Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 2
2 11. maí 2009 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUMÁL „Það var mikill léttir
að heyra loks í honum,“ segir Her-
mann Þór Erlingsson, faðir Ragn-
ars Erlings sem hefur verið í fang-
elsi í borginni Recife í Brasilíu í
rúma viku.
Ragnar var tekinn á flugvellin-
um í Recife á föstudeginum fyrir
viku þegar hann reyndi að smygla
sex kílóum af kókaíni. Fjölskylda
Ragnars hafði ekki náð sambandi
við hann, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir, frá því að hann var hand-
tekinn en komst loks í samband við
hann um helgina.
Faðir Ragnars vildi lítið tjá sig
um málið í gær, sagði þó að fjöl-
skyldan reyndi allt hvað hún gæti
til að gera fangelsisdvöl Ragnars
sem þolanlegasta.
Fjölskyldan sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær. Þar segir meðal annars
að Ragnar hafi framið glæp sem
fjölskyldan sé sammála um að sé
mjög alvarlegur. Ragnar muni taka
út sína refsingu vegna hans.
Þá kemur fram í yfirlýsing-
unni að Ragnar sé ekki í beinni
hættu þótt aðbúnaður í fangelsinu
sé slæmur. Ragnar
eigi enn við melt-
ingarvandamál að
stríða en fái með-
höndlun við því.
Þá biðji Ragnar
„fyrir þakklæti
til allra sem sýnt
hafa honum stuðn-
ing og hann er einnig
fullur iðrunar“.
Þá segir í
yfirlýs-
ing-
unni:
„Við sem að honum stöndum
leggjum ofurkapp á að tryggja að
Ragnar fái þann aðbúnað sem hann
getur lifað við og að hann bugist
ekki algerlega. Til þess þurfum við
að biðja fjölmiðla að veita okkur
svigrúm til að geta unnið þá vinnu
sem fram undan er.“
Ragnar Erling er fjórði Íslend-
ingurinn sem tekinn er fyrir fíkni-
efnasmygl í Brasilíu á skömmum
tíma.
Íslendingar hafa haft tengsl við
borgina Recife í Brasilíu. Sverr-
ir Þór Gunnarsson, sem dæmdur
var í sjö ára fangelsi í stóru fíkni-
efnamáli árið 1999, var búsettur í
borginni um skeið en er nú búsett-
ur á Spáni, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. kristjan@frettabladid.is
585-6500 audur.is
Stattu vörð um viðbótarlífeyris-
sparnaðinn þinn
Opinn kynningarfundur
Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, 3. hæð
Mánudaginn 11. maí kl. 17:15
Allir velkomnir
LÖGREGLUMÁL Málverk eftir
Jóhannes Kjarval, sem var stolið
af Kjarvalsstöðum um miðjan
laugardag, var endurheimt
skömmu síðar af lögreglu og var
það óskemmt.
Ungt par hafði gengið út með
verkið, en safnvörður sá til
þeirra. Lögreglan studdist svo við
upptökur úr öryggismyndavélum
til að hafa hendur í hári þjófanna.
Verkið Á hulduströnd var ekki
veggfast, en það mun vera metið á
allt að sjö milljónir króna.
Hafþór Ingvason, safnstjóri
Listasafns Reykjavíkur, segir í
samtali við Vísi að verklag á Kjar-
valsstöðum og öðrum listasöfnum
verði yfirfarið. - kóþ
Stuldur um hábjartan dag:
Kjarvalsverkið
endurheimt
BANDARÍKIN, AP „Ég verð nú að játa
að mig langaði ekkert til að vera
hér,“ sagði Barack Obama í ræðu
sinni á hinu árlega kvöldverðarboði
fréttamanna í Washington á laug-
ardagskvöld. „En ég varð að koma.
Það er enn eitt vandamálið sem ég
fékk í arf frá George Bush.“
Löng hefð er fyrir því að Banda-
ríkjaforseti geri óspart grín að
sjálfum sér, ríkisstjórninni og and-
stæðingum sínum á þessum sam-
komum. Obama lét ekki sitt eftir
liggja og gerði meðal annars grín
að gífurlegum áhuga fjölmiðla á
fyrstu hundrað dögum hans í emb-
ætti.
