Fire Pot to
Food Processor.“ Uppskriftirnar
þar eru einfaldaðar og lagaðar
að vestrænum matreiðsluaðferð-
um. „Rétturinn mun uppruna-
lega vera frá norður-Kína,“ segir
hún.
Guðrún Edda rakst á bókina á
námsárunum í New York og hefur
hún verið mikið notuð.
Guðrún segir réttinn ódýran
enda hafi svínakjöt verið á góðu
verði að undanförnu. Hún bend-
ir á að tilvalið sé að undirbúa sig
deginum áður þar sem réttur-
inn sé kannski ekki ýkja fljótleg-
ur. Bót er þó í máli að auðvelt er
að fá megnið af vörunum í aust-
urlenskan mat í lágvöruversl-
unum, en það hafi nú ekki verið
þannig þegar Guðrún Edda byrj-
aði að bera þennan rétt á borð
fyrir fjölskyldu og vini. Þess
þarf vart að geta að rétturinn er
í sérstöku uppáhaldi enda bregst
hann aldrei. Ekki er verra að
hann höfðar jafnt til barna sem
fullorðinna. vala@frettabladid.is
Réttur úr fyrstu bókinni
Guðrún Edda Bentsdóttir, verkefnastjóri á grunnskólaskrifstofu hjá Menntasviði Reykjavíkur, er
matgæðingur mikill og á ekki í vandræðum með að gefa uppskrift að rétti sem klikkar ekki.
Guðrún Edda segir réttinn tilvalinn á veisluborðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÍNVERSKAR KJÖTBOLLUR
Í súrsætri sósu (um 30 stykki) FYRIR 3-4
1-1,5 sm sneið fersk
engiferrót
1/2 stk. stór laukur eða 1
stk. lítill
8 stk. vatnahnotur (water
chestnuts - frystið afgang-
inn úr dósinni og notið
síðar)
1 msk. sojasósa (Kikk-
oman)
1 msk. fremur þurrt sérrý
1 msk. maízenamjöl
1 egg
2 tsk. sesamolía
1 geiri hvítlaukur
450 g svínahakk
1 stk. paprika (1/2 rauð
og 1/2 græn)
1/2 laukur
1-2 gulrætur
1 bolli (1/4 dós) ananas
í bitum
1 sneið (0,2-0,3 sm)
engiferrót
3 msk. matarolía til
steikingar
Sósa
2 dl vatn eða ananassafi
úr dósinni og vatn
1/2 dl sykur (eða eftir
smekk)
2 msk. vínedik
2 msk. tómatsósa
1 msk. sojasósa (Kikk-
oman)
Öllu ofangreindu efni í
sósuna blandað saman
í skál.
4 tsk. maízenamjöl í 2
msk. vatni (í sér skál)
Aðferð:
1. Skerið engiferrót og
lauk í bita. Setjið engi-
ferrót, hvítlauk, lauk,
vatnahnotur, sojasósu,
sérrý, maízenamjöl, egg
og sesamolíu í mat-
vinnsluvél og blandið.
Hakkið sett út í og
maukað í fars. Hitið olíu
á pönnu eða wok og
steikið bollur. Má gera
daginn áður og geyma
í ísskáp eða frysta.
2. Hellið olíu af pönnu
og þrífið með vatni
og þurrkið. Skerið
papriku,lauk og
gulrætur. Hitið olíu yfir
meðalhita og steikið
engiferrót í 1 mín og
bætið grænmeti út í
og steikið í um 2 mín.
Takið engiferrót frá og
hendið. Hægt að gera
tólf tímum fyrir fram.
3. Bætið því við sem
á að fara í sósu nema
maízenamjöli og vatni
sem er hrært sér og sett
út í sósu til að þykkja.
4. Kötbollur settar út í
sósu og látið sjóða við
meðalhita. Setjið loks
ananasbita út í.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
Næg ókeypis
bílastæði
við Perluna
Ódýrt og gott!
Súpubar 620 kr.
Salatbar 990 kr.
Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.
~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt að fá alls kyns góðgæti
á frábæru verði: Crépes, samlokur, pizzur og smurt
brauð. Eins er hægt að fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur.
Nýr A la Carte og 4ra rétta seðill
Nánari upplýsingar á www.perlan.is