Skinfaxi - 01.07.1911, Side 5
SKINFAXI
53
félagsins. Hefir haldið 6—ö fundi á ári
— vel sótta. Hefur skólahúsið í Hjarðar-
holti fyrir fundarhús. Meðlimir 45. Efna-
hagur félagsins er góður, hefir þó haft tals-
verð útgjöld.
Hitt félagið er í Hvammssveitinni, er fá-
ment og rétt nýbyrjað, virðist vera efni-
legt.
Æskufélögin fengu fyrirlestrana ókeypis,
því sýslumaður sá um borgun þeirra, lagið
ferðaáætlun og sá mér fyrir fyígdum o. s.
frv.
Það er bæði virðingarvert og eftirtektar-
vert, þegar embættisrnaður gengur á undan
öðrum í því að efla aiþýðufræðslu meira
en skyldan beinlínis heimtar.
Fallegt er á Sauðafelli. Vel hýst, garður
með mörgum ribsrunnum og nýgræðings-
kvistum. Túnið er mjög stórt, slétt og girt
með öllu. Svipað er í Hjarðarholti. í
Hvammi er laglegur garður eftir séra Kjart-
an. Þar er reynir og rósarunnar og álnar
hátt grenitré alt vel lifandi. Myndarlegt er
líka á Staðarfelli og Hóli á Fellströnd og í
Hvítadal í Saurbænum. Einnig í Ásgarði,
þar er myndarbóndi mikill, er Bjarni heitir.
Oreiddi hann einna best götu mína.
Auðvitað ber Ólafsdalur af öllu. F.g kom
þar. Búið að girða 128 dagsláttur og slétta
og rækta nær helming þeirra eða 60. Torfi
búinn að smíða 100 plóga og 60 kerrur
og aktýgi, og átti nú 8 kýrfóður í fyrningu.
Og annað var eftir þessu. Margt spjölluð-
um við. Meðal a mars gat hann þess, að
einn merkur embættismaður hefði sagt á
þessa leið: »Dimmt er nú yfir þjóðlífinu
okkar. En samt sé eg þar tvo sólskinsbletti:
Annar er kennaraskólinn, hinn ungmenna-
fjelögin.«
L félaginu »Baula« í Norðurárdal hélt eg
ivo fyrirlestra. Áheyrendur 50. Er það
Jíka myndarfélag. Viðtökur bestu allstað-
ar, og allstaðar skógur í vexti.
G. H.
Bréf til Skinfaxa.
Kæri »Skinfaxi« minn!
Mér þykir rétt að senda þér fáar línur,
en í þetta sinn hefi eg lítið að segja af
ungmennafélagi okkar Öræfinga, því það er
lítið farið að starfa enn þá; enda er það
ungt; var það ekki stofnað fyr en 17. apríl
síðastl. Félagið var nefnt »Framtíðin«. Stofn-
endur þess voru 26, en nú eru þeir orðnir
31.
Við félagsmennirnir höfum góða von um,
að okkur auðnist með tímanum að vinna
eitthvað þarft. Við viljum Ieggja fram eftir
bestu fönguin, þá litlu krafta, sem við höfum,
tíl að gjöra landið okkar kæra enn byggi-
Iegra en það er. En okkur dylst það ekki,
að okkur muni verða alt of lítið ágengt mcð
það, einkum fyrst, á meðan félagið er fá-
ment og fátækt.
Félagið er nú búið að ráða það af að
byrja í vor á því að gróðursetja nokkrar
birkiplöntur, en því miður getur það ekki
orðið nema í litlum stíl í vor. En við
ungmennafélagarnir stöndum þó mörgum
ungmennafélögum betur að vígi með skóg-
rækí; því hér er hinn allra fegursti og stærsti
skógur landsins, að dómi skógfræðinganna.
Við eiguni því Iiægt með að fá okkur birki-
plöntur og fræ úr hinum fagra Bæjarstaðar-
skógi. Einnig eigum við hægt með að fá
plöntur og fræ annarstaðar í Skaftafellsskóg-
unum, því víða eru þeir þvf nær eins stór-
vaxnir og fagrir og Bæjarstaðarskógur.
— Eg hefi orðið var við, að sumir menn
sem ekki vilja ganga í ungniennafélög, eru
æði ómildir í dómum sínum um þau. Sum-
staðar hefi eg orðið þess var, að menn telja
að þau ungmennafélög geri ekkert gagn
sem afkasta ekki á skömmum tíma miklu
verki.
Eg veit, að það er ætlun allra ungmenna-
félaga, að reyna eftir megni að laga það,
sem aflaga fer; þó einkum auðvitað það,
sem þau hafa skuldbundið sig til að fram-
kvæma.
En þótt ekki sjáist á skömmum tíma, að