„Ég held að næstu hundrað dag-
arnir mínir gangi svo vel að ég
klári þá á 72 dögum,“ sagði Obama,
og uppskar mikinn hlátur. „Og á
73. deginum, þá hvíli ég mig.“
Nokkur þúsund manns mættu
til kvöldverðarins þetta árið, þar
á meðal fjöldi þekktra persóna úr
stjórnmálum, kvikmyndaheimin-
um og tónlistarlífinu.
Meðal þeirra sem ekki mættu
var Dick Cheney, fyrrverandi
varaforseti. Það er vegna þess,
sagði Obama, að hann er önnum
kafinn við að skrifa ævisögu sína,
sem til bráðabirgða hefur fengið
titilinn: „Hvernig fara skal að því
að skjóta vini sína og yfirheyra
fólk.“ - gb
Barack Obama lætur gamminn geisa í kvöldverðarboði fréttamanna:
Gerði grín að sjálfum sér
SKÆLBROSANDI „Flest ykkar fjölluðuð
um mig,“ sagði Obama við blaða- og
fréttamenn, en bætti svo við: „Öll kusuð
þið mig. Þið á Fox-borðinu eruð samt
beðin afsökunar.“ FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JÓRDANÍA, AP Benedikt XVI. páfi
hvetur kristna menn í Mið-Aust-
urlöndum til þess að þrauka,
þrátt fyrir þrengingar þeirra í
þessum heims-
hluta undan-
farin ár. Þetta
sagði hann í
ræðu á íþrótta-
leikvangi í
Amman, höfuð-
borg Jórdaníu,
þar sem 20
þúsund manns
hlýddu á.
Benedikt
hefur verið harðlega gagnrýndur,
bæði af múslimum og gyðingum,
í tengslum við ferð hans til Mið-
Austurlanda. Í dag heldur hann
til Jerúsalem og fer einnig inn á
herteknu svæðin. - gb
Páfinn í Mið-Austurlöndum:
Hvetur kristna
til að þrauka
BENEDIKT PÁFI
BÚRMA, AP Aung San Suu Kyi,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Búrma, er sögð alvarlega veik og
fá næringu í æð á heimili sínu í
Rangún, þar sem hún hefur verið
í stofufangelsi árum saman.
Hún er sögð eiga erfitt með
að borða og hefur ekki fengið
venjulegan mat í nokkra daga.
Læknir hennar var kallaður í
yfirheyrslu á fimmtudag, en
annar læknir fékk að hitta hana
á föstudag.
Aung San Suu Kyi er orðin 63
ára. Herforingjastjórn landsins
hefur haldið henni í stofufang-
elsi í 13 af síðustu 19 árum, þar
af samfleytt síðustu sex ár. - gb
Stjórnarandstaðan í Búrma:
Aung San Suu
Kyi sögð veik
SUÐUR-AFRÍKA, AP Ráðherraskip-
an nýrrar ríkisstjórnar í Suður-
Afríku bendir ekki til þess að
Jacob Zuma forseti ætli að breyta
miklu frá stefnu fyrri stjórnar.
Ráðherrum var fjölgað úr 28 í
34, auk þess sem Trevor Manuel,
fyrrverandi fjármálaráðherra,
verður yfirmaður þjóðskipulags-
nefndar sem sér um að samhæfa
störf ráðuneytanna.
Zuma tók formlega við embætti
forseta á laugardaginn. Hann er
fjórði lýðræðislega kjörni forseti
landsins. - gb
Ný ríkisstjórn Suður-Afríku:
Ekki búist við
breytingum
JACOB ZUMA Kynnir nýja ríkisstjórn sína.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Einar, var mikið álag á ykkur?
„Já, en meðan það kemur ekki
niður á álagningunni þá erum við
sáttir.“
Einar Hermannsson er annar eigandi
Merkjalistar sem lenti í því að fá ekki
nægilegt ál til að framleiða auglýsinga-
skilti á knattspyrnuvelli fyrir Íslandsmótið.
Það bjargaðist þó.
