Skinfaxi - 01.05.1912, Page 8
40
SKINFAXI
arnir stukku of snemma, og lentu í
skurðinum, feldu riddarana af baki, brut-
ust upp úr, fældust, og lentu þá inn 1 þétt-
asta hópnum og feldu nýja menn úr söðli.
Eftir fyrstu umferð voru 11 úr sögunni,
á næstu umferð féllu 6; 7 komust óskemd-
ir að markinu. Sigurvegarinn var 10 mín-
útur, 13 sek. Sá hestur var seldur síðast
yrir 24,000 kr. Nú mundi hann talinn
þrefalt meira verður.
Olympisku leikiruir.
Svíar hafa nú sem mestan viðbúnað
bæði um íþróttir og allan undirbúning.
Þykjast þar eiga vissa von margra gesta,
þar á meðal ekki allfáa konungborna.
Háskólakappróður á Englaiidi.
Oxford og Caombridge háskólar æfa mik-
ið róður. Hefir sú íþrótt verið landlæg
í báðum stöðunum nú um mörg hundruð
ár. Gegnum báða bæina falla ár breið-
ar og lygnar. Þar æfa stúdentarnir sig,
og verða af því og mörgu öðru í venj-
um og háttsemi allra manna hraustastir
og glæsilegastir. Einu sinni á ári er kapp-
róður milli þessara báskóla á Tempsá. 30.
mars í vetur var 69. leikurinn háður. Ox-
ford vann þá í 38. sinn.
Hitt og þetta.
Björuinn friðaður.
Skógarbjörninn hefur verið aígengur i
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. En veiði-
mönnum hefur ætíð þótt mikill sigur í að
fella bangsa og hefur þeim því fækkað óð-
um nú á síðari árum, svo að nokkur hætta
þykir að björnum verði útrýmt þar með
öllu. Það þykir dýravinum leitt, og er nú
uppi hreifing mikil í þessum löndum til
varnar birninum. Krefjast menn, að hann
sé friðhelgur allan veturinn, meðan hann
liggur í híði, enda sé Iítil frægð að 'vegá
sofandi dýr, þá að engin verðlaun sé veitt
bjarnabönum — en þau eru nú 25. krL
fyrir hvert dýr, og í þriðja lagi að settar
séu hér og þar voldugar girðingar í skóg-
unum, þar sem alt lifandi sé friðhelgt og
megi enda æfina í friði og ró.
Skinfaxi.
Fyrsta og annað tölublað hans afþessu
ári er uppgengið hjá afgreiðslumanni. Ný-
ir kaupendur geta því ekki fengið þau, en
þó má gott kaup heita að fá árgang hans
að öðru leyti og Skógræktarritið (75 aura
virði) fyrir eina krónu.
Vöntun.
Þeir sem hafa 1. og 2. tölublað Skin-
faxa þ. á. og sem þeir gætu án verið, eru
beðnir að senda það afgreiðslumanni. Lát-
ið eigi hirðuleysi hamla sendingunni.
Sundnámsskeið Sunnlending'afjórðung-s
verður haldið í Rvik ffá 15. maí til 30.
júní. Kent verður bæði í Laugunum og
við Sundskálann. Kennarar Björn Jakobs-
son og Páll Erlingsson. Kenslukaup 3 kr.
á mann. Styrkur nokkur fyrir aðkomandi
sundkennaraefni, send af Ungmennafélög-
um. Vonandi nota sem flestir þetta ágæta
tækifæri.
Efnisyflrlit Skógræktarritsins.
Skinfaxi mun siðar minnast þessarar
ágætu bókar nákvæmlega. Hún verður að
sjálfsögðu handbók hvers einasta Ung-
mennafélaga á öllu landinu. Höf. hefir
raðað efninu þannig:
Inngangur. — I. kafli: Ahrif skógarins
á landið. Ahrif skógarins á veðráttuna.
Svarar kostnaði að rækta skóg. Hvernot
eru að skógi. Helstu skógræktaráhöld. —
II. kafli: Yngjun skógarins. Skógarhögg.
Val á skógræktarlandi. Trjátegundir, barr-
viðir, laufviðir. Gróðursetning. Fræsán-
ing. Græðireitur. — III. kafli: Trjágarð-
ar. Gróðursetning stórra trjáa. Skjól-
garðar úr skógtrjám. Skógféndur. — IV.
kafli: Um skógræktardaga.
Fjórðung-sstjórnirnsu-
hafa Skógræktarritið til sölu.
- 7----------«—?---
Eélagsprentsmiðjan. ,