Fréttablaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 26
 11. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● hús og viðhald Sverrir er byggingartæknifræðingur hjá Eflu sem hefur meðal annars séð um viðhald Gljúfrasteins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Virðisaukaskattur á vinnu við íbúðir og sumarhús fæst nú að fullu endurgreiddur og hæg- ara er að fá iðnaðarmenn á viðunandi verði en undanfarin ár. Sverrir Jóhannesson, bygg- ingartæknifræðingur hjá Eflu, var spurður hvað helst þyrfti að hafa í huga við undirbúning og framkvæmd húsaviðgerða. „Fyrsta skrefið er að ákveða hvað á að gera fyrir húsið og láta síðan fleiri en einn bjóða í verk- ið. Svo tilboðin séu fyllilega sam- anburðarhæf þarf verkefnalýsing að vera nákvæm í upphafi. Ann- ars getur farið svo að lægsta til- boðið sé ekki það hagstæðasta því áhersla á vandaða viðgerð getur verið mismunandi milli manna,“ segir Sverrir. Hann telur öruggast fyrir hús- eigendur að leita ráða hjá einhverj- um sem sé óháður þeim sem bjóða í. Varasamast sé þegar sá sem eigi að vinna verkið sé fenginn til að meta sjálfur hvað skuli gera. En er ekki alltaf hætta á að viðbótar- skemmdir komi í ljós þegar byrj- að er að gera við gömul hús? „Jú, en eftir því sem undirbúningur- inn er betri er minni hætta á því. Það getur borgað sig að eyða í hann í stað þess að leggja af stað í blindni,“ svarar hann. Skriflegir samningar eru nauð- synlegir að mati Sverris, þar sem fram komi hverjir geri samning- inn og hvað eigi að gera. Líka verk- tími, verð og greiðslur og hvort stuðst sé við ákveðna staðla eða reglugerðir. „Því nákvæmar sem verkið er skilgreint stendur samn- ingurinn betur fyrir sínu. Eyðu- blöð fást hjá Húseigendafélaginu og sumir verktakar eru með þau líka.“ Sverrir tekur fram að tíma- bundin lög um endurgreiðslu virð- isaukaskatts af hönnun og löggildu eftirliti, ásamt vinnu á byggingar- stað við íbúðarhúsnæði og sumar- hús komi húseigendum til góða. Á vef samtaka iðnaðarins www.si.is er auðvelt að ná í eyðublöð til að fylla út og fara með til skattsins. „Nú skilar svört vinna húseigand- anum engu þegar virðisaukinn fæst allur endurgreiddur,“ bend- ir hann á. „Það er enginn gróði í því að vera að svindla á kerfinu, sérstaklega þegar öll ábyrgðin fer við það.“ Talandi um ábyrgðir. Hvernig er þeim háttað á húsaviðgerðum? „Yf- irleitt er eins árs ábyrgð á slíkum framkvæmdum. Þegar verkið er búið er það tekið út og séð til þess að allir séu sáttir,“ segir Sverrir en heimasíða verkfræðistofunnar Eflu er www.efla.is. - gun Betra að undirbúa verk vel en leggja af stað í blindni Með öryggiskerfi í sumarbústaðnum er hægt að bregðast hrað- ar við ef upp koma vatns- eða frostskemmdir, fyrir utan að fæla innbrotsþjófa frá. Mánaðarverð á grunnþjónustu er á milli þrjú til fjögur þúsund krónur. Ef kalla á til öryggisvörð þarf að borga fyrir hvert útkall. Bæði Securitas og Öryggismiðstöðin bjóða sumarhúsaeigend- um upp á vörn gegn vá. Hægt er að velja nokkuð hvernig örygg- ispakkinn er uppbyggður, en það fer eftir þörfum sumarbústað- arins og eigenda hans. Grunnpakki Sumarhúsavarnar Securitas kostar 3.200 krónur á mánuði. Er þar innifalið einn reykskynjari, einn segulnemi, og einn hreyfiskynjari og eru þeir tengdir við stjórnstöð Secu- ritas, auk límmiða. Við þetta er svo hægt að bæta vatnsnemum og fjarstýringu, þannig að hægt sé að stýra hita og lýsingu með sms-skilaboðum. Öryggismiðstöðin býður upp á Sumarhúsaöryggi og kostar grunnpakki þeirra 3.950 krónur á mánuði. Er þá innifalið reyk- hreyfi- og vatnsskynjari sem tengdir eru stjórnstöð Öryggis- miðstöðvarinnar, auk límmiða. Bæði fyrirtækin bjóða upp á að fleiri skynjarar séu sett- ir upp, til dæmis í stærri bústöðum. Securitas selur þá sérstak- lega, en Öryggismiðstöðin býður upp á leigu á slíkum skynjur- um. Ef skynjarar láta vita að eitthvað sé að, hvort sem það er vatn sem farið er að leka, hreyfing sem ekki á að vera til staðar vegna innbrotsþjófa eða glugga sem gleymdist að loka, kuldinn sé orðinn það mikill að bústaðurinn liggi við skemmdum eða kviknað sé í, er eigandi látinn vita og hann getur þá beðið um að öryggisvörður mæti á svæðið. Securitas býður upp á slíka þjónustu ef bústaðirnir eru í innan við 50 kílómetra fjarlægð frá starfsstöð Securitas sem eru víðs vegar um landið og kost- ar útkallið 5.000 krónur. Öryggismiðstöðin býður einnig upp á slíka þjónustu í helstu sumarbústaðakjörnum og kostar hvert útkall 10.000 krónur. - ss Öryggi gegn þjófum og skemmdum Skemmdir, hvort sem er af náttúru eða mannavöldum, geta eyðilagt annars notalega og friðsæla sumarbústaðarferð.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.