Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 8

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 8
8 11. maí 2009 MÁNUDAGUR 15% verðlækkun NICOTINELL Mintutyggjó – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is Gildir út maí 2009 15% verðlækkun LAMISIL ONCE Auglýsingasími – Mest lesið 1. Hver leikstýrir söngleiknum Söngvaseið sem nú er sýndur í Borgarleikhúsinu? 2. Hvað heitir Drangeyjarjarl- inn réttu nafni? 3. Hvaða fyrirsæta undirritaði nýlega samning um útgáfu sjálfsævisögu sinnar? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 Jóhanna Sigurð- ardóttir, formaður Samfylkingarinnar, er forsætisráðherra. Hún hefur gegnt embættinu síðan 1. febrúar. Jóhanna hefur setið á Alþingi síðan 1978. Hún var félagsmálaráðherra 1987-1994 og 2007-2009. Jóhanna er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður. Forsætisráðherra Jón Bjarnason. VG er sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra. Jón hefur setið á Alþingi síðan 1999. Hann er þingmaður Norðvesturkjör- dæmis. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Katrín Jakobsdótt- ir, varaformaður VG, er menntamálaráð- herra. Hún hefur gegnt embættinu frá 1. febrúar. Katrín hefur setið á þingi síðan 2007. Hún er þingmað- ur Reykjavíkur- kjördæmis norður. Menntamálaráðherra Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingunni, er iðnaðarráðherra. Katrín hefur setið á Alþingi síðan 2003. Hún er þing- maður Suðvestur- kjördæmis. Iðnaðarráðherra Kristján L. Möller, Samfylkingunni, er samgönguráðherra. Hann hefur gegnt embættinu síðan 2007. Kristján var kjörinn á Alþingi 1999. Hann er þingmaður Norð- austurkjördæmis. Samgönguráðherra Steingrímur J. Sig- fússon, formaður VG, er fjármálaráð- herra. Hann hefur gegnt embættinu frá 1. febrúar. Steingrímur hefur setið á Alþingi síðan 1983. Hann var landbúnaðar- og samgönguráðherra 1988-1991 og sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, auk þess að vera fjármálaráð- herra, frá febrúar 2009 til 10. maí. Steingrímur er þingmaður Norð- austurkjördæmis. Fjármálaráðherra Ný ríkisstjórn Jóhönnu Árni Páll Árnason, Samfylkingunni, er félags- og trygginga- málaráðherra. Árni Páll hefur setið á Alþingi síðan 2007. Hann er þing- maður Suðvestur- kjördæmis. Félags- og trygginga- málaráðherra Össur Skarphéð- insson, Sam- fylkingunni, er utanríkisráðherra. Hann hefur gegnt embættinu síðan 1. febrúar. Össur hefur setið á Alþingi frá 1991. Hann var umhverfis ráðherra 1993-1995 og iðnaðarráðherra frá 2007-2009. Össur er þingmaður Reykjavíkurkjör- dæmis suður. Utanríkisráðherra NÝ RÍKISSTJÓRN Svandís Svavars- dóttir, VG, er umhverfisráðherra. Hún var fyrst kjörin á þing í nýafstöðnum kosn- ingunum. Hún er þingmaður Reykja- víkurkjör dæmis suður. Umhverfisráðherra Ögmundur Jónasson, VG, er heilbrigðisráðherra. Hann hefur gegnt embættinu frá 1. febrúar. Ögmundur hefur setið á þingi síðan 1995. Hann er þing- maður Suðvestur- kjördæmis. Heilbrigðisráðherra Ragna Árnadóttir er dómsmálaráð- herra. Hún hefur gegnt embættinu síðan 1. febrúar. Ragna á ekki sæti á Alþingi. Dómsmálaráðherra Gylfi Magnússon er viðskiptaráðherra. Hann hefur gegnt embættinu frá 1. febrúar. Gylfi á ekki sæti á Alþingi. Viðskiptaráðherra „Það er víða sem rætt er um sam- ráð og samstarf við okkur og verkalýðshreyfinguna og það er fagnaðarefni,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins (SA). Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, tekur í sama streng. „Ég sé ekki betur en ríkisstjórnin sé að svara kalli vinnumarkaðarins um að setjast niður og vinna á þeim vanda sem við okkur blasir,“ segir hann. Þeir segja báðir að þegar Evrópusamvandsaðild verði til umræðu muni þeir ekki láta sitt eftir liggja til að vernda hags- muni atvinnulífsins í þeim samn- ingum. Það eina sem Vilhjálmur sagð- ist gjalda varhug við var upptaka aflaheimilda og áform um eigna- umsýslufélag ríkisins. Sagði hann fyrningarleiðina valda óvissu við rekstur sjávarútvegsfyrirtækj- anna og ekki væri á óvissuþætt- ina bætandi í íslensku rekstrar- umhverfi. Hvað eignaumsýslufélagið varðar segir hann SA frekar hafa viljað að bankarnir tækju fyrir- tækin yfir en ríkið og óttaðist hann fákeppni ef þessi leið yrði farin. - jse Kátir að vera kallaðir til leiks GYLFI ARNBJÖRNSSON VILHJÁLMUR EGILSSON SJÁVARÚTVEGUR Sævar Gunn- arsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands, fagnar því að LÍÚ skuli vera tilbúið til að ræða um að takmarka leigu- framsal á kvóta. Hann seg- ist hins vegar vilja sjá frekari útfærslu á fyrningarleiðinni áður en hann tekur afstöðu til hennar. „Ef þeir meina eitthvað með þessu þá leggst það vel í okkur, þetta hefur verið baráttumál síðan kvótakerfið var sett á að hætta þessu leigubraski,“ segir Sævar. - jse Fagnar við- horfsbreytingu VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.