Fréttablaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 42
26 11. maí 2009 MÁNUDAGUR KR 2-1 FJÖLNIR 0-1 Jónas Grani Garðarsson (33.) 1-1 Björgólfur Takefusa (56.) 2-1 Jónas Guðni Sævarsson (63.) KR-völlur, áhorfendur: 1.899 Jóhannes Valgeirsson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 18–9 (11–4) Varin skot Stefán Logi 3 – Þórður 8 Horn 9–4 Aukaspyrnur fengnar 11–19 Rangstöður 3–1 KR 4–4–2 Stefán Logi Magnússon 7 – Skúli Jón Friðgeirsson 6, Bjarni Guðjónsson 6, Grétar Sigurð- arson 7, Jordao Diogo 6 – Óskar Örn Hauksson 5, Baldur Sigurðsson 6 (74. Guðmundur Pétursson -), *Jónas Guðni Sævarsson 7, Gunnar Örn Jónsson 6 (62. Atli Jóhansson 6) – Björgólfur Takefusa 7 (84. Guðmundur Benediktsson -), Prince Rajcomar 6. Fjölnir 4–5–1 Þórður Ingason 7 – Gunnar Valur Gunnarsson 5, Ólafur Páll Johnson 5, Geir Krist- insson 5, Vigfús Arnar Jósepsson 5 (85. Andri Valur Ívarsson -) – Aron Jóhannsson 7, Illugi Gunnarsson 6 (80. Ásgeir Aron Ásgeirsson -), Gunnar Már Guðmundsson 4, Magnús Ingi Einarsson 5, Tómas Leifsson 4 (75. Guðmundur K. Guðmundsson -) – Jónas Grani Garðarsson 6. Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 19. – 22. júní 148.900kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, hótelgisting í 3 nætur með morgunverði, miði á Formúluna, íslensk fararstjórn og rútuferðir. Silverstone Verð á mann í tvíbýli: Formúla 1 F í t o n / S Í A Fagor þvottavél 3F-111 1100 snúninga þeytivinda. 5kg hleðsla. Tilboð 75.900 Fagor þvottavél Reykjavík . Borgartún 24 . Sími 562 4011 Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800 Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020 Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200 ÞeytivindaB Enska úrvalsdeildin Everton - Tottenham 0-0 Hull - Stoke 1-2 0-1 Ricardo Fuller (41.), 0-2 Liam Lawrence (73.), 1-2 Andy Dawson (90.). West Brom - Wigan 3-1 1-0 Marc-Antoine Fortune (8.), 1-1 Hugo Rodallega (17.), 2-1 Chris Brunt (59.), 3-1 Marc- Antoine Fortune (73.). Fulham - Aston Villa 3-1 1-0 Danny Murphy, víti (8.), 1-1 Ashley Young (14.), 2-1 Diomansy Kamara (46.), 3-1 Diomansy Kamara (60.). Blackburn - Portsmouth 2-0 1-0 Morten Gamst Pedersen (31.), 2-1 Benni McCarthy, víti (58.). Bolton - Sunderland 0-0 West Ham - Liverpool 0-3 0-1 Steven Gerrard (2.), 0-2 Gerrard (38.), 0-3 Ryan Babel (84.). Manchester United - Manchester City 2-0 1-0 Cristiano Ronaldo (18.), 2-0 Carlos Tevez (45.) Arsenal - Chelsea 1-4 0-1 Alex (28.), 0-2 Nicolas Anelka (39.), 0-3 Kolo Toure, sjálfsmark (49.), 1-3 Nicklas Bendtner (70.), 1-4 Florent Malouda (86.). STAÐA EFSTU LIÐA: Man. United 35 26 5 4 65-23 83 Liverpool 36 23 11 2 72-26 80 Chelsea 36 23 8 5 63-22 77 Arsenal 36 19 11 6 64-36 68 Aston Villa 36 16 10 10 52-47 58 Everton 36 15 12 9 50-36 57 Fulham 36 13 11 12 38-32 50 Tottenham 36 13 9 14 42-41 48 West Ham 36 13 9 14 39-41 48 Man. City 36 14 5 17 56-48 47 STAÐA NEÐSTU LIÐA: Wigan 35 11 9 15 32-41 42 Stoke City 36 11 9 16 35-51 42 Bolton 36 11 7 18 40-51 40 Blackburn 36 10 10 16 40-58 40 Portsmouth 36 9 11 16 35-55 38 Sunderland 36 9 9 18 31-48 36 Hull City 36 8 10 18 38-62 34 Newcastle 35 6 13 16 37-56 31 M‘brough 35 7 10 18 25-51 31 West Brom 36 8 7 21 36-65 31 Enska B-deildin, umspil Sheffield United - Preston 1-1 Burley - Reading 1-0 Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley en þurfti að fara af velli á 21. mínútu vegna meiðsla. Brynjar Björn Gunnarsson lék fyrstu 85 mínúturnar í liði Reading. Þýska bikarkeppnin Kiel - Gummersbach 30-24 Kiel varð bikarmeistari en Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Gummersbach sem lagði Hamburg í undanúrslitunum, þar sem Róbert skoraði fimm mörk. Kiel vann Rhein-Neckar Löwen í hinum undanúrslitaleiknum og skoraði Guðjón Valur Siguðarson sjö mörk fyrir Löwen. Sænska úrvalsdeildin Alingsås - Guif 29-26 Kristján Andrésson er þjálfari Guif. Bróðir hans, Haukur, skoraði þrjú mörk fyrir Guif. Þetta var úrslitaleikurinn um sænska meistaratitilinn. ÚRSLIT FÓTBOLTI KR byrjar vel í Pepsi- deildinni í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Fjölni í opnunarleik móts- ins í gær. KR-ingar lentu reyndar undir í fyrri hálfleik en tóku sig saman í