Fréttablaðið - 01.05.2009, Síða 20
Eitt hundrað og sex konur standa
þétt saman á söngpöllunum í húsi
Karlakórs Fóstbræðra. Þetta er
Léttsveit Reykjavíkur á æfingu
og það er létt yfir henni. Sjó-
mannasöngvarnir hljóma einn af
öðrum því það er verið að renna
yfir prógrammið sem á að flytja í
Háskólabíói á sunnudaginn. Lög
eins og Ég bíð við bláan sæ, Við
hafið, Komu engin skip í dag, og
ein tuttugu í viðbót. Dagskráin
nefnist Óskalög sjómanna enda
bárust öll þessi lög um byggðir
landsins í óskalagaþættinum Á
frívaktinni, að sögn Margrétar
Þorvaldsdóttur, formanns Létt-
sveitarinnar. Spurð hvort fyrir
sveitinni vaki að heilla íslensku
sjómennina svarar hún kankvís.
„Já, að sjálfsögðu og ekki síður
hylla íslensku sjómannskonurn-
ar.“
Jóhanna Þórhalls stjórnar sveit-
inni af myndugleika og fjöri og
undirspil er í höndum Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur á píanó, Tómas-
ar R. Einarssonar á kontrabassa
og Kjartans Guðmundssonar á
trommur. „Eðalfólk,“ segir Mar-
grét og bætir við: „Tómas er nán-
ast einn af okkur, hann spilar svo
oft með sveitinni.“
Brátt geysist Gylfi Ægisson í
salinn og mundar gítarinn. Meðan
hann er að stilla strengina taka
sönggyðjurnar lagið „Hvað skal
með sjómann sem er á því“ nokkr-
um sinnum og gefa vel í. Svo hefur
Gylfi upp raustina í Minning um
mann og þær syngja viðlagið.
Léttsveitin hefur starfað frá
1995 og sumar konurnar hafa
verið með frá byrjun að sögn Mar-
grétar. „Jóhanna og Aðalheiður
hafa líka verið með frá upphafi.
Kraftmiklar konur sem brydda
alltaf upp á einhverju nýju og
eru aldrei með sömu lögin tvö ár
í röð.“
gun@frettabladid.is
Uppselt á Óskalögin
Léttsveit Reykjavíkur ætlar að flytja sjómannalög í Háskólabíói á sunnudaginn, ásamt stjórnanda, undir-
leikurum og einsöngvurunum Gylfa Ægis og Helenu Eyjólfs. Uppselt er á tónleikana.
Tómas R., Kjartan og Aðalheiður ásamt
Gylfa Ægissyni.
Léttsveit Reykjavíkur í góðum gír á æfingu. Blái liturinn minnir á haföldurnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUN
LISTASAFN ASÍ opnar tvær sýningar laugardaginn 2. maí. Þóra
Sigurðardóttir vinnur verk sem fjalla um gólf og veggi húss. Sólrún
Sumarliðadóttir sýnir verkið Hljómrými í gryfju; potthljóð. Sýningarn-
ar standa til 24. maí.
Laugaveg 54,
sími: 552 5201
S
G
m
5
G
Skokkar
margar gerðir áður 8990
nú 4990
Síðar gollur áður 6990
nú 3990
Allir jakkar og kápur
30% afsl
Opið í dag
13:00 - 16:00