Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 46
30 11. maí 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT
2. sót, 6. skóli, 8. þrá, 9. skammst.,
11. skóli, 12. framvegis, 14. umturnun,
16. tveir eins, 17. röst, 18. for, 20. frá,
21. fimur.
LÓÐRÉTT
1. útmá, 3. átt, 4. dragkista, 5. kvk
nafn, 7. ættgóður, 10. maðk, 13. örn,
15. slitrótt tal, 16. útdeildi, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ösku, 6. fg, 8. von, 9.
möo, 11. ma, 12. áfram, 14. umrót,
16. gg, 17. iða, 18. aur, 20. af, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. sv, 4. komm-
óða, 5. una, 7. göfugur, 10. orm, 13.
ari, 15. tafs, 16. gaf, 19. rá.
„Nei, ég var ekki ánægður með
að hann færi í þetta starf. Gerði
allt til að koma í veg fyrir það.
En þetta er honum í blóð borið og
hefur gengið vel,“ segir Geir Jón
Þórisson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn.
Sonur Geirs Jóns, Þórir Rúnar
Geirsson, fetaði í fótspor föður
síns og er nú í mótorhjólalöggunni.
Geir Jón var ekkert endilega á því
að Þórir Rúnar fetaði þessa braut.
„Nei, þetta er þannig starf. En
ef menn finna þetta í hjarta sínu
verður svo að vera. Hann gerði
eins og ég – fór út á land og starf-
aði á Snæfellsnesi,“ segir Geir
Jón sem sjálfur var lögregluþjónn
í Eyjum. Geir Jón segist ekki hafa
haft hugmynd um það þegar Þórir
Jón sótti um í lögreglunni. Og hafi
sannarlega ekki verið undir sínum
handjaðri. „Hann nýtur engra for-
réttinda.“ Geir Jón og hans kona
eiga fjögur börn en Þórir er sá eini
sem er laganna vörður.
Þórir Rúnar gegnir nafninu
Dúni þótt foreldrarnir hafi reynd-
ar ekki samþykkt þá nafngift. Dúni
segist ekki geta sagt til um hvort
faðir sinn hafi verið fyrirmyndin.
„Hann hefur verið í löggunni alla
mína hunds- og kattartíð. Byrjaði
árið 1976 og ég er fæddur 1978. Ég
þekki ekkert annað. Nei, mig lang-
aði bara að prufa, fór í sumaraf-
leysingar árið 1999 og hef verið
síðan.“ Dúni segir starfið eiga
sér margar hliðar og engar tvær
vaktir eins. „Maður getur lent í
leiðindamálum og svo í að bjarga
einhverjum á sömu vakt. Ég hef
margoft lent í að hnoða menn og
þá er eins og maður sé blessaður
að fá að taka þátt í að bjarga fólki.
Stundum líður manni vel og stund-
um illa,“ segir Dúni spurður hvort
þetta sé ekki vanþakklátt skíta-
djobb. Dúni er tveggja barna faðir
og segist taka sama pól í hæðina
og Geir Jón – ætli að gera allt til
að koma í veg fyrir að börnin rati
í lögguna. „Maður fær einhvern
veginn aðra sýn á lífið. Upplifir
margt sem ekki ratar í fjölmiðla;
heimilisofbeldi, að hlusta á ungar
stúlkur lýsa því hvernig þeim var
nauðgað … og heim kominn spyr
maður sig hvort maður sé ekki orð-
inn súr? Hvort maður sé eðlilegur?
Og það er eitthvað sem ég vil ekki
að mínir nánustu upplifi. Frekar
að börnin finni sér einhver eðlileg
störf.“ jakob@frettabladid.is
ÞÓRIR RÚNAR GEIRSSON: BÖRNIN FÁ EKKI AÐ FARA Í LÖGGUNA
Sonur Geirs Jóns í löggunni
FEÐGARNIR DÚNI OG GEIR JÓN Dúni ætlar að gera allt sem í hans valdi stendur til
þess að börn hans fari ekki í lögregluna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Eins og komið hefur fram í Frétta-
blaðinu þá er Moskva langt því frá
ódýrasta borgin fyrir kreppuþjáða
Íslendinga. Þeir deyja þó ekki ráða-
lausir, Óskar Páll Sveinsson og
félagar, heldur grófu upp rússneska
lágvöruverðsverslun. Hafi menn
haldið að það væri einfalt mál fyrir
Eurovision-þátttakendur að fara
í verslunarleiðangur þá skjátlast
hinum sömu hrapallega því
íslenska hópnum var fylgt eftir af
her öryggisvarða og lögreglu með
blá ljós og sírenur á fullu.
Kjóllinn sem Jóhanna Guðrún
hefur klæðst á æfingum vekur
mikla athygli meðal
Eurovision-njörða
úti í heimi. Þeirra
á meðal eru þrír
írskir Eurovision-
spekúlantar,
Andrew, Keith og
Peter, sem hafa
löngum verið
Norðurlöndunum
hliðhollir og reynst
nokkuð sann-
spáir. Þremenn-
ingarnir eru ekki
alveg sammála
um frammistöðu
Jóhönnu, einn telur hana vera
nokkuð góða á meðan annar er
ekki alveg jafn sannfærður. Þeir
eru þó á einu máli um að hinn blái
og íburðarmikli kjóll henti engan
veginn laginu.
