Skinfaxi - 01.12.1911, Qupperneq 8
96
SKINFAXI
smágrein í Le Journal, einu helsta Parísar-
blabinu:
„Innan skamms mun leikflokkurinn
l’Oeuvre, gefa okkur færi á að kynnast
bókmentum nokkrum, sem hér eru með
öllu óþektar. Það eru bókmentir Islend-
inga. Um nokkra stund hefir íslenskt leik-
skáld, Jóhann Sigurjónsson, vakið allmikla
eftirtekt á Norðurlöndum. I Kaupmanna-
höfn á að sýna, innan skamms, leik hans
Fjalla-Eyvind. Norska leikkonan ágæta,
frú Dybvad verður einn leikandinn, Sam-
tímis verður Fjalla-Eyvindur leikinn í Ber-
lín og Dresden og seinna hér í París“.
Öllum Islendingum mun þykja vel farið,
að hr. Jóhann Sigurjónsson fær svo skyndi-
lega og eindræga viðurkenningu. Sérstak-
lega hafa Norðurlandabókmentir átt örð-
ugt með að sigra á Frakklandi. Kveður
svo ramt að því, að önnur eins snildar-
verk eins og leikrit Ibsens eru þar nær
ókunn öllum þorra manna, af því að
þessari smekkvisu listaþjóð þykir þau ekki
nógu mikil listaverk handa sér.
Fjalla-Eyvindur mun verða sýndur hér
í Reykjavík um hátíðarnar af Leikfélagi
Reykjavíkur.
Fljótasti inaður í heiini.
I byrjun nóv. s. 1. varð franskur mað-
ur, Jean Bouin heimsmeistari í hlaupum.
Hann rann 9 kílom. og 721 m. á hólf-
tima. Fyrir 42 árum hljóp maður 9 kílóm.
712 m. á sama tíma; síðan hefir fjöldi
manna reynt að yfirstíga afrek þessa manns,
en engum tekist. Einhver frægasti göngu-
maður Englendinga Mr. A. Shrubb reyndi
1894 og komstjeigi meir en 9 km. 660 m.
Sigur Bouins var enn glæsilegri af því,
að veður var óhagstætt fremur: úðarign-
ing og vindur nokkur svo að fresta varð
hlaupinu um eina stund frá því sem aug-
lýst hafði verið.
M. Bouin lætur ekki staðar numið við
þetta, og býr sig nú undir að verða meist-
ari í stundar-hlaupi. Sá sem þar hefir
komist Iengst er Englendingur Mr. H. Wat-
kins. Hann hljóp í sept. 1899 18 kílom.
878 m. á kl.stund.
Um srjöf Tryggva.
Maður, kunnugur landi því, seni Ung-
mennafélögin eignuðust nýlega við Sogið,
segir svo frá, að þó að skógurinn sé ekki
ýkjahár, né þéttur, verði þó óhjákvæmi-
Iegt að grysja hann, enda sé það arðvæn-
legt því, því að um leið og skógurinn
batnar stórum er hann gisnar, þá muni
hreinn ágóði að grysjuninni geta orðið um
150—200 kr. á ári. Kemur það sér vel,
því að girðingar kostnaður verður allmik-
ill. Svo var til ætlast af skógfræðingi lands-
ins, að svæði þetta yrði girt í fyrra, og
voru fluttir þangað stólparnir en ekki vír.
En þegar til kom, vantaði fé og liggja
stólparnir þar ónotaðir enn. Sennilega
mun skógræktarstjórnin fús til að styðja
U. M. F. í., ef á liggur, til þess verks, sem
hún vildi sjálf hafa gert.
Bliiðið.
Með þessum árgangi er öðrum árgangi
Skinfaxa lokið. Hann er enn lítill og fá-
tækur, á tæpa 600 kaupendur, en ef við
hjálpumst öll að, Ungmennafélagar, þá
ætti hann að geta tekið bráðum þroska,
stækkað, fjölgað tölublöðuni og um leið
betur náð tilgangi sínum, — tilgangi Ung-
mennafélaganna.
Næsta ár hugsar Skinfaxi sér að reyna
að fylgja áætlun, ná í allar póstferðir.
Utvegið sem flesta nýja og áreiðanlega
og nýja kaupendur og sendið afgreiðslu-
manni.
Tilkynning'. Heimilisfang fjórðungssljórnar
Sunulemiingafjórðungs er í Aðalstrœti 8, Jtvik.
Eins og að undanförnu verður kvittað fyrir
skatta og skýrslur frá félðgunum, með ]>ví að
geta þess í Skinfaxa. Fjórðunysstjóruin.
Félagsprentsmiðj an.