Skinfaxi - 01.06.1910, Síða 8
72
SKINFAXI
ar og fjörugar; þú ræður æskunni holt og
gott, því þú vilt örfa hana til framfara í
félagsstarfinu, safna henni undir eiit merki
og kenna henni að '>elska, byggja og treysta
á landið«.
Meðal annars ert þú við og við að segja
lesendum þínum frá U. M. F. út um land-
ið. Datt mér því í hug, að setjast nú nið-
ur með penna í 'hönd og hripa þér nokkr-
ar línur um U. M. F. íæskudalnum mínum;
það heitir U. M. F. Ö. (Öxndæla.)
Eg var einn af stofnendum þessa félags,
og liefi verið meðlimur þess síðan. Mér
er féiagið því sérlega kært, og við þaö eru
bundnar sælar minningar mínar, og sama
muudu aðrir meðlimir þess segja.
U. M. F. Ö. er stofnað hinn 14. maíárið
1900. Stofnendur þess voru 10 að tölu,
karlar og konur, allir innan fermingaraldurs.
Þú getur því víst nærri, Skinfaxi minn
góður, hvernig skipulagið hefir verið fyrstu
mánuðina, þar sem svo ungir áttu í hlut,
enga reynslu eða samband annara félaga aö
styðjast við, og fjölda marga örðugleika við
að stríða, sem þeir þekkja best, er reynt
hafa, en það gekk a!t vel eftir vonum. Síðan
hefir meðlimunum fjölgað ár frá ári, cn eng-
inu sagt sig úr félaginu, sem hefiráttheimili
í dalnum. Tilgangurinn hefir ætíð verið
hinn sami: að æfa íþróttir, efla andlegt og
líkamlegt atgerfi, glæða ættjarðarást og vcra
skemtandi.
Félagið heldur samkomur minsta kosti 12
sinnum á ári, þar sem fram fersöngur, ræð-
ur, upplestur og ýmsar íþróttir. Þá gefur
féiagið út blað, er nefnist Stúfur. Hann
flytur greinir í bundnu og óbundnu máli,
og er oft all gamansamur. Þykii hann sem
lítill og Ijúfur, kærkominn á skammdegis-
kvöldunum. í vor er var kom félagið upp
sundpolli, kostaði hann allmikiö. —Ásund-
kensla að byrja á næsta vori. Einn félags-
manna búinn að læra sund, á síðan að kenna
hinum.
Þá er félagið að koma upp samkomuhúsi
í félagi við sveitina. Og ráðgert er að fé-
lagið komi upp dalítilli gróðrarstöð í vor
hjá samkomuhúsinu. —
U. M. F. Ö. var eitt af stofnendum sam-
bands U. M. F. í. að þingvöllum 1907,
og hefir það síðan verið í sambandinu, og
vill hvetja önnur fél. til að ganga í það.
Formaður félagsins er Bernharð Stefánsson
á Þverá; hann var einnig fyrsti formaður
þess. Svo ekki meira að sinni. Eg óska
þér góðs gengis!
Þinn einl.
Steingr. Stefánsson.
í==®>5
Til félaganna i Sunnlendingafjórðungi.
Þar til öðru vísi verður ákveðið, eru félög-
in í Sunnlendingafjcrðungi beðin að senda
öll skrif, skýrslur og skatta til fjórðungs-
stjórnarinnar með utanáskrift:
Stjórn Sunnlendingafjórðungs U. M.F. í.
Hverfisgötu 6.
Reykjavík.
Þar er æfinlega einhver, sem getur gefið
upplýsingar um fjórðungssambandsmal.
Þeda vona eg að, komi sér vel fyrir að-
komandi ungmennafélaga
Fjórðungsstjórnin
Blaðgjöld.
Allir, er ógreidd eiga blaðgjöld sín fyrir
»Skinfaxa« síðari árshelming (frá 1. apríl —
1. okt.), eru alvarl. ámintir að greiðaþau nú
þegar! - Fyrirframgreiðslunni verðurhaldið
fast fram héðan af þótt orðið hafi að »slaka
ögn til« fyrsta hálfárið. Hún er lífæð blaðsins.
Það er eigi hægt að halda blaðinu út al-
gerlega félaust, nema því að eins, að kaup-
endurnir borgi fyrirfram.
Héðan af verðnr a. m. k. hálfsárs borgun
að fylgja hverri pöntun!
I
&
1
S K I N F A X I
—mánaðarblaö U. M. F. I.—kemur út íHafnarfirði
og kostar 1 kr. árgangurinn.
Útgefandi:
Sambandsstjórn U. M. F. í.
Ritstj órn:
Helgi Valtýsson. Guðm. Hjaltason.
Pantanir og blaögjöld sendist
AFGREIÐSLU „SKINFAXA“, HAFNARFIRÐI.
8
I
Prentsm: D. Östlunds. Rvk.