Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 38
22 11. maí 2009 MÁNUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
14
14
16
L
L
L
L
BOAT THAT ROCKED kl. 8 - 10.10
X-MEN WOLVERINE kl. 8 - 10
DRAUMALANDIÐ kl. 6
MÚMÍNÁLFARNIR kl. 6
12
14
L
L
BOAT THAT ROCKED kl. 5.20 - 8 - 10.40
X-MEN WOLVERINE D kl. 5.40 - 8 - 10.20
X-MEN WOLVERINE LÚXUS D kl. 5.40 - 10.50
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 10.50
17 AGAIN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
DRAUMALANDIÐ kl. 4 - 6
MÚMÍNÁLFARNIR kl. 3.50
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
5%
12
14
12
L
BOAT THAT ROCKED kl. 6 - 9
X-MEN WOLVERINE kl. 6.30 - 9
I LOVE YOU MAN kl. 5.40 - 8 - 10.15
DRAUMALANDIÐ kl. 6 - 8 - 10
SÍMI 530 1919
12
12
12
16
STATE OF PLAY kl.5.30 - 8 - 10.30
I LOVE YOU MAN kl. 5.40 - 8 - 10.15
FAST AND FURIOUS kl. 5.40 - 8 - 10.15
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 5.50 - 8 - 10.10
650 kr.
VINSÆLASTA MYNDIN
Í HEIMINUM Í DAG!
SÍMI 551 9000
STAR TREK kl. 6 - 8D - 9 - 10:40D 10
STAR TREK XI kl. 5:30 - 8 - 10:40 VIP
X MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 14
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6D L
OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:40 16
17 AGAIN kl. 6 L
I LOVE YOU MAN kl. 8 12
THE UNBORN kl. 10:40 16
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 6 L
STAR TREK XI kl. 8D - 10:30D 10
Alfreð Elíasson & Loftleiðir kl. 5:30D - 8D - 10:30D L
NEW IN TOWN kl. 6 - 8 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6D L
LET THE RIGHT ONE IN kl. 10:10 16
17 AGAIN kl. 8 L
Alfreð Elíasson & Loftleiðir kl. 8 L
OBSERVE AND REPORT kl. 10:20 16
STATE OF PLAY kl. 10:20 12
STAR TREK XI kl. 8 - 10:30 7
Alfreð Elíasson & Loftleiðir kl. 10 L
NEW IN TOWN kl. 8 L
Empire
“Gleymdu nafninu. Ef þú fílar
hraðskreiðan og dúndurspennandi
sumarhasar með frábærum
tæknibrellum og flottum leikurum
þá er Star Trek mynd fyrir þig!”
Tommi - kvikmyndir.is
Frá Höfundi Lost og Fringe, J.J.Abrams, kemur
STÓRMYND sem gagnrýnendur halda vart vatni yfir!
100/100
The Hollywood Reporter
100/100
Variety
100/100
“In the pop high it delivers, this is the greatest
prequel ever made.” Boston Globe
kvikmyndir.com
STAR TREK XI kl. 8 - 10:20 7
Alfreð Elíasson & Loftleiðir kl. 8 L
CRANK 2 : HIGH VOLTAGE kl. 10:20 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
STAR TREK-POWER kl. 5.30, 8 og 10.30 10
X-MEN ORIGINS:WOLVERINE kl. 8 og 10.10 14
MÚMÍNÁLFARNIR(650kr.) kl. 6 - Íslenskt tal L
STATE OF PLAY kl. 8 og 10.30 12
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.50 (500 kr.) 12
ATH! 500 kr.
POWERSÝNING
KL. 10.30
Hljómsveitin Leaves gefur
í dag út sína þriðju plötu,
We Are Shadows, sem er
aðgengilegri og bjartari en
sú síðasta, Angela Test.
