Fréttablaðið - 01.05.2009, Qupperneq 26
6 föstudagur 1. maí
tíðin
✽ algjör heimsborgari...
MINNINGARTÓNLEIKAR Annað kvöld klukkan
20 fara fram minningartónleikar um Rúnar Júlíusson í
Laugardalshöllinni. Fram koma meðal annars meðlimir
Hljóma, en sérstakir gestir eru Baldur og Júlíus synir
Rúnars, María Baldursdóttir og barnabörn Rúnars.
17 AGAIN Mike O‘Donnell fær óvænt tækifæri til að
endurupplifa unglingsárin. Hann skráir sig aftur í gamla
skólann sinn en nú er önnur tíska og hans eigin börn verða
skólafélagar hans. Ekki missa af frábærri mynd með Zac
Efron og Matthew Perry í aðalhlutverkum.
MORGUNMATURINN: Ekta amerískur morgunverður sem samanstendur af
beikoni, eggjum, kartöflum og pönnukökum með sírópi á Manhattan Diner
sem er á horninu á Broadway og W77th Street. Frábær þjónusta og gott
verð.
SKYNDIBITINN: Mér finnst æði að grípa með mér svona litla kjötteina sem
grillaðir eru í vögnum á götuhornum borgarinnar. Ekta New York-snarl til að
gæða sér á á hraðferð.
RÓMANTÍSKT ÚT AÐ BORÐA: Frábær staður í hjarta Soho sem nefnist
Raoul’s. Hann er við Prince Street. Blanda af amerískri og suðurevrópskri
matseld. Og þarna færðu án efa bestu nautasteikina í borginni! Lítill og per-
sónulegur staður, með fyrsta flokks matseðli og skemmtilegri þjónustu.
UPPÁHALDSVERSLUN: Verslanir New York-borgar eru auðvitað svo rosa-
lega margar og frábærar. Svo það er erfitt að velja á milli. Ég fer samt ávallt
í Barnes & Nobles-búðina á Broadway og 68. stræti. Hún er risastór og
maður getur gleymt sér í marga tíma bara við að skoða bækur og tímarit.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ: Þar sem ég er
mikill matmaður ætla ég að benda á veitingastað
sem er eitt af best geymdu leyndarmálum New
York. Staðurinn heitir Indian Jewel og er eins
og er á 44. stræti á milli 6th Avenue og Park
Avenue. Snilldarmatur, ekta indverskur og vel
úti látinn. Gott verð og persónuleg þjónusta.
BEST VIÐ BORGINA: Hvað hún er full af lífi og
gefur frá sér mikla orku. Hvergi annars staðar
getur maður vappað um einn og gleymt sér við
að horfa á mannlífið, kíkja í búðir eða sitja á veit-
ingastöðum án þess að vera einmana. Maður er aldrei
einn í New York.
NEW YORK
Ingólfur Þór Pétursson flugþjónn
Getur þú lýst þínum stíl? Ég
mundi segja að hann væri frek-
ar fjölbreytilegur, ég er reynd-
ar ekki föst í einhverjum einum
ákveðnum stíl, finnst mjög
gaman að breyta til og vera ekki
alltaf eins þó svo að sumt höfði
meira til mín en annað.
Hvað dreymir þig um að
eignast í sumar? Mig
hefur reyndar alltaf langað
að eignast skó frá Manolo
Blahnik, aldrei að vita nema
maður láti drauminn ræt-
ast þar sem ég er á leið til
New York. Ég ætla alla-
vega að fá mér striga-
skó.
Hvað keyptir þú þér
síðast? Ég keypti síð-
ast bol í All Saints sem er
opinn í bakið, keypti svo svarta
pallíettutösku í Rokki og rósum.
Uppáhaldsverslun? Á enga
sérstaka uppáhaldsverslun enda
finnst mér gaman að breyta til.
En það eru alltaf vissar búðir
sem maður fer oftar í en aðrar.
Svo er auðvitað alltaf gaman
að fara til útlanda og versla í
búðum sem eru ekki hér heima
t.d. Urban outfitters, H&M,
Mango og alltaf gaman að kíkja
í Primark og New Look í Lond-
on.
Uppáhaldsfatamerki? Mér
finnst mjög gaman að fylgjast
með þessum helstu áhrifavöld-
um tískunnar og þá finnst mér
Chanel, Dior, Valentino, Armani,
D&G, Prada og Mark Jacobs
auðvita alltaf klassísk. Þó maður
sé ekki einungis að versla beint
við þessa stóru hönnuði þá
móta þeir aftur á móti tískuna
eins og hún er í dag. Svo auð-
vitað íslensk hönnun og þar
finnst mér t.d. Júníform og KVK
vera mjög flott.
Finnst þér merki á fötunum
skipta máli? Það fer alveg eftir
því hvað það er og við hvaða til-
efni. Dýrari merki eru í flestum
tilfellum endingarbetri flíkur sem
er góð fjárfesting út af fyrir sig.
Annars er það ekki merkið það
fyrsta sem maður sér heldur
flíkin sjálf.
Hvert er skuggalegasta fata-
tímabilið þitt? Hef ekki átt neitt
skuggalegt fatatímabil bókstaf-
lega, ég var ekki í Marilyn Man-
son-klíku eða neitt þannig. Ég
tók reyndar smá bleikt tímabil
fyrir nokkrum árum en ekkert al-
varlegt samt. Finnst bleikur mjög
fallegur litur en allt er gott í hófi.
1 Laufey í pilsi frá DKNY, skyrtu úr Zöru, sokkum
úr KronKron og skóm úr Bianco. 2 Klútur úr Rokki
og rósum. 3 Svartur kjóll frá REISS innan undir
stórri, víðri peysu sem var keypt í „second hand“
búð. 4 Skór úr Bianco. 5 Bleikur kjóll úr Spútnik, einn
uppáhalds kjóllinn minn. 6 Chanel töskur. 7 Hálsmen
sem amma mín átti og ég erfði frá henni. Það er merkt
nafninu okkar á bakhliðinni. 8 Bolur úr All Saints.
TOPP
10
Laufey Fríða Guðmundsdóttir háskólanemi:
LANGAR Í SKÓ FRÁ
Manolo Blahnik
BORGIN
mín
21
3
4
7
6 8
5