Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í dag er mánudagurinn 11. maí,
131. dagur ársins.
4.26 13.24 22.25
3.54 13.09 22.27
Vöruskorturinn, sem talað var um í haust, er farinn að láta á
sér kræla. Hann er að sjálfsögðu
martröð allra þeirra sem óttast
að þurfa að bíða tímunum saman
í röð eftir lauk en fá síðan bara
lakkrís þegar loks kemur að þeim
eða þá að þurfa að gefa börnum
heimatilbúna bréfbáta í afmælis-
gjöf. Það gæti verið gott að fara
að rifja upp handbrögðin því nú er
sjálfsögð vörutegund orðin nokk-
uð vandfundin – gömlu góðu vax-
litir frá Crayola í gulu og grænu
pökkunum.
Á randi mínu um bóka- og leik-
fangaverslanir höfuðborgarinn-
ar kem ég yfirleitt að tómum hill-
um þar sem Crayola-litirnir voru
vanir að vera. Stundum er þó
hægt að finna stöku pakka en þá
aðeins með átta litum. Ég man þá
tíð þegar hægt var að kaupa 64 liti
sem stóðu eins og stoltur kirkjukór
upp úr Crayola-kassanum og rúsín-
an í pylsuendanum var innbyggð-
ur yddari. (Í þessum orðum skrif-
uðum fer lagið „Glory Days“ með
Bruce Springsteen skyndilega að
hljóma í kollinum á mér og það er
slæmt því mér finnst Bruce ekki
skemmtilegur.)
MÉR finnst allir litir fallegir og
vil hafa úr sem flestum að velja.
Þetta varð að vandamáli þegar
mig vantaði nýtt áklæði á stofu-
stólana mína. Fyrst vildi ég gult,
svo appelsínugult, þá rautt en valdi
að lokum grasgrænt. Það tók tvö
ár að ná niðurstöðu en auðvitað
er það eðlilegur fórnarkostnað-
ur þegar heimurinn hefur upp á
svona marga fallega liti að bjóða.
Þess vegna má ég heldur ekki til
þess hugsa að hér alist upp kyn-
slóð sem ekki þekkir almennilega
litakassa nema af afspurn og kass-
arnir fái sama ljómann í lífi barna
og risaeðlurnar og víkingar. Nokk-
uð sem hægt er að finna ummerki
eftir en ómögulegt að sjá með
berum augum.
ÞESS vegna krefst ég nú aðgerða
að hálfu stjórnvalda. Annars hóta
ég „fjárhagslegri borgarastyrj-
öld“, eins og maðurinn sagði í
Kastljósi á mánudagskvöldið án
þess að nokkur áhorfenda skildi
við hvað hann ætti og fréttamann-
inum virtist finnast of fáránlegt til
að fá útskýringu á. Eftir nokkrar
vangaveltur finnst mér „fjárhags-
leg borgarastyrjöld“ hljóta að fel-
ast í því að þjóðin kaupi upp þá
fáu Crayola-litakassa sem enn eru
eftir í verslunum, fari síðan heim
og teikni framtíð sína upp á nýtt,
alveg sjálf. Grænt gras, blár him-
inn, gul sól og marglit við.
Gulur, rauður,
grænn og blár
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Alicante
Bologna
Álaborg
Gautaborg
Billund Kaupmannahöfn
Genf
London
París
Berlín
Reykjavík
Akureyri
Eindhoven Frankfurt Hahn
FriedrichshafenBasel
Kraká
Varsjá
Barcelona
Flug+ bíll í Mið-Evrópu
Fáðu þér bílaleigubíl
frá Budget og keyrðu um
Evrópu þvera og endilanga
með fjölskyldunni! Nánar á
www.icelandexpress.is/budget
með ánægju
Bernkastel við Mósel 4.–9. júní – TILBOÐ!
Verð á mann í tvíbýli:
76.900 kr.
Innifalið: Flug til Frankfurt Hahn með sköttum og
öðrum greiðslum, hótelgisting á Hotel Drei Könige
ásamt morgunverði og akstur til og frá flugvelli.
Gönguferð um þýsku Alpana 18.–25. ágúst
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Mamma, pabbi og börnin kætast saman á ferðalagi um Evrópu,
því þar finna allir eitthvað við sitt hæfi. Skemmtigarðar, útivist,
furðulegir dýragarðar, flatlendi, fjöll – og allt þar á milli.
Bókaðu þína fjölskylduferð í sumar á www.icelandexpress.is
Innifalið: Flug til Friedrichshafen með sköttum og
öðrum greiðslum, hótelgisting á 4* Hotel Oberstdorf
ásamt hálfu fæði, allar gönguferðir með fararstjóra,
kynningarfundur fyrir ferðina og íslensk fararstjórn.
Verð á mann í tvíbýli:
149.900 kr.
Fararstjóri: Margrét Árnadóttir
Það er tilvalið að fljúga á einn
áfangastað okkar, þvælast um
Evrópu á bílaleigubíl og
fljúga heim frá öðrum
áfangastað!
A B