andlitinu í þeim síðari og unnu sanngjarnan 2-1 sigur. Það var hins vegar heldur ósanngjörn meðferð sem gestirn- ir úr Grafarvoginum fengu undir lok leiksins. Hinn átján ára Aron Jóhannsson fékk að líta rauða spjaldið fyrir afar litlar sakir í uppbótartíma leiksins. Hann var dæmdur brotlegur fyrir að toga Guðmund Pétursson niður en hann var þá við það að komast einn gegn markverði Fjölnismanna. „Ég sá hann ekki brjóta af sér,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálf- ari Fjölnis. „Dómarinn var 2- 3 metrum frá atvikinu en lætur aðstoðardómarann – sem er 30 til 40 metrum frá – reka manninn út af. Ég set stórt spurningarmerki við það.“ Ásmundur sagði ungu leik- mennina sína fá slæma meðferð í leiknum en annar átján ára Fjöln- ismaður, Geir Kristinsson, fékk áminningu snemma leiks. „Það var fyrir mjög litlar sakir. Á sama tíma fengu leikmenn KR viðvör- un og þeim sagt að passa sig. En Geir og Aron eru ungir og óreynd- ir og auðveldara að gera eitthvað við þá.“ Sem fyrr segir komst Fjöln- ir yfir í fyrri hálfleik og átti svo tök á því að komast í 2-0 snemma í þeim síðari er Aron slapp einn inn fyrir vörn KR. Hann skaut hins vegar yfir markið. Aðeins mínútu síðar kom jöfnun- armark KR og stuttu síðar sigur- mark Jónasar Guðna Sævarsson, fyrirliða KR. „Eftir dauðafærið gáfum við eftir og þeir skoruðu. Eftir það óx þeim ásmegin en loftið fór úr okkur.“ Logi Ólafsson, þjálfari KR, var ánægður með stigin þrjú en ekki frammistöðuna í fyrri hálf- leik. „Við töpuðum nánast öllum tæklingum í vörninni og boltinn gekk ekki vel á milli manna. Við ræddum svo málin í leikhléinu og komumst að því að það var engin ástæða til að vera í neinu stressi. Við þurftum bara að gera það sem við erum góðir í en það er að spila boltanum. Við skoruðum svo tvö mörk sem komu bæði eftir laglegan samleik.“ Logi segir að þeir geri þá kröfu að vinna Fjölni á heimavelli. „Það hefði verið gríðarlega slæmt að tapa. Undir venjulegum kringum- stæðum eigum við að vinna Fjölni á heimavelli. Sem betur fer tókst það.“ KR hefði vel getað skorað fleiri mörk undir lok leiksins og hefði sigurinn hæglega getað orðið stærri. Fjölnir fékk einnig fáein tækifæri til að jafna metin en allt kom fyrir ekki. Sanngjarn sigur KR er niðurstaðan. eirikur@frettabladid.is Svart og hvítt hjá KR-ingum KR vann 2-1 sigur á Fjölni í opnunarleik Pepsi-deildar karla í gær. Frammistaða liðsins í leiknum var eins og félagslitirnir − svört og hvít − enda spiluðu þeir rönd- óttu glimrandi vel í síðari hálfleik eftir afar dapra frammistöðu fyrir hálfleik. FÖGNUÐUR KR-ingar fagna fyrsta marki sínu í Pepsi-deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Manchester United tók mikilvægt skref í átt að enska meistaratitlinum í gær með öruggum 2-0 sigri á grönnum sínum í Manchester City. Cristi- ano Ronaldo skoraði fyrra mark United beint úr aukaspyrnu en Carlos Tevez það síðara með glæsilegu skoti. Ronaldo var svo tekinn af velli þegar hálftími var eftir af leikn- um og var hann allt annað en sátt- ur við það. „Hann er í frábæru formi og vildi spila,“ sagði Alex Ferguson og gerði heldur lítið úr viðbrögðum kappans. Liverpool hélt pressunni á Unit- ed með 3-0 sigri á West Ham á úti- velli um helgina. Steven Gerrard skoraði tvö markanna. Þá vann Chelsea 4-1 stórsigur á Arsenal á Emirates-leikvang- inum. Heimamenn voru lánlaus- ir nánast allan leikinn og fengu þó nokkur færi. Nicklas Bendtner var þó einn þeirra rauðklæddu á skotskónum í gær. Botnbaráttan er mjög hörð en þrjú neðstu liðin, Newcastle, Middlesbrough og West Brom, eru öll með 31 stig. Tvö fyrr- nefndu liðin eiga leik til góða og mætast einmitt í kvöld. Stoke tryggði sér endanlega áframhaldandi veru í úrvalsdeild- inni með 2-1 sigri á Hull á útivelli. Síðarnefnda liðið er nú aðeins þremur stigum frá fallsæti og í miklum vandræðum fyrir loka- sprettinn í deildinni. Sunderland (fimm stigum frá fallsæti) og Portsmouth (sjö stig- um frá) eru heldur ekki enn örugg með sín sæti. - esá Efstu þrjú liðin unnu öll örugga sigra í ensku úrvalsdeildinni um helgina: Man. Utd. skrefi nær titlinum CRISTIANO RONALDO Fagnar marki sínu gegn City í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.