Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1911, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.01.1911, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI inn, á hinum á kveldin. Vel líkaði mér við 611 æskufélögin. Viðtökur góðar í þeim og annars, hvar sem eg kom. En sum æskufélög bera þó af öðrum í samheldni og dugnaði. Strjálbygð og efna- leysi, og stundum samtakaleysi, er það sem helst hamlar félagskapnum. Til eru líka þeir, sem heldur eru á móti honum. En sárfáa þessháttar menn hef eghitt í Árness- og Rangárvallasýslum. Það helsta, sem þeir hafa á móti honum er, að hann geti dregið fólk ofmjög frá daglegri vinnu. En haldi æskufélögin fast við leiðbeiningar þær, sern »Skinfaxi« gefur, þá þarf ekki að óttast slíkt. Þau verða þá þar á rnóti einmitt til mestu uppbyggingar fyrir þjóðfélagið, verða alveg nauðsynlegt þjóðmenningar meðal. G. H. Fáninn. Hver er tilgangur Ungmennafélaga ísland? Enginn minni en sá, að vinna að fullu frelsi og sjálfstæði íslands, — íslensku þjóð- arinnar. — Frelsi og sjálfstæði í orðsins fyllstu merk- ingu. 1. liðurinn í Stefnuskrá U. M. F. í. hljóð- ar þannig: »Að reyna af alefli að vekja löngun hjá æskulýðnum til þess að vinna að frelsi, framförum og heill sjálfra sín ogann- ara, með mannúð og réttsýni.« Hvernig ungmennafélögunum tekst þetta háleita staíf, er enn óreynt. Þó er svo mik- ið víst, að vilja og atorku hafa mörg félög sýnt við ýms tækifæri. Enn fremur er mér kunnugt um það, að allmikill áhugi er ríkjandi hjá miklum meiri hluta ungmennafélaganna. Hinu ber heldur ekki að leyna, að margt er í bernsku, margt starfið fer í handaskol- um sökum ódugnaðar og samtakaleysis. Samvinnan er enn eigi komin í það horf, sem hún getur komist i — Iangt frá. Hið síðasta, sem ungmennafélög innan sambands U. M. F" í. hafa látið frásérheyra, eruaðgerðir þeirra í fánamálinu. Tvö stærstu félög vor hafa samtímis vakið mikla um- ræðu um þetta mál hvert innan sinna vé- banda. Félögin vissu hvorugt af því, að hitt hafði tekið þetta mál á dagskrá. En gerðir beggja félaganna bera greinilegan vott um mikinn áhuga á þessu mikla þjóðmáli voru. Þær tillögur, sem U. M. F. R. samþyktí i fánamálinu, birtast víst hér í blaðinu, svo ungmennafélögum gefst kostur á að kynn- ast þeim. — Ungmennafélög íslands voru með þeim fyrstu, sem hétu fánanum fylgi sínu. Þau skoðuðu fánanum upphafinn yfiralla flokkadrætti, Þau tóku fánanum semalþjóð- armáli, sem að vísu gæti orðið ágreinings- atriði 'milli Dana og íslendinga, en aldrei milli íslendinga innbyrðis. Það kemur því ekki til mála, að U. M. F. íslands hér eftir fremur en hingað til þurfi að álítast blanda sér í flokksmál stjórn- málaflokkanna, þó þau af fremsta megni reyni að vinna að framgangi fánans. Ungmennafélög íslands mega aldrei svíkj- ast undan merkjurn, þegar virðing þjóðarinn- þarf á þeim að halda. Eg álít því í alla staði réttmætt að minn- ast í Skinfaxa með nokkrum orðum á fána- málið, eins og það núhorfirvið. — Hvað er fáninn? Hann er sýnilegt tákn þjóðernis og þjóðarréttar. Vér íslendingar höfum rétt til fána, sökutn okkar sérstaka þjóðernis, og sökum þess, að vér höfum réttinn til að vera frjáls þjóð. Hvað er þá í vegi fyrir því, að vér not- um sérstakan fána eins og aðrar þjóðir. Ekki annað en það, að formlega viðurkenn- ingu þjóðanna vantar fyrir því, að vor fáni sé jafn rétthár þeirra fánum, þar sem þeim Iendir saman út um heiminn og úti á al- þjóða víðavangi (reginhöfum). Hvert útlit sé til þess, að vér fáum þennan rétt vorn viðurkendan, verður erfitt að greina til fulls, fyr en þjóðin, ekki eingöngu t orði heldur einnig á borði, sýnir hvað hún vill. Þá fyrst, er vér höfum sýnt það, að vér viljum hafa fánann, með því að veifa honum einum, þar sem vér höfum allar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.