Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 10
10 11. maí 2009 MÁNUDAGUR
ÞÁ RIGNDI EGGJUM Hluthafar
franska fjárfestingarfélagsins Pinault
Printemps Redoute beittu fyrir sig
regnhlífum þegar starfsmenn köstuðu
eggjum í þá til að mótmæla háum
arðgreiðslum. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Bandaríska skyndibita-
keðjan McDonald’s hagnaðist um
979,5 milljónir dala, jafnvirði 123
milljarða króna, á fyrsta fjórð-
ungi ársins. Þetta er 3,5 prósenta
aukning frá fyrra ári.
Tekjur námu fimm milljörðum
dala á tímabilinu, sem er 9,6 pró-
senta samdráttur.
Forsvarsmenn McDonald‘s
greindu frá því fyrir helgi að
annar ársfjórðungur hafi byrj-
að betur en á horfðist en sala
jókst um 6,9 prósent í nýliðnum
mánuði. Mestu munar um aukna
sölu á morgunverði, kjúklinga-
samlokum og kaffisopa, að sögn
Bloom berg-fréttaveitunnar. - jab
Fleiri kjósa sér skyndibita:
Vorið byrjar vel
hjá McDonald‘s
BRETLAND Hátekjuskattar þeir sem
boðaðir voru í fjárlagafrumvarp-
inu sem breski fjármálaráðherr-
ann Alistair Darling kynnti þann
22. apríl síðastliðinn hafa hlotið
misjöfn viðbrögð.
Samkvæmt frumvarpinu stend-
ur til að hækka tekjuskatt á þá
sem þéna meira en 150.000 sterl-
ingspund á ári – sem samsvar-
ar um 28,5 milljónum króna – úr
40 prósentum í 50 prósent. Er
hann fylgdi fjárlagafrumvarpinu
úr hlaði á þingi sagði Darling að
þessi ráðstöfun væri hluti af þeirri
stefnu ríkisstjórnar Verkamanna-
flokksins, að innleiða meiri „sann-
girni“ í skattkerfið.
Hátekjuskattstillögurnar eru
þó öllu flóknari en þetta. Í úttekt
vikuritsins The Economist er rakið
hve jaðaráhrif breytinganna verða
mikil. Þau eru sögð munu hækka
úr 31,5 prósentum í 41,5 til 61,5
prósent. Mest verði þessi áhrif
á þá sem þéna rétt yfir 100.000
pundum á ári. Þeir missi persónu-
afsláttinn og við það fari jaðar-
skattprósentan í þetta hæsta stig.
Fyrir þá sem þéna á bilinu 113.000
til 150.000 pund geta farið niður í
41,5 prósent, en við 150.000 punda
markið fer jaðarskatturinn í 51,5
prósent.
Þá hefur það áhrif líka að
skattafsláttur sem veittur er af
séreignalífeyrissparnaði minnkar
um allt að helming á hátekjufólk.
Vegna þess hve flóknar reglurn-
ar eru geta þó sumir hátekjumenn
endað uppi með að borga minni
skatt af slíkum lífeyrissparnaði.
„Þvílíkt klúður,“ skrifar Econom-
ist í leiðara um málið.
Allt í allt eru þessar auknu
skattaálögur á hátekjufólk þó ekki
taldar munu skila meiru en um
tveimur milljörðum punda í ríkis-
kassann, og því duga skammt til að
laga hinn mikla fjárlagahalla sem
fram undan er.
Að sögn Financial Times hafði
verið búist við minni hækkun
hátekjuskatts, en ríkisstjórnin
hefði ákveðið að hafa hana svona
mikla til að undirstrika muninn
á skattastefnu Verkmannaflokks-
ins og Íhaldsflokksins, sem mælst
hefur með drjúgt forskot í skoð-
anakönnunum. Þingkosningar
verða að fara fram í Bretlandi í
síðasta lagi í júní 2010.
Í ljósi þess hve kreppan veldur
miklum halla á ríkisfjármálun-
um er hins vegar talið að íhalds-
menn muni, komist þeir til valda,
ekki geta látið nægja að skera bara
niður ríkisútgjöld án skattahækk-
ana, eins og þeir vilja helst. Bæði
óvinsæll niðurskurður og óvinsæl-
ar skattahækkanir verði óumflýj-
anlegar. audunn@frettabladid.is
Misjöfn viðbrögð við
hátekjuskatti Darlings
Jaðaráhrif valda því að boðaðir hátekjuskattar í Bretlandi munu skilja allt að
61,5 prósent af tekjum skattgreiðenda eftir í sjóðum ríkisins. Þó munu hátekju-
skattarnir ekki hrökkva langt til að rétta af hallarekstur breska ríkissjóðsins.
HÁIR HÁTEKJUSKATTAR Breski fjármálaráðherrann Alistair Darling með fjárlagafrum-
varpið í rauðu töskunni frægu. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndin
(NEAFC) samþykkti nýverið að
loka stórum svæðum á Atlants-
hafshryggnum til að vernda við-
kvæm vistkerfi fyrir áhrifum
botnveiðarfæra. Lokunin nær
til fimm svæða og er viðbót við
þau svæði sem þegar hefur verið
lokað í sama tilgangi. Samanlagt
eru hin nýju svæði 330.000 fer-
kílómetrar eða sem nemur ríf-
legri þrefaldri stærð Íslands.
Sá hluti Atlantshafshryggjar-
ins sem ekki fellur undir lokanir
er skilgreindur sem „nýtt svæði“
og gilda sérstakar reglur um
hugsanlegar botnveiðar á slíkum
svæðum. Ráðstafanir sem ætlað
er að styðja við frekari verndun
viðkvæmra vistkerfa á úthafinu á
samningssvæði NEAFC tóku gildi
í janúar. Í aðdragandanum hafa
allar botnfiskveiðar síðastlið-
inna tuttugu ára á samningssvæði
NEAFC verið kortlagðar. - shá
Fimm stórum svæðum lokað:
Vernda vistkerf-
ið með banni
VERSLUN Verslunarmenn í Vík í
Mýrdal segja erlenda ferðamenn
vera fjölmenna þar frá því í
febrúar og kaupgleðin mun meiri
en áður hefur þekkst. Segja þeir
lágt gengi krónunnar ráða mestu
um þessa þróun.
„Það var orðið afar óþægilegt
að heyra ferðamennina tala um
það hvers konar okurbæli þetta
Ísland væri árið 2007,“ segir
Þórir Kjartansson, framkvæmda-
stjóri Víkurprjóns. „Nú er við-
mótið allt annað og þeir kaupa
miklu meira.“
Elías Guðmundsson, sem rekur
Víkurskálann, tekur í sama
streng. „Maður sá fram á langan
vetur þegar hrunið varð í haust
en svo fór bara að sumra í febrú-
ar. Við Þórir erum hérna með
okkar þjónustu á torginu sem við
höfum stundum kallað Torg hins
himneska friðar, svona í gríni en
það stendur ekki undir því nafni
eins og umferðin er orðin.“ - jse
Verslunarmenn í Vík:
Viðmótið gott
eftir okrið 2007