Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1910, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.09.1910, Blaðsíða 4
92 SKINFAXI þegar við gengum í þetta félag. — Eg hef áður minnst á meginatriði skuldbindingar- innar, og þau eru öll almenns eðlis. Og það atriði, sem mestum andblæstri hefir vald- ið — bindindisloforðið — er óbéinlínis fal- ið í þeim og ætti í raun réttri ekki að vera tekið fram sérstaklega, vegna þess, að áfeng- isnautn er algjörlega gagnstæð anda skuld- bindingarinnar og félagsskaparins. En að þetta atriði er samt tekið fram, er til þessað gefa því meiri áherslu og taka af öll tví- mæli í þessu efni. — Við sjáum þess dæmi, að ýmsir menn halda þvt fram, að því er virðist af sannfæringu, að með þessu sé trels- ið, — einstaklingsfrelsið, fyrir borð bor- ið. Mórg féiög hafa vegna þessarar grýlu kosið að starfa eiti sér og einangruð, með ->frjálslegu fyrirkomulagi,« að því er þau kalla, heldur en að vinna saman með öðr- um félögum og njóta þannig víðtækari hags- muna og blessunar af félagsskapnum. En þetta er sorglegur misskilningur. Við erum ekki hóti ófrjálsari fyrir það, að við látum ekki áfengislöngunina ráða yfir okkur og teymá okkur máske út á ófæru þvert á móti. Og þjóðfélagið hefir sjnt, að það er á sama máli og við, og að því er alvara með þessa skoðun. Að fáum árum liðn- um, þegar áfengið er orðið landrækt, getum við búist við því, að þessi »frjálslyndu« fé- Iög vilji þyrpast í sambandið — ,ef þau verða þá ekki sofnuð svefninum langa. En það er vafasamt, h ’e mikil eftirsókn sam- bandinu ætti að vera í þessuni félögum, sent af þröngsýni og misskilningi hafa hafnað því skilyrði, sent einna best gat stutt þau til að ná tilgangi sínum, eða hafa ekki viljað leggja á s:g örlitla sjálfsafneitun fyrir félagsskap- inn. — — Öll atriði skuldbindingarinnar eru þannig vaxin, að þau grípa hvert í annað, styðja hvert annað. Það er þess vegna augljóst, að brot gegn einu loforðinu er brot gegn þeim öllum. Við höfum lagt sania veðið fram til tryggingar þeim öllum sameiginlega og liverju fyrir sig: drengskap okkar. Missir lians er sjálfskapað víti -— þyngsta bölið, sem fyrir okkur getur komið. — En þetta veð er líka besta einingaraflið í félagsskapn- um. Vegna þess á okkur að vera óhætt að treysta hvert öðru, óhætt að koma hispurs- laust fram innan félagsins vébanda, eins og bræður og systur, óhætt að leggja fram fé og fyrirhöfn í félagsins þarfir. — En við verðum að skilja það, að félagið er ekki dauður hlutur; heldur flokkur mantia, að lieiður þess er heiður okkar, og vansæmd okkar er vansæmd þess. Við erum félagar, ekki aðeins þegar við erum öll saman innan þessara veggja, heldur líka þegar við erum hvert í sínuin stað. Einnig þá þurfum við að muna félagsskuldbindingu okkar og gæta þess að kasta ekki skugga á félag okkar með orðum eða verkum. — Skuldbinding- in hefir þjóðlega, félagslega og sérstaklega (persónulega) þýðingu. Við erum þess betri þegnar, félagar og menn, sem við höldum skuldbindinguna betur. Hún er aðaísbréf okkar. Við teljum okkur það til gildis, íslending- ar, að vera komnir af úrvali norsku þjóðar- innar á dögum Haraldar hárfagra. En ef við sverjum okkur ekki í ættina með dáð- ríkum framkvæmduni, þá er okkur skömm að ættgöfginni. Þið munið eftir þyí, að þegar einhver vildi sanna orð sín á fyrstu öldum kristninnar hér og í Noregi, þá mátti hann gera »skírslu« með járnburði — bera glóandi járn í berri hendi. Sæi ekki á höndinni, var málið sannað, er. ef höndin brann, þá var framburðurinn álitinn ósann- ur. — Sagan segir, að jafnvel norrænir kon- ungasynir hafi sannað ætterni sittá þenna hátt.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.