Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1911, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.04.1911, Blaðsíða 7
SKINFAXI 31 heitir »Ungmennafélag Snæfjallahrepps;<! gengu 11 í það á stofnfundinum, eru nú I 5. Lög voru að mestu samin eftir lögum sam- bands Ungmennafélaga íslands. Fundir haldnir annan hvern sunnudag. Hefir verið vakið máls á þvíá fundum að ganga í samband Ungmennafélaga íslands, og verður það víst gert að sumri. Félagið hefir átt mjög erfitt uppdráttar, þar eð helstu tnenn sveitarinnar hafa verið mjög andvígir því og eru enn, og reyna að koma því um koll, og hefir það mjög dregið kjark úr mönnum að gauga í. það, enda er mjög strjálbygt liér, og er það önnur ástæðan, að svo fáir eru í því, Samt vonum við að geta brotið allar torfærur og íekið saman við önnur félög, og þá er tak- markinu náð. '______ Félagi. II. M. F. »Vorblóm». Eg ætla að minnast tneð fáum orðum á Ungmennafélagið »Vorblóm« á Ingjaldssandi í ísafjarðarsýslu, af því að »Skinfaxi« hefir áður getið um hin Ungmennafélögin hér í grendinni, U. M. F. Mýrahrepps ög U. M. F. Önfirðinga. Ungmennafélagið »Vorblóm« er að því, sern eg veit best, fyrsta Ungmennafélagið hér í Vestur-ísafjarðarsýslu, stotnað 22. mars (að ntig minnir) veturinn 1908. Reyndar stofuuðu nokkrir drengir í Val- þjófsdal í Önundarfirði félag með líkusniði. þá um veturinn, en það var ekki fyr en í desember 1908, að Ungmennafél. Önfirðinga var stofnað. Það er og þeim mun merkilegra tneð félag þetta, að Ingjaldssandurinn er eitthvert afskekt- asta bygðarlagið, og stofnendur þess sem flestir voru ungir, höfðu engin önnur kynni af ungmennafélagsskapnum en þau, sem þeir höfðu aflað sér í blöðum og frásögnum. Þó er félag þetta í góðu lagi, og er það eflaust að þakka staðfestu félagsmanna og samheldni, og eru lög þess í fullu samræmi við lög annara sambandsfélaga. Félagið hefir starfað töluvert eftir því, sem við verður búist af fátæku og fámennu félagi. Félagsmenn eru um 20, enda eru ekki í bygðarlaginu nema 6 bæir, en útlit er á því, að félagið eigi góða fratntíð fyrir höndum, og von mín er sú, að það muni áður langt líðttr verða talið með í sambandi ungtnenna- félaga Íslands. Q. J. Nýtt sambandsfélag. Ungtnennafélag Akraness er ný gengið í sambandið. Félagið var stofnað 23. janúar 1910 og er nú því rúmlega árs- gamalt. Stofnendur 4o ; fremstir .í flokki voru þeir Haraldur Böðvarsson, Oddur Sveinsson, Sveinbjörn Oddsson og Leifur Böðvarsson. Þetta unga félag mun vera eitt hið efuilegasta í fjórung voruni; í því eru núna 84 félagar. Stærsta áhuga mál þess nú mun að konia upp húsi handa sér. Ungmennafélag Akraness sé velkomið í hóp vorn. Sem stendur er ekkert ungmennafélag hér sunnanfjalls utan sambandsins; ogerþað hið besta tákn þess hve óðfluga satnbandið vinnur hugi manna; enda værí það fullkomið áhyggjuefni þeim, sem unna hinu bezta í þjóðlífi voru, ef tmgmenní landsins e:gi gætu sameinað sig til orustu fyrir hugsjónir sínar. Heill og heiður sé því hverju félagi, sem í sambandið gengur. Þ. Þ. C Smágreinar til æskulýðsins. i. Öspilt æska. Hvað er þá óspilt æska? Eg kalla þá æsku óspilta, sem yfirleitt hvorki talar né gjörir neitt rangt eða Ijótt vísvitandi. Sem, til dæmis, er ráðvönd til munns og handa, er laus við óskirlífi, sviksemi, lýgi, grimd og hrekki. En sumir heimta nú enn meir af æsk- unni en þetta til þess, að hún megi óspilt heita, Eg hef verið svo heppinn, bæði innan lands og utan, að kynnast örsjaldan öðrum 4

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.