En hvort spádómar Íranna séu á
rökum reistir kemur í ljós annað
kvöld þegar fyrra undanúrslita-
kvöldið fer fram og Jóhanna stígur
á sviðið, vonandi ekki í síðasta
skipti. Ef svo ólíklega fer má reikna
með því að stærsti hluti hópsins
haldi aftur heim til Íslands. Ekki eru
þó allir jafn heppnir því Sigmar
Guðmundsson,
sjónvarpsmaðurinn
skeleggi, fer ekki fet
og þarf að lýsa kvöld-
unum tveimur í beinni
útsendingu á RÚV,
hvort sem Ísland
verður þar á
meðal eða ekki.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Hún var mjög sjálfstæður
krakki og ákaflega skýr og
þessir hæfileikar hafa fylgt
henni í gegnum tíðina. Ég er
alveg ofsalega stolt af henni því
hún hefur alltaf farið sínar eigin
leiðir og komist þangað sem
hún er á sínum eigin verðleik-
um.“
Guðrún Gunnarsdóttir er móðir Ólafar
Jöru Skagfjörð Valgeirsdóttur sem leikur
Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson heldur
áfram að gera góða hluti með meistara sínum,
Hanz Zimmer. Zimmer er höfundur tónlist-
arinnar við stórmyndina Englar & djöfl-
ar sem byggð er á metsölubók Dans Brown
og að sjálfsögðu er Atli meðal þeirra sem
leggja lóð sitt á vogarskálarnar við sköpun
þess andrúmslofts sem nauðsynlegt er með
tónlist sinni. Myndarinnar hefur verið beðið
með mikilli óþreyju enda sjálfstætt framhald
hinnar ofurvinsælu Da Vinci Code. Myndin er
í leikstjórn Rons Howard en það er bandaríski
Óskarsverðlaunahafinn Tom Hanks sem leik-
ur Robert Langdon, táknfræðinginn snjalla.
Atli er titlaður „additional composer“ á
kreditlista kvikmyndarinnar og því ljóst að
hann hefur haft töluvert um tónlistina að
segja. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir
Atli og Hanz vinna saman, þeir hafa unnið
að gerð tónlistar fyrir kvikmyndir á borð
við Simpsons, Pirates of the
Caribbean og nú síðast Frost/
Nixon.
Atli hefur jafnframt getið
sér orðs sem tónskáld á sínum
eigin vegum, semur meðal ann-
ars tónlistina við nýjustu kvik-
mynd spænska hjartaknúsarans
Antonio Banderas, The Code, en
þar leikur hann á móti reynsl-
u boltanum Morgan
Freeman. - fgg
Atli Örvarsson á hluta í Englum og djöflum
ENGLAR OG DJÖFLAR
Atli Örvarsson, íslenska
tónskáldið í Hollywood,
á hluta af tónlistinni í
stórmyndinni Angels
& Demons með Tom
Hanks.
EFTIRVÆNTING Myndarinnar hefur
verið beðið með mikilli eftirvænt-
ingu enda byggð á metsölubók
Dans Brown, höfundar Da Vinci
Code.
Loftmyndir frá Íslandi verða
notaðar í bandarísku stórmynd-
inni Clash of Titans. Þetta
kemur fram á vefsíðunni Cov-
entry Telegraph. Tökur eru
hafnar í London en þær færast
síðan yfir í sólarparadísina Ten-
erife, þar sem fjöldi Íslendinga
sleikir sólina á ári hverju.
Ekki liggur fyrir hvers slags
myndir verða notaðar frá lands-
lagi Íslands en eflaust er um að
ræða góða Íslandskynningu.
Clash of Titans segir frá til-
raun Perseusar til að bjarga
prinsessunni Andromedu úr
klóm Medúsu. Clash of Titans
er endurgerð á samefndri kvik-
mynd frá árinu 1981 þar sem
Laurence Olivier var Seifur og
Ursula Andress lék Afródítu.
Enginn hörgull er heldur á
stórstjörnum í nýjustu útfærsl-
unni og ber fyrstan að nefna
Liam Neeson sem leikur sjálfan
Seif en Ralph Fiennes
verður Hades. Bond-
stúlkan Gemma Art-
erton leikur einnig
í myndinni auk hins
danska Mads Mikkel-
sen. Leikstjóri er Louis
Leterrier en hann er
hvað þekktastur fyrir
Hulk-myndina sína með
Edward Norton í
hlutverki græna
hlunksins.
- fgg
Íslandsmyndir í Clash of Titans
SEIFUR OG HADES Liam
Neeson leikur Seif í kvik-
myndinni Clash of Titans
en loftmyndir frá Íslandi
verða notaðar í henni.
Bond-pían Gemma
Arterton leikur einnig í
myndinni.
Gólfdúkur skynsamleg,
-léttur í þrifum
-auðveldur í lögn
-glæsilegt úrval
-fæst í 2, 3 og 4 m rúllum.
FLOORING SYSTEMS
Heimilisdúkur, sígild lausn:
smekkleg og hagkvæm lausn
þægilegt andrúmsloft
Svefnherbergið
hjarta heimilisins
Eldhúsið
einfaldara verður það ekki
Forstofan
SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
Sérverslun með
gólfdúk og teppi
Auglýsingasími
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Þórhallur Sigurðsson.
2. Jón Eiríksson.
3. Kate Moss.