Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1911, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.09.1911, Qupperneq 8
72 SKINFAXI Hrein og sönn ættjarðarást er svo djúp og innileg kend, svo göfgandi og glæð- andi, að hatursfull ofsókn og ódrengileg bardagaaðferð getur ómögulega orðið henni samferða! — Skoðanamunur og flokkaskift- ing breytist eðlilega eigi við ættjarðarást, og »mannlegur breyskleiki* gægist auðvitað fram í lieitum og kappmiklum umræðum, en framkoma öll verður drengileg og sönn, \fair play« í fylsta skilningi. Ættjarðarástin e'.ur og þroskar drenglyndið, svo maður virðir og metur mótstöðumenn sína þrátt fyrir skoðanamuninn. Erlent skáld segir einhversstaðar í kvæði einu: œttjörðin er landið og fólkið, seni er mér samtíða í landinu. Ef vér lítum þeim augum á málið, sjáum vér skjótt, hvílíkt misræmi er í því að segj- ast elska ættjörðu sína af alhug, þótt maður sýni það í verki, að maður hatar bræður sína með fullri meðvitund og ásettu ráði. Hatar mennina, sem ættjörðin hefir fóstrað og blásið sömu ást í brjóst! — Svoblindur getur maður orðið og blektur af ósann- indum og óhreinskilni! Ættjarðarástin er sterkasta og hreinasta ástin jarðneska, hvorki foreldra-, systkina- né hjúskapar-ást standa henni jafnfætis. Hún er lang göfugust allra jarðneskra kenda vorra, ópersónuleg og laus við síngirni. — Hún elskar eigi að eins heimahagana og eignarblettinn sinn, heldut alt landið, hverja þúfu, hvern stein, alt sem lifir og hrærist í landinu! En þrátt fyrir það sér hún gall- ana og ókostina — og vill bæta úr þeim. Hún vill »gera grund úr móum, og garða á hverjum bæ, og skóga úr holtum og heiðum, frá hlíðum og út að sæ.« Ættjarðarástin er fús að deyja fyrirlandið sitt, og hún er líka fús að lifa fyrir það; en sú þrautin er þó margfalt erfiðari og vandasamari en sú fyrri. Vér íslendingar höfum eigi tækifæri til að deyja fyrir ættjörð vora — í venjuleg- um skilningi — en því betra tækifæri til þess að lifa fyrir hana, enda er þess þörfin mest. — Ef alt þjóðardramb vort væri orðið að eldheitri ættjarðarást, og sundur- lyndið að samhug — þá væri brautin rudd, framfara- og hamingjubraut lands og þjóðar. — Þá »drypi blessun Drottins daga alla« á ættjörð vora! H. V Kæra kveðju sendi eg öllum kaupendum »Skinfaxa« með þökk fyrir góða samvinnu og viðkynningu! íslandi altl H. V. Unga ísland (barnablað með myndum). Ómissandi blað á hverju barnaheimili. Flytur ágœtar sögur og fjölda mynda, kvœði o. fl. í »Orðabelgnum.« eru jafnan sögur og smápistlar eftir börn og unglinga, sem kaupa blaðið. Um norska fiðluleikarann heimsfræga, Ole Bull, flytur blaðið nú langa og fróðlega frásögn. Kaupbætir blaðsins í ár er norsk sveita- lífssaga, Sella Síðstakkur, sem nú er ný- byrjuð, og verður send öllum sk Ivísuin kaupendum ókeypis. Bókhlöðuverð að minsta kosti Kr. 1,25. Inndœll barna■ og unglinga- sögu er varla hœgt að hugsa sér! ■ Unga ísland kemur út einu sinni á mán- uði átta blaðsíður og kostar kr. 1,25 árg. Unga ísland ætlar sér að komast inn á hvert heimili í landinu! Ungmennafélagar! Styðjið að útbreiðslu Unga fslands eftir megni! Hafnarfirði júlí 1911 Helgi Valtýsson — ritstj. & útg. Ú. f. — Prentsin. Östlunds.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.