STJÓRNMÁL Ný ríkisstjórn Sam-
fylkingar og Vinstri grænna
boðar að umsókn um aðild
Íslands að Evrópusambandinu
verði send til Brussel í sumar.
Á málfundi sem haldinn verður
í Odda í hádeginu í dag verður
kynning á nýútkominni bók sem
ber heitið „Inni eða úti: Aðild-
arviðræður við ESB“. Í bók-
inni er lýsing á því ferli sem fer
í gang er ríki sækir um aðild að
Evrópusambandinu og fjallað um
lærdóma sem draga má af fyrri
stækkunarlotum sambandsins.
Á málfundinum segir höfund-
ur bókarinnar, Auðunn Arnórs-
son, stjórnmálafræðingur og
blaðamaður, nokkur orð auk þess
sem Magnús Árni Magnússon,
forstöðumaður Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla Íslands, flytur
erindi þar sem hann leggur út af
efni bókarinnar. - gb
Hitamál útskýrt í nýrri bók:
Samningsferlið
við ESB krufið
Fjölskyldunni létt að
heyra loks í Ragnari
Fjölskylda Ragnars Erlings Hermannssonar náði loks sambandi við hann um
helgina. Ragnar hefur setið í fangelsinu í Recife í rúma viku. Að sögn fjölskyldu
Ragnars er hann ekki í lífshættu þó að aðbúnaður í fangelsinu sé slæmur.
KÓKAÍNIÐ Ragnar Erling var tekinn með tæp sex kíló af kókaíni á flugvellinum
í Recife í Brasilíu. Fjórir Íslendingar hafa verið handteknir fyrir smygl í Brasilíu á
skömmum tíma.
ATVINNUMÁL Heilbrigðisstofnun Suðurnesja var
óheimilt að hætta akstri sjúkraliða frá Reykjanes-
bæ til vinnu í Grindavík. Þetta er niðurstaða Félags-
dóms.
Umræddur sjúkraliði er kona úr hópi sjúkraliða
sem býr í Reykjanesbæ en starfar á hjúkrunarheim-
ilinu Víðihlíð í Grindavík. Heilbrigðistofnun Suður-
nesja hefur séð sjúkraliðunum fyrir ferðum til og
frá Víðihlíð og greitt þeim laun fyrir ferðatímann.
Þetta fyrirkomulag telur Sjúkraliðafélag Íslands
byggjast á ákvæði kjarasamnings við ríkið sem
segir að vinni starfsmaður fjarri leiðum almenn-
ingsvagna skuli honum séð fyrir ferðum til og frá
vinnustað eða fá greiddan ferðakostnað og að ferð-
irnar teljist til vinnutíma.
„Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og tilmælum
fjármálaráðuneytis um lækkun útgjalda, hefur
sú ákvörðun verið tekin að hætta keyrslu starfs-
manna til og frá Víðihlíð á vegum stofnunarinnar
auk greiðslna fyrir aksturstíma,“ sagði í bréfi sem
sjúkraliðarnir fengu frá forstjóra heilbrigðisstofn-
unarinnar fyrir jól í fyrra. Þessa ákvörðun kærði
Sjúkraliðafélag Íslands til Félagsdóms.
Rök heilbrigðisstofnunarinnar voru meðal ann-
ars þau að stofnuninni hafi ekki verið skylt að aka
sjúkraliðinum en gert það engu að síður vegna
skorts á starfsfólki í Grindavík. Félagsdómur hefur
hins vegar ógilt ákvörðunina um að hætta akstrin-
um þar sem hún sé andstæð kjarasamningi. - gar
Félagsdómur ógildir sparnaðarákvörðun hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Skulu aka sjúkraliða til vinnu
HEILBRIÐGISSTOFNUN SUÐURNESJA Gert að draga úr útgjöld-
un en sparnaðarráðstöfun úrskurðuð brot á kjarasamningi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
RAGNAR ERLING HERMANSSON
Hann hefur nú setið í brasilísku fangelsi
í rúma viku fyrir að reyna að smygla sex
kílóum af kókaíni. Aðbúnaður í fang-
elsinu er slæmur. Ragnar á enn
við meltingavandamál að
stríða en fær meðhöndlun
við kvillanum.
SPURNING DAGSINS