Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 14

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 14
14 11. maí 2009 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Það er engan veginn auðvelt eða sjálfsagt mál fyrir VG og Samfylkingu að mynda saman ríkisstjórn: flokkarnir hafa í grundvallaratriðum andstæðar skoðanir í Evrópumálum og for- ingjar beggja flokkanna þurfa að geta staðið frammi fyrir sínu fólki og varið þá leið sem farin var. Úr mörgu þarf að greiða. Þetta er vegna sögunnar – vegna hefðar flokkanna sem þessir eru runnir frá – vegna rótgróins þankagangs innan þeirra beggja. Skúli Thorodd- sen mun alltaf greiða atkvæði á móti Uppkastinu og Benedikt Sveinsson á móti Miðluninni. Innan íslenskrar stjórmálahugs- unar liggur þungur straumur allt frá Benedikt Sveinssyni og síðar Skúla Thoroddsen og Landvarnar- mönnum, straumur þeirra sem gera ítrustu kröfur í sjálfstæðis- málum. Þetta er nauðsynleg rödd en hún má ekki alltaf vera ríkj- andi. Ýmislegt varð til þess að þessi straumur fann sér farveg innan sósíalistahreyfingarinnar fremur en annars staðar; hjá Skúla Thor- oddsen fór saman ítrasta krafa um full réttindi þjóðarinnar og frjálslynd framfarahyggja í þjóð- félagsmálum, sem hann deildi raunar með Hannesi Hafstein, svona til að flækja málin enn frekar. Út frá sjónarhóli Alþýðuflokks- ins reyndist rótgróið áhugaleysi foringja þess flokks um sjálf- stæðisstjórnmál – alþjóðahyggja þeirra – koma í veg fyrir að flokkurinn yrði það afl í íslensk- um stjórnmálum sem til stóð. Foringjarnir litu út sem lyddur gagnvart erlendu valdi í augum hugsanlegra kjósenda – í Nató- málinu og Herstöðvamálinu, þó að þeir hefðu vissulega þjóðar- heill að leiðarljósi og fylgdu sömu stefnu og kratar annars staðar á Norðurlöndunum, sem voru jafn- vel enn eindregnari andkomm- únistar. Íslenskum kommúnistum tókst að breyta sér í eitthvað annað með hjálp þjóðrækninnar – ein- hvers konar þjóðhyggjuflokk – einhvers konar krata. Þegjandi og hljóðalaust hættu þeir að aðhyllast byltingu og ríkiseign allra framleiðslutækja og Eðvarð fór að vinna með Bjarna Ben í bróðerni að því að útrýma vond- um húsakosti – einhvers konar kratar sem sé og þó ekki alveg, því ekki er til verra skammar- yrði í munni gamals komma en að segja að einhver sé „krrraaaa- aathi“ – heitið er beinlínis urrað – og eins var undirlægjuháttur margra foringja íslenskra komm- únista gagnvart Sovétkommún- ismanum furðu lífseigur, jafn- vel eftir að óhæfuverkin tóku að koma í ljós. En þeir voru sem sé harðir í horn að taka og stóðu með þeim fátæku gegn þeim ríku, þeim valdalausu gegn valdhöf- unum og þessi varðstaða færðist yfir á varðstöðu um réttindi þjóð- arinnar gagnvart ofríki erlendra hervelda. Kratarnir voru deigir – eða höfðu þannig áru. Vissulega áttu þeir sínar verkalýðshetjur sem dáðar voru af allri alþýðu – Jóhönnu Egilsdóttur, Héðin, Hannibal og fleiri og fleiri en smám saman fékk flokkurinn það yfirbragð að vera lítill hægri- flokkur, alveg eins og Framsókn var eftir sína stjórnartíð með íhaldinu og Samfó hefði orðið ef sú stjórn hefði haldið áfram. Sem sé: þetta er ekki auðvelt. Sagan er eflaust stundum eins og myllusteinn um hálsinn á því fólki sem nú fyllir flokkana sem komu í stað Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks. Vandinn er sá að láta þennan arf hvíla á sínum stað – vita af honum, bera virðingu fyrir því fólki sem á undan fór – en átta sig um leið á því að hugsunar- háttur þess á ekki lengur við. Frá miðri tuttugustu öldinni hafa sjálfstæðisstjórnmálin sundrað vinstri mönnum á Íslandi – ágreiningur um stað Íslands í samfélagi þjóðanna. Fyrst vildu kommúnistar að Ísland tæki sér stöðu með leppríkjum Sovét- ríkjanna og síðan settu arftakar þeirra fram hugmyndir um að Ísland skipaði sér í lið með arð- rændum ríkjum þriðja heims- ins – einn leiðtogi Alþýðubanda- lagsins vildi að Ísland gengi í Asíu – allt nema Evrópu – en nú á dögum tala menn í VG helst um að Ísland eigi heima meðal nor- rænu ríkjanna, en þangað hafa einmitt kratar einatt litið eftir leiðsögn. Þannig að þetta þokast á sama stað. Systurflokkar VG á Norðurlöndum eru raunar áhuga- samir um Evrópusamstarf (eins og meirihluti kjósenda VG líka) og innan flokksins eru ýmsir sem deila þeirri skoðun með Sam- fylkingarfólki að aðildin að ESB sé einmitt stærsta sjálfstæðis- málið. En hann er þungur þessi straumur sem liggur frá Benedikt Sveinssyni að hamast gegn Miðl- uninni – sá óbilgjarnasti og tor- tryggnasti í garð útlendinga verður ævinlega hávært afl í íslenskum stjórnmálum. En við skulum muna það – kæru félagar í Samfylkingu og Vinstri grænum – að á meðan vinstri menn á Íslandi voru að rífast um Uppkastið komu hægri menn á fót kvótakerfinu og festu hér í sessi rammari og ranglátari stétta- skiptingu en annars staðar á Norðurlöndum. Og hitt: A-flokkarnir eru dauð- ir. Nýtt fólk – ný kynslóð – þarf nú að bjarga Íslandi. UMRÆÐA MÁLEFNI VR Kæru VR-félagar, eins og okkur er flestum kunnugt tók nýr formaður ásamt nýrri stjórn við eftir síðustu kosningar. Nýja forustan sem kennir sig við lýðræði og umbætur boðaði róttækar breytingar í félaginu sem átti meðal annars að fel- ast í meiri sýnileika á meðal félagsmanna. Tveir mánuðir eru nú liðnir frá því ný stjórn og formaður hlutu kosningu og enn hefur ekkert til þeirra spurst. Á sama tíma berast okkur reglulega fréttir af félögum okkar sem margir hverjir búa við erfið kjör. Samkvæmt fréttum á heimasíðu VR eru atvinnulausir félagar okkar nú rúmlega 10%. Það eru álíka margir og tóku þátt í síðustu kosn- ingum félagsins. Þrátt fyrir það heyrist lítið frá núverandi formanni okkar og nýrri stjórn. Til að bæta gráu ofan á svart er sú staða komin upp að 40% af atvinnulausum félagsmönnum VR kjósa að greiða ekki félagsgjöld af bótum sínum. Það eru skýr skilaboð til formanns og stjórnar þess efnis að félagsmenn telji hagsmuni sína ekki bætt- ari með aðild að VR. Sennilega má einnig draga þá ályktun að félagsmenn eru í auknum mæli að missa traust sitt á félaginu og forustu þess. Varla er við öðru að búast þegar framkoma við félagsmenn er með þessum hætti. Enn bólar ekkert á sýnileikan- um og vinnustaðaheimsóknunum, sem voru hins vegar tíðar í kosningabaráttunni. Ég vil nota tækifærið og benda á hversu afleitt ástandið er orðið. Það segir sig alveg sjálft að félagsmenn sem ekki greiða félagsgjöld tapa dýr- mætum réttindum sem eru margfalt verðmætari en sú upphæð sem greiða á í félagsgjöld. Ég skora því á stjórn og formann VR að vakna af þyrnirós- arsvefninum og bregðast við þessari afleitu þróun með AÐGERÐUM. Ég vil einnig nota tækifærið og skora á félags- menn í VR að krefjast þess að haldinn verði félags- fundur hið fyrsta til að krefjast svara. Við þögn og þetta aðgerðaleysi verður ekki búið lengur! Höfundur er trúnaðarmaður VR á vinnustað. Ný stjórn VR og staðan í dag Skipholti 50b • 105 Reykjavík Vinstri stjórn Hvar er búrið? Menn höfðu misgaman af hrekknum um ísbjörninn í Skagafirði sem átti að vera á ferð skammt frá Hofsósi um helgina. Sá reyndist vera uppstopp- aður og því hættulaus en lögreglan fór í viðbragðsstellingar og hringdi út skyttur. Eflaust hefðu margir viljað að hið sanna kæmi ekki í ljós fyrr en yfirvöld hefðu verið búin að taka ákvarðanir sem lúta að búrinu fræga sem sent var eftir í fyrra. Höfðu margir gaman af því máli og ekki úr vegi að endur- taka það, nema að afstaðan hafði breyst í umhverfisráðu- neytinu. Frá Emilíu, Ólafíu og Stefaníu Þegar ný stjórn er mynduð er alltaf forvitnilegt að velta því fyrir sér undir hvaða nafni menn muni minn- ast hennar. Stundum eru þær nefndar eftir þeim stað þar sem stjórnar sáttmálinn er undirritaður eða stjórnin kynnt. Eins og til dæmis Viðeyjar- stjórn eða Þingvalla- stjórn. Einnig getur það farið eftir þeim verkefnum sem við henni