Fréttablaðið - 01.05.2009, Blaðsíða 12
12 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 18 Velta: 71 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
221 +0,51% 648 +0,67%
MESTA HÆKKUN
CENTURY AL. +9,13%
MAREL +5,82%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR -0,87%
ÖSSUR -0,64%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 173,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,14 -0,87% ... Eik Banki 90,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 118,00 +0,00% ... Icelandair Group
5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 50,00 +5,82% ... Össur 93,20
-0,64%
Verð á íslenskum sjávarafurðum
lækkaði um 1,5 prósent í mars
mælt í erlendri mynt og var þetta
níundi mánuðurinn í röð sem verð-
ið lækkar. Það er nú jafn hátt og í
mars 2006, samkvæmt nýrri grein-
ingu IFS.
Í greiningunni segir að verð-
lækkunin sé í takt við verðþróun
á heimsvísu upp á síðkastið. Þótt
verðið hafi lækkað mikið í erlendri
mynt undanfarna mánuði sé það
ekki lágt í sögulegu samhengi.
Bent er á að vegna veikingar
krónunnar er afurðaverð enn hátt
í íslenskum krónum talið og því sé
framlegð í sjávarútvegi góð.
IFS bætir við að erlendir kaup-
endur íslenskra sjávarafurða hafi
lagt áherslu á að takmarka birgð-
ir og því séu enn miklar birgðir af
sjávarafurðum hér. - jab
TROLL DREGIÐ INN Fall krónunnar hefur
valdið því að verð á sjávarafurðum er
hátt í krónum talið. Í erlendri mynt hefur
verðið ekki verið lægra í þrjú ár.
Afurðaverð lækkar
Bandaríski bílaframleið-
andinn Chrysler óskaði í
gær eftir greiðslustöðvun.
Gangi sameining við Fiat
eftir rís fimmti umsvifa-
mesti bílaframleiðandi
heims úr rústunum.
Stjórnendur Chrysler óskuðu í gær
eftir heimild til greiðslustöðvunar
í samræmi við þarlend lög eftir
að viðræður við lánardrottna um
endurskipulagningu runnu út í
sandinn.
Bílaframleiðendur vestra hafa
lengi glímt við erfiðleika. Chrysler
sótti ásamt öðrum hornsteinum
bílageirans um neyðarlán stjórn-
valda um áramót. Þegar samkomu-
lag náðist ekki við lánardrottna
áður en lokafrestur stjórnvalda
fyrir veitingu lánsins rann út á
miðnætti í gær var greiðslustöðv-
unin eina leiðin.
Chrysler er fyrsti bílaframleið-
andinn vestra sem fer þessa leið og
ekki útilokað að aðrir fylgi á eftir.
Bloomberg-fréttastofan sagði í
gær hvorki standa til hjá Chrysler
að hætta framleiðslu né segja upp
starfsfólki. Bandarísk stjórnvöld
stofni nýtt félag sem kaupi bestu
eignir þrotabúsins og leggi þau,
ásamt ríkisstjórn Kanada, því til
10,5 milljarða dala í skiptum fyrir
tíu prósenta hlut í því.
Á meðan greiðslustöðvun
Chrysler varir er stefnt að því að
ítalski bílaframleiðandinn Fiat
kaupi fimmtung í félaginu. Fiat,
sem er hið ítalska móðurfélag
Ferrari og Alfa Romeo auk þess
að framleiða sparneytinn smábíl
undir eigin merkjum, hefur um
árabil leitað fyrir sér á banda-
rískum markaði. Það hefur engum
árangri skilað fyrr en nú.
jonab@markadurinn.is
Fyrsti bandaríski bíla-
risinn í greiðslustöðvun
ALLT Á FULLU Í EINNI VERKSMIÐJU CHRYSLER Stjórn bandaríska bílaframleiðandans
Chrysler hyggst nota tímann vel og vinna með Ítölum að framleiðslu bíla innan
nokkurra mánaða. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Landsframleiðsla dróst saman um 6,1 prósent á
fyrsta fjórðungi ársins í Bandaríkjunum, samkvæmt
upplýsingum bandaríska viðskiptaráðuneytisins, frá
í fyrradag.
Þetta kemur til viðbótar við 6,3 prósenta samdrátt
vestra í þrjá ársfjórðunga á undan.
Niðurstaðan er verri en reiknað var með en hag-
fræðingar virðast sammála um að bandarískt efna-
hagslíf sé að ganga í gegnum verstu þrengingar sem
sést hafi þar í landi í rúma hálfa öld.
Talsverð óvissa einkennir ástandið en meðalspár
Bloomberg hljóðuðu upp á allt frá 2,8 til 8 prósenta
samdráttar á fjórðungnum.
Christina Romer, efnahagsráðgjafi Bandaríkja-
forseta, segir í samtali við Bloomberg flesta sjá til
botns á seinni hluta árs og megi þá vænta að hag-
kerfið taki við sér á ný. - jab
Hratt kólnar í
hagkerfi vestra
Verðbólga á evrusvæðinu mældist
0,6 prósent í síðasta mánuði, sam-
kvæmt útreikningum Eurostat,
hagstofu Evrópusambandsins.
Verðbólga steig í hæstu hæðir
samhliða snörpum verðhækkun-
um á hráolíu og matvælaverði í
fyrravor og náði fjórum prósent-
um um mitt fyrrasumar. Eftir því
sem krumlur fjármálakreppunnar
hertu takið á neytendamörkuðum
hjaðnaði verðbólga.
Verðbólgutölur sem þessar hafa
aldrei fyrr sést á evrusvæðinu en
byrjað var að taka tölurnar saman
í mars árið 1996.
Wall Street Journal hefur eftir
hagfræðingi hjá UniCredit, að
líkur séu á að verðbólga verði nær
núlli þegar næstu tölur verða birt-
ar í mánuðinum. - jab
Hratt dregur úr
verðbólgunni