Fréttablaðið - 01.05.2009, Qupperneq 38
26 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> KOMIN Í KYNLÍFSBANN
Söngkonan Lily Allen hefur heitið því
að lifa skírlífi þar til hún kemst aftur
af stað í tónlistarsköpun sinni. Lily
segir að sér gangi ekkert að
semja lög og hefur því ákveð-
ið að setja sjálfa sig í kyn-
lífsbann þar til hún kemst
aftur á skrið. „Það hjálp-
ar stundum og nú ætla
ég að prófa þetta í
einhvern tíma,“ segir
söngkonan.
Síðasta myndin sem Heath Ledger lék
í áður en hann dó, The Imaginarium of
Doctor Parnassus, verður heimsfrumsýnd
á kvikmyndahátíðinni í Cannes 22. maí.
Ledger lést á meðan á tökum myndar-
innar stóð og náði því ekki að ljúka við
hlutverk sitt. Til að hægt yrði að klára
myndina voru þeir Johnny Depp, Jude
Law og Colin Farrell fengnir til að hlaupa
í skarðið fyrir Ledger og leika persónu
hans, Tony. Á meðal annarra leikara í
myndinni eru Christopher Plummer,
Verne Troyer og Tom Waits og má því
búast við miklu stjörnuskini á rauða
dreglinum á Cannes. Myndin, sem fjallar
um Dr. Parnassus og óvenjulega sýningu
hans, mun ekki keppa um Gullpálmann í
Cannes.
Ledger á Cannes
HEATH LEDGER Síðasta mynd
Ledgers, The Imaginarium
of Doctor Parnassus, verður
heimsfrumsýnd á Cannes-
hátíðinni.
Mikil diskóhátíð verður haldin í
Vestmannaeyjum um helgina. Á
föstudagskvöld stígur diskóflokk-
urinn Þú & ég á svið í Höllinni og
kemur öllum í rétta skapið auk
þess sem Herbert Guðmundsson
tekur nokkur vel valin lög. Páll
Óskar lýkur síðan kvöldinu með
spilamennsku langt fram á nótt.
Á laugardagskvöld heldur gleð-
in áfram á Volcano Café þar sem
plötusnúðarnir Daddi diskó og
Kiddi bigfoot þeyta skífum eins
og þeim einum er lagið. Allir gest-
ir eru hvattir til að mæta í fötum
og með hárgreiðslu í anda níunda
áratugarins.
Diskóhátíð í Eyjum
ÞÚ OG ÉG Dúettinn Þú og ég, með
Helgu Möller og Jóhann Helgason í
fararbroddi, spilar í Eyjum á föstudags-
kvöld.
Fyrsta klúbbakvöld Weirdcore
verður haldið á skemmtistaðn-
um Jacobsen í kvöld. Fram koma
Yagya, Frank Murder og Biogen.
Einnig munu Vector, Anonymous,
Thor og AnDre þeyta skífum.
Yagya ætlar að spila „minimal
techno“ með melódísku ívafi eins
og honum einum er lagið. Næst
mun Frank Murder spila og síð-
astur á svið er Biogen, sem er
einn af frumkvöðlum íslenskrar
danstónlistar. Eftir tónleikana
taka skífuþeytar við og spila
dansvæna og framúrstefnulega
tónlist fram eftir nóttu. Klúbba-
kvöldið byrjar klukkan eitt og er
ókeypis inn.
Weirdcore
fram á nóttSöngkonan Britney Spears
ætlar að halda Circus-tón-
leikaferðalagi sínu áfram
um Evrópu í sumar. Fyrstu
tónleikarnir verða 19. júní
á Írlandi og í framhald-
inu stígur hún á svið
í Frakklandi, Dan-
mörku, Svíþjóð,
Rússlandi og víðar.
Lokatónleikarnir
verða svo í Berlín
26. júlí.
Britney hóf tón-
leikaferðina 3. mars
síðastliðinn í heimaríki
sínu Louisiana í Banda-
ríkjunum og alls verða
tónleikarnir þar í landi 39
talsins. Viðtökurnar hafa
verið mjög góðar og ljóst
að Britney er komin aftur á
beinu brautina eftir mótlæti
undanfarinna ára.
Sirkusinn fer til Evrópu
Æskuvinirnir Andri Kjart-
an Jakobsson og Hörður
Bjarnason eru að undirbúa
gerð nýrrar teiknimynda-
sögu sem nefnist Morrigan.
Hún kemur út í haust og
verður seld í versluninni
Nexus.
Andri Kjartan og Hörður, sem
verða tvítugir á árinu, hafa alla
tíð haft mikinn áhuga á mynda-
sögum og vilja með nýju sögunni
efla áhuga Íslendinga á þessu
bókmenntaformi. „Það er enginn
að gera myndasögur á Íslandi.
Við ákváðum að byrja á einhverju
svona til að fá fleiri til að byrja á
þessu á Íslandi. Það verður ein-
hver að fara að gera eitthvað,“
segir Andri Kjartan. Þeir félagar
hafa sótt um styrk frá ríkinu til að
geta einbeitt sér að gerð sögunnar
í sumar og vona það besta. „Þetta
er tröllasaga og er með íslenskum
blæ.
Hún fjallar um tröllafeðga sem
eru næstum því einu tröllin sem
eru eftir og þeir eru að reyna að
sleppa undan Morrigan sem er að
reyna að útrýma öllum tröllum í
heiminum,“ segir Andri. Spurður
hvaðan þeir fá innblásturinn segir
hann að Múmínálfarnir hafi alltaf
verið í miklu uppáhaldi hjá þeim.
„Við elskum Múmínálfana og erum
miklir aðdáendur þeirra.“
Þeir ætla að leyfa almenningi að
fylgjast með framvindu Morrigans
annan hvern föstudag í sumar í
Nexus og gefa fólki tækifæri til
koma með athugasemdir. Fyrsta
kynningin verður þó á laugardag-
inn þegar „Ókeypis myndasögu-
dagurinn“ verður haldinn hátíðleg-
ur í versluninni og víðar um heim.
Dagurinn er nú haldinn áttunda
árið í röð og ætlar Nexus að byrja
á því að gefa blöð um leið og versl-
unin opnar, eða klukkan 12. Verð-
ur því haldið áfram til lokunar
eða þar til blöðin klárast. Andri
og Hörður eru með fleiri verkefni
í vinnslu og virðist enginn skort-
ur vera á hugmyndaflugi á þeim
bænum.
„Við erum með önnur verkefni
sem við förum að vinna að þegar
við erum búnir með þessa sögu,“
segir hann og er þegar farinn að
horfa til útlanda. „Við viljum gefa
út í útlöndum ef allt gengur upp.
Þar eru 58 fyrirtæki í gangi og
alveg nógu mikið að velja um,“
segir hann. freyr@frettabladid.is
Æskuvinir gera tröllasögu
ANDRI OG HÖRÐUR Félagarnir Andri og Hörður eru að semja teiknimyndasögu sem
nefnist Morrigan og er væntanleg í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BRITNEY SPEARS
Söngkonan heldur
Circus-tónleikaferð
sinni áfram um
Evrópu í sumar.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak
Sædýrasafnið
Creature - gestasýning
Í Óðamansgarði
ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Kardemommubærinn