blasa eins og til dæmis einkavæðingar- stjórn, viðreisn- arstjórn eða nýsköpunarstjórn. Svo geta þær verið nefndar eftir þeim sem fyrir þeim fara, mætti þar nefna Stefaníu hans Stefáns Jóhanns Stefánssonar, Ólafíu hans Ólafs Jóhannessonar eða Emilíu Emils Jónssonar. Til Jóhönnu Það er því úr ýmsu að moða að þessu sinni. Þetta gæti verið Norræna stjórnin, Vatnsmýrarstjórnin, kreppustjórnin, nið- urskurðarstjórnin, skattastjórnin, nú eða bara Jóhanna. jse@frettabladid.is GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Ný ríkisstjórn Þ að er rétt hjá Steingrími Sigfússyni fjármálaráðherra að þau tímamót hafa orðið að í fyrsta sinn situr við völd hrein vinstri stjórn í landinu. Það eru afgerandi kafla- skil í stjórnmálasögunni. Til þess að þingmeirihluti geti myndað ríkisstjórn þarf tvennt að koma til: Í fyrsta lagi samkomulag um skiptingu valda. Í annan stað sátt um málefni. Ef ekki er bræðralag um völdin getur reynst þrautin þyngri að lifa af. Á hinn bóginn geta stjórnir setið án samstöðu um málefni. En þá er ekki á vísan að róa um árangur. Oftast fer þá illa. Af yfirlýsingum forystumanna ríkisstjórnarflokkanna má ráða að trúverðug eining ríki á milli þeirra um valdaskiptinguna. Með yfirlýsingu sinni í gær lögðu þeir hins vegar engar skýrar línur um lausn stærstu úrlausnarefnanna: ríkisfjármála, peningamála og Evrópumála. Að því er varðar efnahags- og ríkisfjármál má segja að nýja ríkisstjórnaryfirlýsingin sé endurskrift á samningi fyrri ríkis- stjórnar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þar er ekki að finna neinar útfærðar tillögur umfram þau markmið sem samningurinn geym- ir. Fullyrt er að þær muni koma síðar. Það er vel. Af yfirlýsingunni má ráða að frumkvæði að lausnum í ríkisfjár- málum eigi að koma út úr boðuðu samstarfi við aðila vinnumark- aðarins. Það samstarf er afar mikilvægt og forsenda árangurs. Hitt hefði verið eðlilegt að ríkisstjórnin hefði á þessu stigi haft frumkvæði að tillögugerð og kallað eftir samstarfi á þeim grund- velli. Svo virðist hins vegar vera sem ríkisstjórnin ætli að færa ábyrgðina í verulegum mæli yfir á launþegasamtökin. Samkvæmt ríkisstjórnaryfirlýsingunni er lausn á framtíðar- stefnu í peningamálum og afstöðunni til Evrópusambandsins í algjöru uppnámi. Þar vill Samfylkingin fara eina leið en VG aðra. Til sátta hefur VG fallist á að Samfylkingin megi halda fram hjá í stjórnarsamstarfinu og semja við aðra flokka um tvö af þremur stærstu málunum sem glíma þarf við. Ríkisstjórnin er því í málefnalegum minnihluta á Alþingi um helstu viðfangsefnin. Samfylkingin hefur fallist á að sitja í ríkis- stjórn með VG án þess að fá tryggingu fyrir framgangi Evrópu- málanna og nýrri framtíðarstefnu í peningamálum. Nú á eftir að koma í ljós hvað hún vill á sig leggja til þess að ná samkomulagi við hina flokkana á Alþingi til þess að ná þessum lykilmálum fram. Án lausnar á þeim er lítil von um efnahagslega endurreisn. Kjarni málsins er sá að forsætisráðherra hefur ekki fengið umboð samstarfsflokksins til að koma mikilvægustu málunum á framkvæmdastig. Það er algjör nýlunda í íslenskri pólitík. Sú nýlunda gefur stjórnarandstöðuflokkunum sterka stöðu og leggur jafnframt á þá óvenjulega ábyrgð. Í raun þarf Samfylk- ingin að hefja stjórnarmyndunarviðræður við þá um þessi mál á næstu dögum. Hér hefur verið málefnaleg stjórnarkreppa síðan í nóvember. Á því hefur engin breyting orðið þrátt fyrir nýja ríkisstjórn, kosn- ingar og endurnýjaða ríkisstjórnaryfirlýsingu. Ábyrgðin á að leysa þessa málefnalegu stjórnarkreppu hvílir á forsætisráðherra. Það mun kalla á mikla lipurð og lagni í samn- ingum að tryggja samstöðu í þinginu um þessi mál og ríkisstjórn- ina. Þeir sem að málefnasamstöðu standa þurfa líka að geta treyst þeirri stjórn sem á að framkvæma hana. Kaflaskil með hreinni vinstri stjórn: Nýtt samningaþóf ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.