Leaves fylgdi hinni fjögurra ára
gömlu Angela Test eftir með því
að hita upp fyrir hljómsveitinni
Supergrass á tónleikaferð hennar
um Bretland, auk þess sem hún hit-
aði upp fyrir Duran Duran í Egils-
höll. Síðan þá hefur lítið spurst til
sveitarinnar. Hún sagði skilið við
hið virta útgáfufyrirtæki Island
Records, tónleikar urðu æ sjald-
gæfari og svo virtist sem sveitin
hefði einfaldlega gufað upp.
„Við erum búnir að vera að þró-
ast í alls konar áttir og prófa alls
konar hluti. Það var ekkert fyrr en
núna að okkur fannst þetta ganga
upp,“ segir söngvarinn Arnar
Guðjónsson um We Are Shadows.
„Þessi plata spannar stórt tíma-
bil. Elsta lagið er frá því 2003
og var samið í kringum Breathe-
plötuna. Við tókum það upp fyrir
bandarísku útgáfuna af Breathe
en okkur fannst það ekki virka í
þeirri útgáfu. Síðan poppaði þetta
lag aftur upp núna,“ segir hann
og á þar við Aeronaut sem hefur
hljómað á öldum ljósvakans und-
anfarið. „Síðan eru þarna alveg
splunkuný lög.“ Hann bætir við að
platan sé að mörgu leyti aðgengi-
legri og bjartari en Angela Test,
þó svo að nafnið We Are Shadows
bendi ekkert endilega til þess.
„Þetta er partur af því að búa á
Íslandi þar sem er myrkur stóran
hluta ársins. Þetta er kannski smá
óður til þess.“
Fyrir tveimur árum sagði Arnar
í viðtali við Fréttablaðið að nýja
platan væri að klárast. Hvað gerð-
ist eiginlega í millitíðinni? „Við
vorum komnir með efni í plötu þá
en ég var bara ekki nógu ánægð-
ur með hana þegar upp var stað-
ið. Við vorum búnir að þróast út
í hálfgert prog-rokk sem gerðist
í framhaldi af því að gítarleikar-
inn hætti hjá okkur. Við urðum
að aðlaga lögin að þessu fjögurra
manna bandi. Við vorum farnir að
breyta lögunum af Breathe í hálf-
gerðar teknó-útgáfur og þetta
var orðið dálítið súrt á köflum en
samt gaman. En ég vildi stíga út
frá þeirri þróun og þetta er niður-
staðan,“ segir hann.
15. apríl spilaði Leaves á sínum
fyrstu tónleikum hérlendis í átján
mánuði á Sódómu Reykjavík. „Við
höfðum ekki spilað síðan á Airwa-
ves 2007. Það var alveg frábært.
Það var fullt af fólki og mjög
gaman. Við ætlum síðan að halda
góða útgáfutónleika í júní.“
Leaves er ekki með útgáfusamn-
ing um þessar mundir en Kimi
Records sér um dreifingu hér-
lendis. Platan verður engu síður
fáanleg víða um heim í gegnum
iTunes, Grapewire.net og fleiri
síður. „Þessi bransi lítur allt öðru-
vísi út í dag en þegar við vorum að
byrja. Þetta er allt annað dæmi,“
segir Arnar og á þar við mátt nets-
ins og þá miklu þróun sem hefur
átt sér stað í stafrænni sölu. „Við
eigum eftir að skoða í sambandi
við dreifingu erlendis. Við erum
alveg opnir fyrir því en við erum
ekki að leita að neinum plötusamn-
ingum.“ freyr@frettabladid.is
Óður til íslenska myrkursins
Líkamsræktarstöðin World Class í
Laugum er sú besta í öllum heimin-
um að mati hins virta dálkahöfund-
ar Elliott Hester. Í grein í breska
dagblaðinu The Morning Star seg-
ist hann hafa heimsótt margar lík-
amsræktarstöðvar um allan heim,
þar á meðal í Svíþjóð og Singap-
úr, en aldrei hafi hann kynnst eins
miklum gæðum og á Íslandi. „Af
öllum þeim líkamsræktarstöðvum
sem ég hef heimsótt á 27 ára ferða-
lögum mínum þá er World Class-
salurinn og Laugar Spa á Íslandi í
sérflokki,“ skrifar hann. „Þegar ég
gekk inn í líkamsræktarsalinn leið
mér eins og James Bond sem gæti
valið úr fjölda háleynilegra vopna.
Ég horfði inn í rauðan augnskann-
ann og var tilbúinn til að taka á því
og láta dekra við mig.“
Hester bætir því við að svo mörg
tæki séu í líkamsræktarsalnum
að hvaða einkaþjálfari sem er
myndi gapa af undrun. „Áður en
ég heimsótti World Class hafði
ég aldrei eytt meira en hálftíma
á hlaupabretti. En vegna þess að
ég gat notað heyrnartól og horft á
Star Wars: Attack of the Clones á
einum af fjölmörgum sjónvarps-
skjáum skokkaði ég látlaust í níu-
tíu mínútur.“
Greinarhöfundur er einnig sér-
lega hrifinn af Laugum Spa og fer
fögrum orðum um gufuböðin sjö
sem þar er að finna og afslöppun-
arherbergið þar sem hann hvíldi
lúin bein eftir erfiði dagsins. - fb
World Class sú besta í heimi
WORLD CLASS Dálkahöfundurinn Elliott
Hester segir að World Class sé besta
líkamsræktarstöð heimsins.
„Já, Svíar ákalla þrumuguðinn Þór.
Samningurinn einn og sér bjargar
ekki gjaldeyrismálum þjóðarinn-
ar en þetta brýtur ísinn erlendis
og gefur byr í seglin, bæði hvað
varðar frekari samninga erlendis
og eins dreifingu myndarinnar,“
segir Pétur Már Ólafsson útgef-
andi.
Bókaforlagið Veröld hefur
gengið frá samningum við Natur
och Kultur í Svíþjóð um útgáfu
á bókinni Þór – í Heljargreipum
eftir Friðrik Erlingsson. Að sögn
Péturs er Natur och kultur forn-
frægt forlag en meðal rithöfunda
á þeirra snærum eru Philip Pull-
man, Joyce Carol Oates, Norman
Mailer og Einar Már Guðmunds-
son. „Sagan Þór – í Heljargreipum
var unnin í samvinnu við tölvu-
teiknimyndafyrirtækið CAOZ en
kvikmynd byggð á sögunni er nú
í bígerð í leikstjórn Óskars Jón-
assonar. Áætlað er að framleiðsla
myndarinnar kosti á annan millj-
arð króna,“ segir Pétur Már.
Bók Friðriks kom út hjá Veröld
fyrir síðustu jól og fékk lofsamlega
dóma. En sagan segir af Þór sem
er ungur og ofursterkur járnsmið-
ur í Mannheimum. Þór veit ekki að
hann er sonur Óðins sem er æðst-
ur Ása en þegar Þór fær í hend-
ur Mjölni, öflugasta vopn verald-
ar, hefst æsileg atburðarás. Bókin
seldist í nálega þrjú þúsund eintök-
um hér heima og Pétur Már bend-
ir á að Benjamín dúfa eftir Friðrik
hafi verið seld út um allar jarðir á
sínum tíma. „Til Finnlands, Dan-
merkur, Litháen, Ítalíu, Svíþjóð-
ar og víðar. Nú síðast kom hún út
í Bretlandi, fjórtán árum eftir að
hann hlaut Íslensku barnabókaverð-
launin fyrir þá merku bók.“ - jbg
Svíar kaupa goðaheim Friðriks
FRIÐRIK ERLINGSSON Sænskt bókafor-
lag gefur út bók hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LOKSINS PLATA FRÁ LEAVES Hljómsveitin
Leaves gefur út sína þriðju plötu í dag.
Arnar Guðjónsson söngvari segir sveitina
hafa prófað alls konar hluti síðustu ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N